Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 25
6.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
D
óra María Lárusdóttir, landsliðskona í fót-
bolta, spilaði sinn 100. landsleik í knattspyrnu
á Algarve-mótinu fyrir skemmstu. Hún er
fjórði Íslendingurinn sem spilað hefur yfir
100 landsleiki. Dóra María hefur leikið allan sinn feril með
Val en söðlaði um og lék eitt tímabil í Brasilíu.
Hversu oft æfir þú á viku? Misjafnt eftir keppnisálagi en
alla jafna æfi ég um 6-8 sinnum í viku. Mér finnst mik-
ilvægt að taka einn góðan frídag.
Hvernig æfir þú? Akkúrat núna er yfirleitt í hverri viku
einn leikur, fjórar fótboltaæfingar, tvær lyftingaæfingar
og svo bætast við séræfingar u.þ.b. tvisvar í viku þar sem
farið er yfir tæknileg atriði.
Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað? Finna
sér eitthvað sem þeir hafa áhuga á og þykir skemmtilegt.
Mikilvægt að fara ekki of geyst af stað og einblína ekki á
skammtímaárangur. Ekki verra að finna sér æfingafélaga
sem hefur góð áhrif á mann og drífur mann áfram.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Heilbrigt líferni,
gott hugarfar og að æfa betur en hinir.
Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið? Ég er ekki
mikill hlaupagarpur en ég hljóp einu sinni 10 km meðfram
strönd Recife í Brasilíu.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill
hreyfa sig meira? Skipuleggja sig
vel og láta verða af því.
Líður þér illa ef þú færð ekki
reglulega útrás fyrir hreyfiþörf-
ina? Nei, ekkert sérstaklega.
Hvernig væri líf án æfinga? Það
myndu allavega bætast nokkrar
klukkustundir við sólarhring-
inn og mig grunar að ég gæti
orðið hættulega fljót að venj-
ast því. Eftir að fótboltaferl-
inum lýkur vonast ég þó til að
finna mér einhverja skemmti-
lega hreyfingu sem hvetur mig
til að æfa reglulega. T.d. bad-
minton á veturna og golf á
sumrin.
Hvað er það lengsta sem hefur
liðið á milli æfinga hjá þér? Ég hef
stundum tekið mér frí frá því að keppni
lýkur fram til áramóta eða í 1-2 mán-
uði.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar
þú ferð í frí? Þegar ég tek mér frí
finnst mér gott að taka mér alveg frí
frá æfingum, hreinsa hugann og koma
fersk tilbaka þegar undirbúnings-
tímabil hefst að nýju.
Ertu almennt meðvituð um mat-
aræðið? Svona bæði og en ég passa
allavega upp á að borða fjölbreytt og
innbyrða næga orku og kolvetni fyrir erfiðar æfingar og
leiki.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Vera sem oftast
í mat hjá mömmu og pabba. Þar er yfirleitt eitthvað hollt,
gott og gómsætt á boðstólum.
Hvaða óhollustu ertu veik fyrir? Blandi í poka
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið? Ég
held að fæðuhringurinn sem við lærðum í heimilisfræði
forðum sé alltaf ágætis viðmið. Sjálf reyni ég að auka hlut
grænmetis á disknum mínum, drekka rauðrófusafa og
borða oftar fisk.
Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig? Í
dag er þetta partur af mínum lífsstíl og mér líður alltaf
mjög vel eftir góðar æfingar.
Hver eru erfiðustu meiðsli sem þú hefur orðið fyrir?
Hingað til hef ég verið ákaflega heppin með meiðsli. Ég
hef einungis misst af tveimur leikjum á ferlinum vegna
meiðsla en þá var ég smávægilega tognuð í læri. Ætli
krónísku hælsærin ’97, sem náðu bókstaflega yfir báða
hælana og inn að beini, hafi ekki háð mér mest en þá tók
ég upp á því að keppa í Adidas Superstar-strigaskóm til að
finna minna fyrir þeim.
Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orðið
fyrir? Ég fékk einu sinni nokkuð grimmt glóðarauga á
bandímóti í Verzló.
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Ég held
að það sé nokkuð algengt að fólk þekki ekki sín takmörk
og ætli sér oft of mikið á skömmum tíma.
Hver er erfiðasti mótherjinn á
ferlinum? Ætli það sé ekki
hin brasilíska Marta.
