Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 43
Sóley Jóhannesdóttir kynnir þeim Báru og Hrafnhildi Hólmgeirsdætrum verkefni sitt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Verkefnið gekk mjög vel en þetta
er í fyrsta skipti sem fatahönnuar-
deildin tekur sér sjálfbærnisverk-
efni fyrir hendur,“ segir Fiona
Cribben, fatahönnuður og leiðbein-
andi í verkefninu. Fiona segir
rannsóknavinnu línunnar ásamt því
að hafa skapandi hugsun skipta
mestu máli í hönnnunarferlinu.
„Nemendurnir eru að hanna fyrir
Aftur, en Aftur vinnur mikið með
endurnýtt efni svo hugmyndin var
að vinna alfarið með það hugtak,“
segir Fiona en nemendurnir sjálfir
ákváðu hvernig línur þeir hönnuðu,
sumar- eða vetrarlínu, herra- eða
dömufatnað. Júlíana Ósk Hafberg
bar sigur úr býtum en línan henn-
ar samanstóð að hluta til af endur-
nýttu gallaefni. Júlíana hlaut að
launum 30.000 króna inneign í
versluninni ásamt því sem Aftur
mun nýta sér hönnun hennar til
framleiðslu. Bára og Hrafnhildur
Hólmgeirsdætur völdu sigurveg-
arann.
LISTAHÁSKÓLANEMAR HANNA FYRIR AFTUR
Sóley Jóhannsdóttir hannaði
bæði fatnað og fylgihluti.
Júlína Ósk sigraði í keppninni og sýnir hér línu sína fyrir fatamerkið Aftur.
Björg Gunnarsdóttir hannaði
skemmtilega línu.
Lína Manúelu Óskar Harðardóttur.
FYRSTA ÁRS NEMAR FATAHÖNNUNARDEILDAR LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS FENGU ÞAÐ
VERKEFNI AÐ HANNA FATALÍNU FYRIR FATAMERKIÐ AFTUR. SÍÐAN VAR SÁ NEMANDI
VALINN SEM NÁÐI AÐ ENDURSPEGLA MERKIÐ Á ÁHRIFARÍKASTAN HÁTT.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Mikilvæg rannsókn
Fiona Cribben fatahönnuður.
Fiona leggur áherslu á faglega unnar
vinnubækur í hönnunarferlinu.
6.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
v
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Mikið úrval af gjafavöru og fatnaði