Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 38
Ódýrt Valuun Vibro, allt að 12
tíma rafhlöðuending, tengist við
snjallsíma og önnur raftæki í gegn-
um Bluetooth, USB eða 3,5 mm
jack-tengi. Verð: 7.990 kr. Fæst í
Tölvutek.
ÓDÝRT, MIÐLUNGS OG DÝRT
Bluetooth-hátalarar
Dýrt: Bose Soundock 10,
hljómtæki fyrir tæki sem
bjóða upp á Bluetooth-
tæknina. Nýjasta dokkan frá
BOSE og sú öflugasta Verð:
149.900 kr. Fæst í Nýherja.
Miðlungs: JBL Flip2 Bluetooth-
hátalari. 2 x 5W magnari, Li-ion
rafhlaða sem dugar allt að fimm
klukkustundir. Verð: 19.990.
Fæst í Tölvulistanum.
G
oogle-gleraugun eru nýtt
fyrirbæri og því enn
frekar óljóst hvort
heimilt verður að nota
þau undir stýri. Bann við notkun
þeirra hefur þó hvergi verið bundið
í lög, en slíkt er í skoðun í nokkr-
um ríkjum Bandaríkjanna þar sem
gleraugun eru nú þegar komin á
almennan markað.
Leggjast gegn notkun
gleraugnanna við akstur
Þórhildur Elín Elínardóttir, upp-
lýsingafulltrúi hjá Samgöngustofu,
segir að engin ákvæði umferðar-
laga eða reglugerða kveði beint á
um bann við gleraugunum meðan á
akstri stendur. „Ökumönnum ber
þó samkvæmt lögum að sýna al-
menna varúð og tillitssemi. Jafn-
framt kveða lög á um að ökumönn-
um sé við akstur óheimilt að nota
farsíma án handfrjáls búnaðar og
getur ráðherra sett nánari reglur
um notkun annars fjarskiptabún-
aðar og svipaðs búnaðar við akstur.
Svo virðist sem bann við notkun
á hinni nýju tækni sem nú er fram-
komin hafi enn sem komið er
hvergi verið bundið í lög. Með um-
ferðaröryggi að leiðarljósi leggst
Samgöngustofa þó sterklega gegn
notkun þessara gleraugna við akst-
ur, enda geti þau spillt athygli öku-
manns ekki síður en farsímar.
Jafnframt telur stofnunin að æski-
legt sé að ákvæði laga um notkun
fjarskiptabúnaðar í akstri verði
þróuð frekar með tilliti til tækni-
framfara eins og umræddra Go-
ogle-gleraugna,“ segir Þórhildur.
Ekki verið rætt hjá lögreglunni
Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarð-
stjóri umferðardeildar hjá lögregl-
unni, segir að ökumenn eigi að
hafa athyglina í lagi við aksturinn.
Slíkt sé í anda laganna. „Það er
hinsvegar margt sem truflar við
aksturinn, það getur verið samtal
við farþega, hlustun á útvarp eða
annað. Eitthvað sem kemur fyrir
augað á ökumanni myndi ég halda
að hefði truflandi áhrif. Þegar
þessi gleraugu koma á markað þá
ímynda ég mér að faghópar og lög-
gjafinn setjist yfir lagabókstafinn
og skoði málið. En þetta hefur ekki
komið til tals hér innanhúss, að
mér vitandi.“
Lögreglan getur ekki kært öku-
menn nema hafa lagabókstaf á bak
við. Það eru því engin viðurlög við
akstri hér á landi með gleraugun
enda eru þau ekki sími, en óheimilt
er að tala í síma undir stýri nema
með handfrjálsum búnaði. Innan-
ríkisráðherra getur sett nánari
reglur um notkun annars fjar-
skiptabúnaðar og svipaðs búnaðar
við akstur.
