Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014
Föt og fylgihlutir
Hvernig fékkstu þetta starf?
Það er í rauninni mjög fyndin saga. Ég á
vin hérna í Kaupmannahöfn sem var nýhætt-
ur með kærastanum sínum og var eitthvað
leiður og vildi komast á stefnumót. Til þess
ákvað hann að nota smáforrit sem heitir
Grinder en ég vil bara koma því á framfæri
að ég er enginn aðdáandi þess og hef aldrei
notað það. En hann sem sagt finnur strák í
gegnum smáforritið og þeir verða góðir vin-
ir. Þessi vinur minn býður mér síðan að hitta
þá í kaffi og ég mætti en vissi ekki þá að
þetta yrði framtíðaryfirmaðurinn minn.
Hann er sem sagt yfirmaður hjá Elite og við
kynntumst og hann bauð mér síðan vinnu
sem svokallaður fyrirsætuútsendari. Það fel-
ur í sér að finna mögulegar fyrirsætur úti á
götu og það var það sem ég hafði verið að
gera á Íslandi áður en ég flutti út.
Ég sem sagt finn og sé um nýju fyrirsæt-
urnar sem koma inn. Það er rosalega gaman
og maður fær að kynnast fyrirsætunum og
fer að þykja vænt um þær sem maður finn-
ur.
Hvernig gengur þetta fyrir sig? Gengur
þú upp að fólki úti á götu og segir því að
það eigi að vera fyrirsætur?
Já, ég geri það. Danirnir eru samt rosa-
lega lokaðir. Ég hef lent í því að fólk hleyp-
ur bara í burtu frá mér. Það er mun erfiðara
að nálgast Danina en Íslendingana. Íslend-
ingarnir eru segja bara: „Já já, ekkert mál,“
en Danirnir eru ekki svo auðveldir. Ég er
samt nýbyrjaður að nota ákveðna ræðu sem
klikkar yfirleitt ekki í sambandi við Danina.
Það er samt sem áður alltaf fyndið að labba
svona upp að fólki. Svo er það líka bara
gaman, tilfinningin sem fylgir því að finna
einhvern út á götu sem verður síðan eitthvað
stórkostlegt er alveg mögnuð.
Hefur það aldrei misskilist þegar þú
gengur svona upp að fólki?
Ég byrjaði náttúrlega að vinna hér fyrir
ári og þá var ég ekkert rosalega góður í
dönsku. Ég átti þá bara til að segja ein-
hverja hluti sem enginn skildi. Þá fyrst var
þetta mjög vandræðalegt. Fólk var þá voða
lítið að spá í hvað ég var að segja og þurfti
ég bara að garga: „Halló, ég kem frá Elite“
til að fá einhver viðbrögð. En yfirleitt er
þetta búið að ganga vel.
En hverju leitar þú eftir þegar þú ert að
finna fyrirsætur?
Hjá stelpunum eru kröfurnar svakalegar.
Þetta eru náttúrlega kröfur bransans sem
þarf að fara eftir, ef maður fer ekki eftir
þeim þá er þetta ekki að fara að gerast. Ég
byrja alltaf á því að skoða kroppinn, hvort
þær séu grannar og langar, svo horfi ég á
andlitið. Ég vildi svo að ég gæti tekið ein-
hverja flotta stelpu með rass og brjóst og
allt það en það er bara því miður ekki hægt.
Þetta er náttúrlega ótrúlega yfirborðs-
kennt og ég er heldur ekki hlynntur því
þannig séð, en þetta er bara form sem ég
leita eftir. Ég er mjög andsnúinn því að
dæma fólk eftir útlitinu en bransinn gerir
það.
Hvernig er það með strákana?
Ég elska allt skrýtið við stráka og þegar
ófullkomleikinn verður fullkominn. Ég leita
að einhverjum sem er einstakur og með
sterka andlitsbyggingu. Ég fann til dæmis
strák fyrir Elite um daginn sem er með
skarð í vör og var alveg einstakur, þannig vil
ég hafa þá.
Nú hefur þú búið í Kaupmannahöfn í
þónokkurn tíma. Hvernig finnst þér borg-
in?
Ég er rosalega hrifinn af borginni og ég
elska að horfa í kringum mig hér og fá alveg
fiðring í magann því hún er svo heillandi.
Mér líður mjög vel hérna og tengdi við hana
alveg um leið. Ég varð líka ástfanginn hérna
af alveg ótrúlegum strák sem hefur haft
mikil áhrif á veru mína hér.
H
venær hófst áhuginn á tísku?
Ef þú skoðaðir myndir af mér
frá því ég var yngri þá myndi þig
aldrei gruna að ég myndi ein-
hverntímann pæla eitthvað í tísku, ég var
bara kaós. Það var ekki fyrr en ég flutti í
bæinn sem ég fór aðeins að hugsa út í þetta.
