Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 23

Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Rautt spjald Kona lætur skoðun sína í ljósi með því að veifa rauðu spjaldi við Alþingishúsið. Ómar Ólíkt hafast þeir að, Stein- grímur J. Sigfússon og Bjarni Benediktsson. Sá fyrrnefndi beitti hótunum sem fjár- málaráðherra en sá síð- arnefndi gefur fyrirheit um lægri opinberar álögur á fyr- irtæki og einstaklinga. Báðir hafa þeir gripið til enskunnar til að lýsa því sem þeir vilja gera: „You ain‘t seen nothing yet“ Ekki verður það frá Stein- grími J. Sigfússyni tekið að hann stóð af trúmennsku við yfirlýsingar sínar enda hafa vinstrimenn alltaf haft ein- falda lausn á flestum vanda- málum, allt frá rekstri rík- issjóðs til jöfnunar lífskjara: Skattar skulu hækkaðir. Margaret Thatcher, fyrr- verandi forsætisráðherra Bretlands, benti á að vinstri- menn vildu jafna kjörin niður á við – hægri menn vildu bæta kjör allra. Hugmyndafræðilegur sigur Vinstristjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hófst þegar handa árið 2009 undir hand- leiðslu Steingríms J. Sigfús- sonar í fjármálaráðuneytinu við að hækka skatta. Þegar Steingrímur hafði verið í tæpt ár í ráðherrastóli stóð hann stoltur á fundi Deloitte endurskoð- unarfyrirtæk- isins og greip til enskunnar. Í lok kjörtímabilsins – eftir mikinn ósigur í kosn- ingum leit fjár- málaráðherrann fyrrverandi hróðugur um öxl. Vinstri grænir hefðu, með um- byltingu skattakerfisins, unnið „sinn stærsta hugmynda- fræðilega sigur“ auk sigra í umhverfismálum. Skattar voru hækkaðir jafnt á einstaklinga sem fyrirtæki og alls voru gerðar um 200 breytingar á skattkerfinu á valdatíma vinstrimanna. Allt „nánast eftir okkar eigin form- úlu og að grunni til í samræmi við hugmyndir sem ég teiknaði upp í bók sem ég skrifaði 2006,“ segir Steingrímur J. stoltur í bók sinni, Frá hruni og heim. Fyrirtæki fengu að kynnast „formúlunni“ og einstaklingar fengu heldur betur að smakka á henni. Þrepaskipt tekju- skattskerfi með stighækkandi skatthlutföllum (þremur skatt- þrepum) var inn- leitt og tenging persónuafsláttar við vísitölu neysluverðs af- numin. Skattprósenta var hækkuð og tekjutenging barnabóta aukin. Tekjuskattslög- unum var breytt tæplega 30 sinn- um á kjör- tímabilinu. Fjármagnsskattur var hækkaður og sérstakur auðlegðarskattur (eignaupp- tökuskattur) var lagður á. Stöðugar breytingar á sköttum gerðu það nær úti- lokað fyrir venjulegt fólk að fylgjast með og erfitt fyrir litla atvinnurekendur að gæta rétt- ar síns í sífellt flóknara og breytilegu skattaumhverfi. Og eftir höfðinu dönsuðu limirnir. Í samræmi við yf- irlýsingar um að Ísland skyldi ekki vera „skattaparadís“ kepptust þingmenn vinstri- flokkanna um að boða of- urskatta – 60-70% skatt á tekjur yfir eina milljón og jafn- vel 80% á tekjur yfir 1,2 millj- ónir. Öllum þessum hugmyndum og allri sósíalískri „skatta- formúlu“ Steingríms J. Sigfús- sonar var hafnað í kosningum á liðnu ári. Tími hótana að baki Almennir launamenn sem og atvinnurekendur hafa bundið miklar vonir við rík- isstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Ekki síst í skattamálum. Ríkisstjórnin gaf strax í upphafi loforð um að snúið yrði af braut