Átta ríki í Bandaríkjunum
skoða umferðarreglur
Google hefur nú þegar ráðið til sín
hagsmunagæsluaðila í Bandaríkj-
unum í þeim ríkjum þar sem komið
hefur til tals að banna notkun gler-
augnanna við akstur. Í að minnsta
kosti átta ríkjum Bandaríkjanna,
þar sem gleraugun eru þegar kom-
in á markað, hafa komið fram hug-
myndir um að banna notkun, enda
geti það að hafa lítinn skjá í horni
augans verið truflandi. Ríkin sem
nú kanna þessi mál eru Illinois,
Delaware, Missouri, New York,
Maryland, Vestur-Virginía, New
Jersey og Wyoming. Samkvæmt
frétt Reuters um málið hafa ýmsir
lýst áhyggjum af því að notkun Go-
ogle-gleraugna dragi athygli öku-
manns frá akstrinum og skapi
hættu. Þar sem gleraugun eru til-
tölulega nýtilkomin tækni hafa
dómstólar rétt byrjað að velta mál-
inu fyrir sér en hvergi í Bandaríkj-
unum hefur notkun gleraugnanna
við akstur verið bönnuð.
Að kalla þetta gleraugu er ef til
vill ekki réttnefni því í raun er
bara um gleraugnaumgjörð að
ræða en á umgjörðina er festur
agnarlítill skjár. Ekkert gler er í
Google-gleraugum. Þau eru hins
vegar tengd við snjallsíma þannig
að sá sem er með þau á nefinu fær
tilkynningu á skjáinn um það þeg-
ar kemur sms, tölvupóstur eða ef
síminn hringir, hvort sem viðkom-
andi situr undir stýri eða ekki.
Öryggistæki
eða truflun?
GOOGLE-GLERAUGUN KOMA SENN Á MARKAÐ UM ALL-
AN HEIM. ÞAU GETA TEKIÐ VIÐ SMS-SKILABOÐUM, TEKIÐ
UPP MYNDBÖND, TENGST NETINU OG LEIÐBEINT ÖKU-
MÖNNUM. STÓRA SPURNINGIN ER HVORT ÞAÐ SÉ
ÖRUGGT AÐ AKA MEÐ ÞAU EÐA HÆTTULEGT.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Google-gleraugun eru snjalltæki í
formi gleraugnaumgjarðar. Skjá-
myndin birtist í hægra horni. Um-
deilt er hvort það að vera með
mynd og texta fyrir augunum getur
truflað akstur.
Morgunblaðið/Þórður
Skjáskot tekið með Google-gleraugunum við akstur.
Þórhildur Elín
Elínardóttur
* Það eru enginviðurlög viðakstri hér á landi
með gleraugun enda
eru þau ekki sími
Guðbrandur
Sigurðsson
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014
Græjur og tækni
Samsung var með besta aprílgabbið þetta
árið samkvæmt könnun T3-tækniblaðsins.
Samsung plataði þó nokkra viðskiptavini
með því að kynna snjallhanskann þar sem
sími, púlsmælir, myndavél, 5G, hátalari og
32 gígabæta minni var allt í einum hanska.
Samsung með besta gabbið
Fyrirtækið Dyson hefur komið með fjölmargar nytsamlegar hugmyndir á markað síðan
það var stofnað árið 1991. Í marsbyrjun kom önnur útgáfa af viftunni „Air multi-
plier“ og markar viftan ákveðin tímamót í loftræstingu. Hefur viftan
fengið ótrúlega jákvæð viðbrögð gagnrýnenda. Hún er 75% hljóð-
látari en hin venjulega vifta, hefur enga spaða og gusturinn frá
henni er mun kröftugri en áður hefur þekkst. Viftan er allt ann-
að en ókeypis en verðið er 250 til 299,99 dollarar eða 28-33
þúsund krónur í Bandaríkjunum en hún er ekki enn komin í
sölu hér á landi. Hún var kynnt sem hugmynd árið 2009
og fyrsta útgáfa kom út á síðasta ári. Í marsbyrjun
kom svo önnur útgáfa þar sem var bú-
ið að minnka hávaðann enn frekar og
auka kraftinn. Fyrirtækið hefur eytt
rúmum 40 milljónum dollara í þróun-
arvinnu en alls eru 1.500 verkfræð-
ingar og vísindamenn í vinnu hjá Dy-
son. Síðasta uppfinning þeirra var
pokalausa ryksugan en líklegast þekkja
flestir Íslendingar Dyson-handþurrkuna
sem er í Kringlunni meðal annars þar sem
nýþvegnum höndunum er stungið í blás-
ara og kröftugur gustur þurrkar þær á
nokkrum sekúndum.
HÖNNUN OG UPPFINNINGAR
Blæs án spaða og hávaða
Hér má sjá þrjár gerðir af „Air multiplier“-viftunni. Engin
hætta er á að barnsfingur verði fyrir spöðum á fleygiferð.