Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 51
Jordan Belfort fæddist 9. júlí 1962 í New York og ólst
upp í Queens. Foreldrar hans störfuðu sem bókhald-
arar en móðir hans varð einnig lögfræðingur þegar
Belfort var orðinn eldri.
Belfort er með háskólapróf í líffræði og ætlaði sér að
verða tannlæknir. Það féll um sjálft sig þegar deild-
arforseti tannlæknadeildarinnar tilkynnti nemendum
að gullöld tannlækninga væri liðin. „Ef þið eruð hér
einfaldlega til að græða fullt af peningum eruð þið á
röngum stað.“
Áður en Belfort fór að vinna í því fagi sem hann varð
síðar alræmdur fyrir starfaði hann við sölumennsku.
Hann seldi meðal annars sjávarfang og kjöt. Undir lok
9. áratugarins hóf hann störf á hlutabréfamarkaðinum
og tveimur árum síðar stofnaði hann fyrirtæki sitt;
Stratton Oakmont.
Belfort var fundinn sekur um ýmiss konar hvít-
flibbaglæpi, fjársvik og markaðsmisnotkun undir lok tí-
unda áratugarins. Hann var dæmdur í fjögurra ára
fangelsi og til að greiða fórnarlömbum sínum 110 millj-
ónir dollara. Belfort sat þó aðeins inni í 22 mánuði og
hefur unnið fyrir sér sem fyrirlesari og kennt sölu-
mennsku um allan heim eftir að hann losnaði úr fang-
elsi.
Belfort hefur verið sakaður um það í bandarískum
fjölmiðlum að standa ekki við gerða samninga við
stjórnvöld sem snerust um að Belfort ætti að borga
50% af tekjum sínum til þeirra 1.513 einstaklinga sem
hann svindlaði á.
Í grein sem birtist í Forbes eftir skattalögfræðinginn
Robert W. Wood fyrir nokkrum mánuðum kom fram
að Belfort hefði á þeim tíma vissulega greitt 11,6 millj-
ónir dollara en af þeim hefðu 10,4 milljónir komið úr
sjóðum sem Belfort átti fyrir. Wood vísaði jafnframt í
opinber málskjöl þar sem kom fram að Belfort hefði
einungis greitt 243 þúsund dollara frá árinu 2009 þrátt
fyrir að hafa haft 1,7 milljónir dollara upp úr bókasölu
og sölu á kvikmyndarétti.
Þetta rímar nokkuð vel við nýlega frétt New York
Times þar sem talsmaður saksóknaraembættisins í
Brooklyn gagnrýnir nýleg ummæli Belforts á Facebook-
síðu um að hann ætli að láta 100% af öllum gróðanum
vegna myndarinnar og bókanna renna til fórnarlamba
sinna og að það nægi vonandi til að greiða öllum þeim
sem eigi um sárt að binda vegna sín. Talsmaðurinn
efast um, í samtali við New York Times, að gróðinn af
bókunum og bíómyndinni eigi eftir að ná upp í 100
milljóna dollara skuld Belforts. Hann upplýsir enn
fremur að Belfort hafi ekki verið neitt sérstaklega
áhugasamur um að láta yfirvöld vita af útgáfusamningi
sínum og sölu á kvikmyndarétti – þau hafi þurft að
beita alls kyns brögðum til að ná í einhverja peninga.
Í grein New York Times kemur fram að Belfort og
yfirvöld eigi vissulega í samningaviðræðum eins og Bel-
fort segir í viðtalinu. Talsmaður saksóknaraembættisins
í Brooklyn segir að það muni gera allt sem í sínu valdi
stendur til að ná í þá peninga sem Belfort skuldi fórn-
arlömbum sínum.
JORDAN BELFORT
Óánægja með greiðslur
það er æsifréttablað eða virt blað. Það er
ekkert mál, ég þekki þig ekki. En ég er
viss um að þú gerir þér grein fyrir því
að 98% af því sem þú lest á netinu er
alls ekki satt. Þeir skálda hluti, og skrifa
hvað sem þeim dettur í hug í þeim til-
gangi einum að selja fleiri blöð.
Hreint út sagt þá hef ég endurgreitt
meira en nokkur í minni stöðu hefur
nokkru sinni greitt til baka. Ég hef gefið
ágóðann af bókunum mínum báðum og
kvikmyndinni hundrað prósent til baka og
mun halda áfram að borga fullt af pen-
ingum til baka. Ég er á síðustu metr-
unum í samningum við hið opinbera en
það gerist allt hægt þegar kemur að
stjórnvöldum. Fólk getur gagnrýnt mig ef
það vill en raunveruleikinn er sá að ég
hef gert meira en nokkur í minni stöðu
hefur gert.“
Að þessu sögðu er viðtalstíminn liðinn,
Belfort segist þurfa að sinna öðrum verk-
efnum og kveður.
Leonardo DiCaprio lék Jordan Bel-
fort í kvikmyndinni The Wolf of
Wall Street en myndin var tilnefnd
til nokkurra Óskarsverðlauna.
6.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
MERIDA JULIET JR FJALLAHJÓL
Stærðir:
Bremsur:
Gírskipting:
24“
V-BRAKE
Shimano
64.990 KR.
MERIDA BELLA BARNAHJÓL
MERIDA CLASSIC, HALLINGDAL LADY 3 MERIDA BELLA 20 BARNAHJÓL
Bremsur:
Stærð:
Fótbremsur
12–20”
Stærð:
Bremsur:
Gírar:
20”
V-BRAKE
Shimano 6-SPEED
Bremsur:
Gírskipting:
Gírar:
Dekk:
Shimano Coster
Shimano
3
28”
Léttgreiðslur4.165 KR.
í 6 mánuði
Léttgreiðslur 7.665 KR.
í 6 mánuði
Léttgreiðslur 10.832 KR.
í 6 mánuði
Léttgreiðslur 18.332 KR.
í 6 mánuði
24.990 KR.
109.990 KR. 45.990 KR.
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA