Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 59
6.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Sakamálasagan Verjandi Jakobs
eftir William Landay kemur út
um svipað leyti á öllum Norð-
urlöndum en bókin hefur þegar
selst í milljónum eintaka í
Bandaríkjunum, verið tilnefnd
til fjölda viðurkenninga og kvik-
myndarétturinn hefur verið
seldur.
Saksóknarinn Andy Barber
rannsakar morð á unglingspilti
en fljótlega vaknar grunur um
að 15 ára sonur hans, Jakob,
hafi framið morðið. Hlutverk
saksóknarans breytist í hlut-
verk verjanda. Í lok bókar
verður svo óvæntur snúningur.
Höfundurinn er lögfræð-
ingur að mennt og starfaði sem
saksóknari áður en hann helg-
aði sig skrifum.
Réttar-
farsdrama
Nú í apríl er von á endurútgáfu hinnar meist-
aralegu bókar Dægradvöl eftir Benedikt
Gröndal en Forlagið gefur út. Dægradvöl er
sjálfsævisaga sem Benedikt Gröndal skrifaði á
efri árum sínum á seinustu áratugum 19. aldar.
Bókin er full af bráðskemmtilegum og skörpum
mannlýsingum á bæði nafntog-
uðum persónum og einnig
óþekktu alþýðufólki, spaugileg-
um atvikum og athugasemdum
sem sýna hreinskilni og gam-
ansemi höfundar.
Gröndal var ýmislegt mót-
drægt í lífinu og hann dregur
ekkert undan í lýsingum á eigin
brestum en hann er líka mjög
viðkvæmur fyrir áliti annarra á
sér og verkum sínum. Lesandinn kynnist þannig
Gröndal vel í kostum hans og göllum og fer
ósjálfrátt að þykja vænt um skáldið og nátt-
úrufræðinginn fjölhæfa.
Yfirumsjón með útgáfunni hafði Guð-
mundur Andri Thorsson en Benedikt var
einmitt aðalpersóna síðustu skáldsögu hans,
Sæmd, sem þótti með betri bókum síðasta árs.
Guðmundur Andri Thorsson hefur umsjón
með nýrri úgáfu á Dægradvöl Gröndals.
Morgunblaðið/Kristinn
DÆGRADVÖL ENDURÚTGEFIN
Benedikt
Gröndal
Rússneski rithöfundurinn Lev Tol-
stoj er einn af risum bókmennta-
sögunnar. Nú er von á þremur bók-
um eftir hann í íslenskri þýðingu.
Þetta eru bækurnar Bernska,
Æska og Manndómur sem koma
út í þýðingu Áslaugar Agnars-
dóttur.
Bernska, sem kom út árið 1852,
var fyrsta skáldsaga Tolstojs sem
kom út á prenti en á eftir komu
Æska og Manndómur. Fyrstu
bækurnar tvær eru væntanlegar í
verslanir um þessa helgi en Mann-
dómur kemur út seinna á þessu
ári. Bækurnar, sem mynda þríleik,
eru ævisögulegar og þar blandast saman raunverulegir atburðir og skáldskapur, en að-
alpersóna þeirra er ungur drengur, Nikolenka.
Tolstoj var einungis 23 ára þegar Bernska birtist í rússnesku bókmenntatímariti en sagan
vakti mikla athygli og ljóst var að þarna væri á ferð höfundur sem óhætt væri að binda
vonir við.
Það er mikill fengur að þessum bókum á íslensku en það er bókafélagið Ugla sem gefur
þær út. Hjá sama bókaforlagi er einnig von á þýðingu Atla Magnússonar á Leynier-
indrekanum eftir Joseph Conrad.
TOLSTOJ Á ÍSLENSKU
Þrjár bækur Levs Tolstojs eru væntanlegar á íslensku.
Sigrún og Friðgeir – Ferðasaga
eftir Sigrúnu Pálsdóttur var
ótvírætt ein af bókum síðasta
árs og er nú komin út í kilju.
Sigrún segir sögu ungu lækn-
ishjónanna Friðgeirs Ólasonar
og Sigrúnar Briem sem fóru í
sérnám til Bandaríkjanna.
Haustið 1944 leggja þau af stað
heim til Íslands með ung börn
sín og eru farþegar á Goða-
fossi. Sigrún segir mikla örlaga-
sögu á einstæðan hátt og bókin
er gríðarlega áhrifamikil.
Áhrifamikil
örlagasaga
Ferðasaga,
spenna og
draumar
NÝJAR OG NÝLEGAR BÆKUR
HIN FRÁBÆRA BÓK SIGRÚNAR PÁLSDÓTTUR,
SIGRÚN OG FRIÐGEIR, ER KOMIN Í KILJU. VERJ-
ANDI JAKOBS ER GLÆPASAGA SEM HEFUR VAKIÐ
MIKLA ATHYGLI. AFBRIGÐI, ALÞJÓÐLEG MET-
SÖLUBÓK FYRIR UNGMENNI, ER KOMIN Í KILJU.
TÁKNMÁL DRAUMA, SEM ER VITANLEGA BÓK UM
DRAUMA, ER SVO KOMIN ÚT.
Bækur Veronicu Roth rokseljast
víða um heim og hafa verið þaul-
sætnar á metsölulista Eymundsson
yfir erlendar bækur. Nú er Afbrigði,
sem er fyrsta bók í æsispennandi
seríu, komin út í kilju. Bókin gerist í
Chicago framtíðarinnar þar sem all-
ir sextán ára einstaklingar þurfa að
ákveða hverju af hinum fimm fylkj-
um þeir ætli að tilheyra það sem
eftir er ævinnar.
Spenna fyrir
ungt fólk
Í bókinni Táknmál drauma eftir Sigrúnu Gunnarsdóttur
fjallar höfundur um eðli drauma. Meðal annars er
fjallað um drauma sem guðlega leiðsögn þar sem tákn-
málið er alltaf eins. Bókin veitir innsýn í heim þessa
táknmáls og skýrir hvernig hægt er að nota það til að
skilja drauma.
Höfundurinn hefur lengi unnið með drauma en hún
er reikimeistari, miðill og andlegur leiðbeinandi.
Eðli og táknmál drauma
*Hugsjónaelda er aldrei hægt aðslökkva. Kristín Marja Baldursdóttir BÓKSALA 26. MARS-1. APRÍL
Allar bækur
1 Hljóðin í nóttinniBjörg Guðrún Gísladóttir
2 Verjandi JakobsWilliam Landay
3 Kroppurinn er kraftaverkSigrún Daníelsdóttir
4 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
5 PrjónabiblíanGréta Sörensen
6 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
7 HeiðurElif Shafak
8 KonungsmorðiðHanne-Vibeke Holst
9 HHhHLaurent Binet
10 Stúlka með maga- kiljaÞórunn Erlu-ogValdimarsdóttir
Kiljur
1 Verjandi JakobsWillam Landay
2 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
3 HeiðurElif Shafak
4 KonungsmorðiðHanne-Vibeke Holst
5 HHhHLaurent Binet
6 Stúlka með magaÞórunn Erlu-ogValdimarsdóttir
7 Stelpa fer á barHelena S. Paige
8 Marco áhrifinJussi Adler Olsen
9 SjóræninginnJón Gnarr
10 Og fjöllin endurómuðuKhaled Hosseini
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Margar hendur vinna létt verk.