vinstristjórn- arinnar. Hófsemd yrði inn- leidd við álagningu skatta og opinberra gjalda, samhliða því að tryggja hallalausan rík- isrekstur. „Við lögðum frá upphafi áherslu á að lækka skatta,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, í ræðu á flokksráðsfundi síðastliðinn laugardag. Hann tók um leið fram að það hefði ekki gerst án átaka enda virðast vinstri- menn líta svo á að „óskatt- lagður eyrir sé tapað fé“. Réttum tíu mánuðum eftir að Bjarni Benediktsson tók við stjórn fjármálaráðuneyt- isins er árangurinn að koma í ljós. Hagur heimilanna og fyr- irtækjanna er 25 milljörðum króna betri en undir óbreyttri stefnu vinstrimanna. Fyr- irheit Bjarna á flokksráðs- fundinum var skýrt: Hann er rétt að byrja, ekki aðeins með lækkun skatta heldur með gagngerum breytingum á skattkerfinu:  Það á að endurskoða tekju- skattskerfið, draga úr beinum sköttum og treysta fremur á neysluskatta.  Endurskoða á allt virð- isaukaskattskerfið, auka jafnvægi milli atvinnu- greina og einfalda um- sýslu.  Vörugjöld verða afnumin af öllum vörum nema bifreið- um, eldsneyti, áfengi og tóbaki.  Tollkerfið verður endur- skoðað, tollar lækkaðir og felldir niður í tvíhliða samningum við önnur lönd. Ef það hreyfist … Það er allur annar bragur á málflutningi núverandi fjár- málaráðherra en forvera hans sem sagðist hafa unnið „hug- myndafræðilegan sigur“ með 200 breytingum á skattkerfinu og stórhækkun skatta. Vinstristjórn Samfylkingar og Vinstri grænna rak skatta- stefnu sem setti allt íslenskt samfélag í spennitreyju. Orð Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, lýsa ágætlega stefnu sem fylgt var af trúmennsku á síðasta kjör- tímabili: Ef það hreyfist skattleggðu það. Ef það heldur áfram að hreyfast, settu lög. Ef það stoppar, settu það á ríkisstyrk. Ræða Bjarna Benedikts- sonar gefur fyrirheit um að unnið verði markvisst að því að lækka opinberar álögur á einstaklinga og fyrirtæki. Fyrstu skrefin hafa verið stig- in, þó að mörgum finnist þau of lítil og of fá. Loforðið er hins vegar skýrt: Íslensk heimili og fyrirtæki verða leyst úr spennitreyju sem gerð var samkvæmt form- úlu sósíalista sem vildi láta gamlan draum rætast. Eftir Óla Björn Kárason » Það er annar bragur á mál- flutningi núverandi fjármálaráðherra og forvera hans sem sagðist hafa unnið hugmynda- fræðilegan sigur með stórhækkun skatta.Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Annar hótar en hinn gefur fyrirheit auki er hit- unarþörf íbúða mest þegar raf- orkukerfið hefur minnstu fram- leiðslugetuna. Varmadæl- ur nota vinnslumiðil í lokuðu kerfi og nýta þar óreiðubreyt- ingu hans þ.e. þegar vinnslu- miðillinn fer úr t.d. vökva- fasa í gasfasa. Þannig er hægt að fá 2-5 kWst af hita- orku úr hverri kWst af raf- orku sem knýr dæluna á meðan bein rafhitun skilar aðeins einni kWst af hita fyrir hverja kWst raforku sem fer inn í kerfið. Með notkun varmadæla má því mæta sömu hitunarþörfinni með færri kWst af hágæða raforku. Afkastageta raforkukerf- isins skerðist ekkert með uppsetningu varmadæla sem þýðir að þær kWst sem sparast má nota í aðra upp- bygginu eða til að mæta aukinn raforkuþörf til fram- tíðar. Tökum dæmi: Bóndi á Snæfellsnesi notar 40.000 kWst í beina rafhitun. Til að lækka orkukostnaðinn