Morgunblaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Afmælisdagur Bjargar er gleðskapur vináttu og gleði þar semgóðir vinir koma saman til að fagna afmælisdegi hennar ogeina krafan er að afmælisgestir taki með sér góða skapið.
„Ég hef alltaf verið mikið afmælisbarn og að sjálfsögðu held ég upp
á afmælið mitt því þegar ég hef ástæðu til að fagna læt ég það ekki
renna mér úr greipum,“ segir Björg en henni þykir vænt um fólkið í
kringum sig og segir félagsskap þess vera bestu afmælisgjöfina.
„Með aldrinum kemur ákveðinn þroski og ég bið því fólk að láta það
vera að koma með gjafir. Þær verða aldrei jafnverðmætar og góðu
stundirnar með vinum og fjölskyldu.“
Björg starfar sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu en í frítíma sín-
um skyggnist hún inn í hugarheim annarra í gegnum heim skáld-
sögunnar. „Mér finnst mjög gaman að lesa og þá helst skáldsögur.
Nú síðast las ég bókina IQ84 eftir Haruki Murakami og gerði sú bók
mjög mikið fyrir mig,“ segir Björg sem sjálf hefur fengist við bóka-
skrif en í maí í fyrra gaf hún út sína fyrstu bók sem nefnist Ekki
þessi týpa. Segir Björg bókina hafa fengið góðar viðtökur í vinahópi
sínum sem hún segist hafa sótt innblástur í við persónusköpun bók-
arinnar. „Ég leitaði einfaldlega í nánasta umhverfi mitt en breytti
auðvitað öllum nöfnum,“ segir Björg skellihlæjandi. Hún segir eng-
in vinslit hafa orðið vegna þess. „Nú er ný bók á leiðinni svo það er
aldrei að vita hvað gerist. Enginn hefur verið ósáttur enn en ég er
líka lunkin í að kæfa vandamál í fæðingu.“
vilhjalmur@mbl.is
Björg Magnúsdóttir er 29 ára í dag
Veisla Björg lætur aldrei góðan fögnuð fram hjá sér fara og leitast
við að vera innan um vini sína og ættingja á góðri stundu.
Brosmildur og glað-
legur rithöfundur
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Benjamín Vilberg fæddist
13. júlí kl. 3.40. Hann vó 4034 g og var
52 cm langur. Foreldrar hans eru
María Þórdís Ólafsdóttir og Björn Vil-
berg Jónsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Röskva fæddist 30. nóv-
ember kl. 18.18. Hún vó 3.090 g og var
51,5 cm löng. Foreldrar hennar eru
Louisa Sif Jóhannesardóttir og Jó-
hann Hermannsson.
H
elga Dögg er fædd í
Reykjavík 9.4. 1974
og alin upp í Fossvog-
inum þar sem hún
gekk í Fossvogsskóla
og Réttarholtsskóla. Þaðan lá leiðin
svo í Verzlunarskóla Íslands en þar
lauk hún stúdentsprófi af stærð-
fræðibraut 1994.
Helga Dögg lauk BA-prófi í al-
mennri bókmenntafræði frá HÍ
snemma árs 1999. Síðasta árið í bók-
menntafræðinni tók hún í Erasmus-
skiptinámi við University College
London og árið eftir brautskráningu
dvöldu hún og verðandi eiginmaður
hennar í London þar sem Helga
Dögg starfaði hjá ferðaskrifstofunni
Discover the World.
Þegar heim var komið hóf hún
störf á nýstofnuðum SkjáEinum og
var síðan blaðamaður hjá tímaritaút-
gáfunni Fróða. Á þeim tíma sat hún í
stjórn Blaðamannafélags Íslands og
tók m.a. þátt í því að koma á fót
Blaðamannaverðlaununum sem veitt
hafa verið árlega síðan.
Haustið 2003 lá leiðin aftur í Há-
skóla Íslands, að þessu sinni í við-
skiptafræði og lauk Helga Dögg
M.Sc-prófi í viðskiptafræði með
áherslu á markaðsfræði og alþjóða-
viðskipti. Að því loknu hóf hún störf
Helga Dögg Björgvinsdóttir markaðsstj. Microsoft Íslandi – 40 ára
Við Goðafoss Helga Dögg á ferðalagi með börnunum sínum, Ingu Sif, Björgvini Hauki og Stefáni Gauta.
Úr blaðamennsku og
bókaútgáfu til Microsoft
Litríkar Helga Dögg, þriðja frá vinstri í efri röð Bollywood-danshópsins.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isVagnhöfða 11, 110 Reykjavík | S. 577-5177 | linuborun@linuborun.is | www.linuborun.is
Af hverju grafa þegar hægt er að bora?
Reynsla - þekking - við komum og metum
Við notum stýranlegan jarðbor
sem borar undir götur, hús, ár
og vötn.
Umhverfisvænt - ekkert jarðrask•
Meira öryggi á svæðinu•
Sparar bæði tíma og peninga.•
Borum fyrir nýjum síma-, vatns-, rafmagns-
og ljósleiðaralögnum.