Fyrsti hönnuðurinn sem ég vissi um var Je-
remy Scott. Svo átti ég vini sem voru að
pæla í þessu og skrifa um tísku og ég varð
pínu afbrýðisamur þannig að ég fór og stúd-
eraði þetta. Áhuginn kom svona hægt og ró-
lega, skref fyrir skref, en núna elska ég
þetta.
En hvenær hófst áhuginn á ljósmyndun?
Ég teiknaði rosa mikið þegar ég var yngri,
en varð síðan heillaður af ljósmyndum í kjöl-
farið. Ég fékk einhverja myndavél sem pabbi
minn hafði keypt fyrir algjöra tilviljun og
þannig byrjaði þetta allt saman. Ég tók
myndir á hverjum degi frá því ég var í ní-
unda bekk þar til ég kom í menntaskóla, en
þar byrjaði ég fyrst að taka myndir af fólki
og vera meira skapandi sem var æði.
Ertu sjálflærður í faginu?
Já, ég er það. Ég byrjaði þarna í níunda
bekk og ég hef verið að taka myndir frá
þeim degi. Það var oft gert grín að mér fyrir
að taka margar myndir af sjálfum mér en í
rauninni hafði ég engan annan. Ég hef alltaf
viljað skora á sjálfan mig og þannig hef ég
lært. En svo er auðvitað margt fólk sem hef-
ur kennt mér í gegnum tíðina sem ég hef
lært mikið af og ég er mjög þakklátur fyrir
það.
Þú starfaðir einnig fyrir framan mynda-
vélina á þínum yngri árum sem fyrirsæta.
Hvernig upplifun var það?
Ég hélt að ég gæti verið fyrirsæta þegar
var yngri, og var það út frá einhverjum
draumaheimi sem ég sá í sjónvarpinu. Ég
byrjaði að þróa mig áfram og svo gekk það
eitthvað illa og ég var búinn að gefa þennan
litla draum upp á bátinn. Svo gerðist það allt
í einu að ég var kallaður í prufu hjá Eskimo,
eitt leiddi að öðru og ég byrjaði að vinna
þar. Það gaf mér voðalega mikið og ég fékk
sjálfsöryggi sem mér fannst mjög góð til-
finning. Þegar á leið var ég sendur til Lond-
on þar sem ég vann í gegnum Eskimo en
eftir það dró ég mig í hlé. Ég fór að gera
mér grein fyrir því að ég var kannski ekkert
súpermódel og þegar ég vissi að ég gat ekki
gert þetta heilshugar setti ég þetta til hliðar
og ákvað að einbeita mér frekar að því sem
ég er góður í og það var ljósmyndunin. Ég
er mjög ánægður að hafa upplifað þennan
heim en þetta er bara kafli sem er búinn í
mínu lífi og það er í góðu lagi.
Nú starfar þú hjá umboðsskrifstofu Elite
í Kaupmannahöfn. Hvað gerir þú þar?
Elite er ein af sterkustu umboðsskrifstof-
unum hérna í Kaupmannahöfn og er með
mjög sterkt tengslanet um allan heim þegar
kemur að tísku. Við erum til að mynda með
á samning við þrjár af stærstu fyrirsætum
heims. Það er gaman að vera hluti af þessu
og þetta gefur manni mikla innsýn í hvernig
tískuheimurinn virkar. Hjá Elite starfa ég
bæði á skrifstofunni og leita að fyrirsætum.
Helgi segir að starf sitt hjá
Elite gefi honum góða innsýn í
hvernig tískuheimurinn virkar.
HELGI ÓMARSSON STARFAR VIÐ FYRIRSÆTULEIT Í KAUPMANNAHÖFN
Alltaf viljað skora á sjálfan sig
ÞRÁTT FYRIR UNGAN ALDUR HEF-
UR HELGI ÓMARSSON KOMIÐ VÍÐA
VIÐ. Í DAG STARFAR HANN VIÐ AÐ
FINNA FYRIRSÆTUR FRAMTÍÐ-
ARINNAR Á GÖTUM KAUPMANNA-
HAFNAR Á VEGUM FYRIRSÆTU-
SKRIFSTOFUNNAR ELITE.
Auður Albertsdóttir audura@mbl.is
Helga líður vel í Kaupmannahöfn.
Helgi finnur og sér um fyrirsætur í starfi sínu.
* Ég fór að gera mérgrein fyrir því að égvar kannski ekkert súper-
módel og þegar ég vissi að
ég gat ekki gert þetta heils-
hugar setti ég þetta til hliðar
Ljósmyndir/Kasper Kramer