hjá sér setur hann upp varmadælu og minnkar með því raforkunotkun sína um t.d. 50% eða 20.000 kWst. Þessi einfalda framkvæmd bóndans hefur nákvæmlega sömu áhrif og bygging virkjunar sem getur fram- leitt 20.000 kWst. Bóndinn hefur því „frelsað“ 20.000 kWst sem nota má annars staðar t.d. til að anna al- mennri raforkunotkun 4-5 nýbygginga í Reykjavík eða ársnotkun 8 rafbíla. Græn raforka er verðmæt afurð og hver kWst sem sparast við rafhitun má nota í annað og því má segja að raf- Menn geta deilt endalaust um virkj- anafram- kvæmdir en flestir eru sam- mála um hversu dýrmæt end- urnýjanleg raf- orka er að verða. Íslendingar búa svo vel að öll raforka á Íslandi flokkast sem græn raforka þ.e. á ekki uppruna í end- anlegu jarðefnaeldsneyti. Eftirspurnin eftir þessari grænu orku hefur aukist talsvert en hægt hefur gengið að koma virkj- unarframkvæmdum á kopp- inn. Í þessum stutta pistli er ætlunin að benda á orku- auðlind sem oft vill gleym- ast en er líklega ódýrasti og umhverfisvænasti virkj- unarkostur landsins. Sem betur fer eiga Ís- lendingar jarðhitann, gríð- arlega auðlind sem sér 90% landsmanna fyrir ódýrri og umhverfisvænni húshitun. Þau 10 prósent sem ekki hafa aðgang að jarðhita þurfa hinsvegar að notast við rafhitun sem er mun dýrari húshitunarkostur þó að ríkið niðurgreiði rafhitun að hluta. Þrátt fyrir að hlut- fallslega fáir íbúar búi við rafhitun er hún umfangs- mikil og talsverður hluti af almennri raforkunotkun í landinu. Ætla má að heild- arraforkunotkun til húshit- unar sé í kringum 700 GWst. Líta má á þessar GWst sem vannýtta auðlind vegna þess að auðveldlega má draga úr þessari rafhit- un með stækkun hitaveitna, bættri einangrun húsa og uppsetningu varmadæla. Það er ekki skynsamleg orkunýting að nota há- gæðaraforku til að mynda lágæðahitaorku og þar að orkusparnaður með varma- dælum sé einnig ein ódýr- asta leiðin til að „virkja“ til grænnar raforkufram- leiðslu. Með einföldun má segja að ef rafhitun yrði helm- inguð með uppsetningu varmadæla þá myndu losna um 350 GWst í raforkukerf- inu sem samsvarar um 50 MW virkjun sem þarf ekk- ert umhverfismat og festist aldrei í bið- eða vernd- arflokki Rammaáætlunar. Varmadæluuppsetningar hafa tekið rækilega við sér með breytingum á lögum um niðurgreiðslur húshit- unarkostnaðar. Með breyt- ingunum var opnað á mögu- leika ríkisins til að taka þátt í stofnkostnaði við umhverf- isvæna orkuöflun sem dreg- ur úr rafhitun. Einnig er nú starfandi vinnuhópur sem vinnur að tæknilegu mati á möguleikum á ísetningu stórra varmadæla inn í raf- kynt veitukerfi sem finna má á nokkrum stöðum á landinu. Á meðan Íslendingar deila um hina ýmsu virkj- unarkosti rís nú orkusparn- aðarvirkjun bak við tjöldin öllum landsmönnum til hagsbóta. Ekki verður klippt á neina borða við framkvæmdina en kannski verður orkan sem þú notar í næsta bíltúr á rafbílnum þínum aðgengileg vegna varmadælu hjá framsýnum íbúa á köldu svæði. Íslands smæstu virkjanir Eftir Sigurð Friðleifsson Sigurður Ingi Friðleifsson » Varmadælu- uppsetningar hafa tekið rækilega við sér með breyt- ingum á lögum um niðurgreiðslur hús- hitunarkostnaðar. Höfundur er fram- kvæmdastjóri Orkuseturs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.