Hver er besti sam-
herjinn? Erfitt að
toppa Valsliðið
2006-2010. Meist-
arar fimm ár í
röð.
Hver er
fyrirmynd
þín? Ég á mér
í rauninni
margar ólíkar fyrirmyndir og reyni að til-
einka mér það góða í fari þeirra. Ætli fólkið
sem er mér næst sé samt ekki mínar helstu
fyrirmyndir.
Hver er besti íþróttamaður allra tíma?
Jordan kemur fyrstur upp í hugann.
Skemmtileg saga/uppákoma frá ferlinum?
Mér er það alltaf minnisstætt þegar við vorum
á keppa á Gull&silfur-mótinu í Kópavogi þegar
Edda vinkona mín keppti með bakpoka á bak-
inu sem innihélt nesti og aukasokka. Mamma
hennar hafði beðið hana um að passa vel upp á
dótið sitt og við það stóð hún svo sannarlega.
Skilaboð að lokum? Lifðu drauminn!
KEMPA VIKUNNAR DÓRA MARÍA LÁRUSDÓTTIR
Keppti eitt sinn í strigaskóm
Nýtt fimleikafélag sem leggja mun áherslu á parkour verður stofnað í
næstu viku. Stofnfundurinn verður haldinn kl. 20 þann 8. apríl í fé-
lagsaðstöðu Orkuveitunnar á Rafstöðvarvegi og er öllum opinn. Parkour
er keppnislaus íþrótt og nýtur mikilla vinsælda hér á landi.
Parkourfélag stofnað *Manneskjan þarfnast erf-iðleika, þeir eru nauðsyn-legir fyrir heilsuna.
Carl Jung
A
lgarvephotopress
Fyrsta laugardag hvers mánaðar er
boðið upp á frían tíma í hláturjóga
milli klukkan 11 og 12 í húsnæði
Lifandi markaðar í Borgartúni 24 í
Reykjavík. Í hláturjóga er lögð
áhersla á að nota hlátur til að efla
og styrkja líkama, hugsun og sál.
Hláturjóga er aðferð sem ind-
verski læknirinn dr. Madan Kataria
hefur þróað. Á vef Lifandi mark-
aðar segir að í hláturjóga geti hver
sem er hlegið í hópi, án tilefnis, án
þess að segja brandara, án húmors
eða fyndni.
Eins og nafnið gefur til kynna er
hláturjóga blanda af hláturæfingum
og jógaöndun.
Tímarnir í hláturjóga eru öllum
opnir en leiðbeinendur eru þau
Ásta Valdimarsdóttir og Sölvi Avo
Pétursson. Í krónum talið kostar
ekkert að vera með en samkvæmt
vefnum er tekið við frjálsum fram-
lögum með kærleika.
HLÆÐU ÞÉR TIL HEILSUBÓTAR
Hlátur, jafnvel hrossahlátur, lengir lífið og ekki er síðra að bæta jógaöndun við.
Morgunblaðið/RAX
Frítt í hláturjóga á laugardag
Æfingamyndbönd Örnu Sigríðar Al-
bertsdóttur sem hún birtir á vef sín-
um www.arnasigridur.com hafa vak-
ið mikla athygli á samfélagsmiðlum.
Arna Sigríður birtir myndbönd sín
einnig á Youtube og þar má meðal
annars sjá hana gera upphífingar …
sem væri svo sem ekki í frásögur
færandi nema vegna þess að hún er
bundin við hjólastól. Það stoppar
hana þó ekki í því að hífa sig upp á
eigin afli og hjólastólinn með.
Arna Sigríður heldur úti fyrr-
nefndri bloggsíðu þar sem hún segir
frá stífum æfingum sem hún stundar
og greinir frá mataræði sínu. Hún
hefur verið bundin við hjólastól frá
árinu 2006 þegar hún lenti í alvar-
legu skíðaslysi. Arna Sigríður og
einkaþjálfari hennar Fannar Karvel
hjá Spörtu líkamsrækt hafa lagt mik-
ið upp úr því að deila myndböndum
og upplýsingum um æfingar hennar
á netinu svo að sem flestir geti not-
að þau sér til hvatningar. Arna
keppir í maraþoni og hálfmaraþoni á
svokölluðu handahjóli og æfir stíft
árið um kring.
ÆFINGAMYNDBÖND ÖRNU SIGRÍÐAR
Arna Sigríður hífir sig upp.
Upphífingar
með hjólastól
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI