Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 12
* Ég hef alltaf haft þá trú að það séu allir trú-aðir en brögðin velkjast fyrir mörgum.Megas flytur eigin lög við alla Passíusálmana um þessar mundir.Landið og miðinSKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
LAUGARBAKKI
Allar fasteignir Laugarbak
í Miðfirði í Húnaþingi vest
steinsnar frá þjóðvegi 1, e
sölu. Um er að ræða skól
með kennslustofum, heim st,
mötuneyti, íþróttahúsi og
íbúðum, auk þess einbýlis
parhús á leigulóð sveitarfé
Heildarflatarmál fasteigna
tæpir 4000 fermetrar. Síða
ár hefur húsnæðið verið n
sumarhótel.
DRANGEY
Byggðarráð
Skagafjarðar
eyna næstu
eþrjú ár, nda verði almennt
og eðlilegt aðgengi tryggt á
samningstímanum. „Félagið
mun kappkosta að viðhalda
veiðiaðferðum, veiðistöðum og
ganga um eyna í fullri sátt við
náttúruna eins og gert hefur verið
undanfarna áratugi. Félagsmenn
hafa haldið við skála í Drangey og
unnið betrumbætur við lendingu
og uppgöngu í eyna á kostnað
félagsins,“ sagði í umsókn félagsins.
SELFOSS
Bæjarráð Árborgar
vill kanna möguleika
á því að eignast húsið
Sigtún, fyrrum bústað
Egils Thorarensen,
kaupfélagsstjóra. Húsið,
sem hefur verið á söluskr
og söguríkasta hús á Selfo
bæjarins og gæti gegnt stó
framtíð skipulags miðbæja
bæjarráðs. Bæjarstjóra var
eiganda hússins, án skuldb
EGILSSTAÐIR
Austan megin við Egilsstaða-
flugvöll hefur verið komið
lausag
bönn
umd
á Austu
austurfre
það geti
fljúgi um svæ
að fuglastóðið flau
koma inn til lendingar
HVOLSVÖLLUR
Fyrsti hluti Njálurefilsins 23 met,
Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvel
kl. 10 til 17. Þetta verður ei
uppsettan þangað til hann
mynd eftir no
á 60-80 m
var á vík
Þórunn Eymundardóttir ersveitastúlka að austan,Hanna Christel Sigurkarls-
dóttir Reykvíkingur sem flutti aust-
ur fyrir nokkrum árum og Litten
Nystrøm frá Danmörku.
„Sífellt fleiri sjá það sem fýsi-
legan kost að búa á Seyðisfirði enda
er alveg yndislegt að vera hér. Ein
kenning er sú að staðurinn hafi
landfræðilega töfra sem geri það að
verkum að skapandi fólk dragist
hingað; finnist gott að vera með
góða tengingu við náttúruna,“ segir
Þórunn.
Hún hefur átt hús á Seyðisfirði
síðan 2003. „Þegar ég flutti var ég í
raun ein af mínu sauðahúsi; fjöl-
margir listamenn áttu hér hús og
komu á sumrin en á þessum rúma
áratug hafa líklega bæst við átta
heimili þar sem býr listamaður eða
jafnvel listamannapar, sem flust hef-
ur hingað til að dvelja meira og
minna. Það er í eðli þessa hóps að
flakka töluvert og margir eiga jafn-
vel tvö heimili en það er einstakt að
geta búið úti á landi, í litlu sam-
félagi þar sem allt er persónulegt,
nálægð við náttúruna mikil en samt
sterk tenging inn í myndlistarheim-
inn eins og Skaftfell er.“
Skaftfell, miðstöð fyrir samtíma-
myndlist, var formlega stofnað 1998
af hópi í kringum listamanninn
Dieter Roth sem átti heimili víða
um heim, meðal annars fyrir austan.
„Garðar Eymundsson, húsasmiður
og listamaður, átti Skaftfell og gaf
húsið: setti það í hendurnar á hópn-
um með það í huga að þar yrði mið-
stöð fyrir menningu og listir og þar
er nú rekin mjög metnaðarfull mið-
stöð um samtíðarmyndlist, sýningar
haldnar og í húsinu eru gesta-
vinnustofur þar sem tveir til þrír
tugir hvaðanæva úr heiminum
dvelja á hverju ári. Langflestir lista-
mennirnir sem búa hér komu fyrst í
gegnum Skaftfell, unnu að verkefni
eða sýndu og heilluðust af staðn-
um.“
Þær Hanna höfðu þekkst í mörg
ár en kynntust Litten þegar hún
flutti til Seyðisfjarðar 2010. „Þá
kom í ljós að við áttum margt sam-
eiginlegt og því kjörið að leggja í
púkk. Við höfum allar mjög mikinn
áhuga á að vinna með það sem er í
nánasta umhverfi; að finna verð-
mæti í því sem aðrir sjá ekki. Segja
má að áhersla á endurvinnslu, sjálf-
bærni og fegurð þess smáa sé aug-
ljós rauður þráður í gegnum annars
fjölbreytt verkefni.“
Nýjasta afurð þremenninganna er
ljósmyndabók sem þær unnu fyrir
bæjarfélagið. Bókin, Albúm Seyð-
isfjörður, er eins konar persónulegt
albúm bæjarbúa en kallað var eftir
áhugaverðu myndefni þeirra og
gesta bæjarins. Fjöldi mynda barst
og valdar voru 65 eftir 38 ljósmynd-
ara. Ekki er um glansmynd að
ræða, segir Þórunn, heldur fá allar
árstíðir og veðrabrigði að njóta sín,
m.a. Austfjarðaþokan og yfirþyrm-
andi vetrarmyrkrið.
Þórunn segir aukna menningar-
starfsemi hafa mikil áhrif á sam-
félagið. „Fyrir ekki mjög löngu var
Seyðisfjörður klassískt sjávarþorp
en menningarlífið smitar út frá sér
og þetta tvennt fer mjög vel saman,
menningin og sjórinn. Ekki hafa all-
ir áhuga á myndlist eða því sem
verið er að gera í list en menningin
hefur samt áhrif á sjálfsmynd bæj-
arbúa. Þegar í boði er menning á al-
þjóðlegu plani dregur það líka að
fólk sem er ekki listamenn eða vinn-
ur í menningargeiranum en vill vera
þar sem það getur notið listarinnar.
Hér hafa orðið til nokkur lítil fyr-
irtæki á síðustu árum, til dæmis
okkar, svo er það Sagnabrunnur
sem vinnur við textagerð og þýð-
ingar, yst í firðinum er menningar-
og náttúrusetur og svo LungAskól-
inn og Heima.“
SEYÐISFJÖRÐUR
Suðupottur
lista og
menningar
ROSHAMBO ER LÍTIÐ FYRIRTÆKI ÞRIGGJA LISTAKVENNA
SEM STARFA SAMAN Á SEYÐISFIRÐI. EIN ÞEIRRA, ÞÓRUNN
EYMUNDARDÓTTIR, SEGIR EINSTAKT AÐ BÚA Í LITLU SAM-
FÉLAGI ÞAR SEM TENGING VIÐ NÁTTÚRUNA ER MIKIL. RoShamBo á Seyðisfirði. Frá vinstri: Litten Nystrøm, Þórunn Eymundardóttir og Hanna Christel Sigurkarlsdóttir.
Opna úr ljósmyndabókinni sem RoShamBo hannaði fyrir Seyðisfjarðarbæ.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014