Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014
BÓK VIKUNNAR Ljóðasafn Steins Steinars hefur verið
endurútgefið og mun örugglega verða vinsæl fermingargjöf.
Þarna eru fjölmörg ljóð sem fylgja lesandanum alla ævi.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
F
eðgarnir Benedikt Jóhannesson og
Jóhannes Benediktsson hafa gef-
ið út úrval af þjóðsögum Jóns
Árnasonar. Í þessari fallegu bók
sem nefnist einfaldlega Íslenskar
þjóðsögur eru 127 sögur og 30 teikningar
eftir Freydísi Kristjánsdóttur.
„Við urðum þess áskynja að þjóðsagnasöfn
voru ekki á markaðnum,“ segir Jóhannes.
„Ég var búinn að leita víða, bæði í bókabúð-
um og annars staðar og fann loks eitt eintak
af þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar í Kolaport-
inu sem var snjáð og gamalt og kostaði
35.000 krónur. Eftir það fórum við feðgar að
ræða um það okkar á milli að það vantaði til-
finnanlega samantekt á íslenskum þjóðsög-
um.“
„Það er auðvitað ekki í lagi ef sá sem vill
eignast íslenskar þjóðsögur þarf að hafa
mikið fyrir því að hafa uppi á þeim,“ segir
Benedikt. „Það hafa komið út fín þjóðsagna-
söfn í vönduðum útgáfum, nú löngu uppseld,
en þau eru stór og fyrirferðarmikil og við
fengum þá hugmynd að safna bestu sögunum
saman í eina bók og ákváðum að hún skyldi
vera myndskreytt. Við reyndum að hafa valið
fjölbreytilegt og ég held að þarna séu allar
bestu þjóðsögurnar.“
Spurðir hvort þeir eigi sér uppáhalds-
þjóðsögu segir Jóhannes: „Galdra-Loftur er
í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Sú saga er
verulega vel skrifuð, snjöll og rammíslensk.
Svo er þarna saga sem ég þekkti ekki áður
sem heitir því skemmtilega nafni Barnkind
en ekki sauðkind. Íslenskur biskup fer í
heimsókn til þýskrar drottningar og hún
spyr hversu margar kinder (börn) hann eigi
og hann telur hana vera að tala um sauð-
kindur og segist eiga 200 en á haustin þurfi
að slátra helmingi þeirra því eitthvað þurfi
vinnumennirnir að borða.“
„Þarna er hver perlan á fætur annarri en
Sæmundur fróði hefur alltaf verið í miklu
uppáhaldi hjá mér,“ segir Benedikt og bætir
við: „Núna þegar ég hef verið að lesa allar
þjóðsögurnar aftur vekur athygli mína
hversu margar þeirra eru áberandi vel skrif-
aðar, það sem er einna síst skrifað er þegar
Jón Árnason er sjálfur að taka fróðleik sam-
an frá grunni en þar er sumt moðkennt.“
Í bókinni eru 30 teikningar gerðar af
Freydísi Kristjánsdóttur. „Við vorum alveg
einstaklega heppnir að finna Freydísi,“ segir
Jóhannes. „Við vorum búnir að leita lengi að
teiknara og höfðum mjög ákveðnar hug-
myndir um það í hvaða stíl myndirnar ættu
að vera. Við vorum að leita að ákveðnum
þjóðsagnastíl sem Freydís nær svo vel að
fanga. Hún lagði mikla vinnu í þessar mynd-
ir, þekkir þjóðsögurnar greinilega mjög vel
og lagðist í alls konar rannsóknir meðan hún
vann að myndunum. Hún kynnti sér til
dæmis klæðaburð til forna og sem dæmi um
nákvæmni hennar má nefna að þegar hún
vann að mynd við söguna Vígð Drangey þá
kannaði hún hvaða fuglategundir hefðu lík-
lega verið þar svo hún gæti teiknað réttu
fuglana. Freydís er mikill snillingur eins og
myndirnar sanna.“
Benedikt á lokaorðin: „Viðbrögðin við út-
gáfunni hafa verið mjög góð og margir hafa
haft orð á því að gaman sé að fá sögurnar í
fallegri bók og handhægu broti. Sumir hafa
þegar keypt mörg eintök til fermingargjafa,
þó að okkur gruni að sumir þeirra ætli líka
að glugga í hana sjálfir og rifja upp gömul
kynni.“
GALDRA-LOFTUR OG SÆMUNDUR FRÓÐI ERU Í UPPÁHALDI HJÁ FEÐGUNUM
Þjóðsagnaperlur í einni bók
Feðgarnir Jóhannes Benediktsson og Benedikt Jóhannesson með þjóðsagnabókina nýju og góðu.
Einnig má sjá plaköt sem sýna myndir úr bókinni en þær gerði Freydís Kristjánsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
BENEDIKT JÓHANNESSON OG
SONUR HANS JÓHANNES HAFA
GEFIÐ ÚT ÚRVAL ÞJÓÐSAGNA.
ÞAR ERU 127 SÖGUR AUK 30
TEIKNINGA EFTIR FREYDÍSI
KRISTJÁNSDÓTTUR.
Mér finnst gaman að lesa bækur. Bækur eru með fallegum myndum og
þær eru með sögum og maður sofnar strax þegar maður er búinn að
lesa.
Ég á margar uppáhaldsbækur, ein þeirra er Selur kemur í heim-
sókn. Hún er bara fyndin. Þar segir að köttur sé
dúfa, fíll er kallaður mús og svo er slanga sem er köll-
uð hvolpur. Það er allt kallað öðrum nöfnum. Skýj-
að með kjötbollum á köflum er líka skemmtileg.
Það rignir mat, ég verð svo svangur þegar þessi bók
er lesin fyrir mig. Ég held líka mikið upp á allar bæk-
urnar um Snúð og Snældu. Þau eru sæt. Skemmti-
legust finnst mér bókin Snúður og Snælda og
Lappi í skólanum. Snælda er alltaf að gera prakk-
arastrik.
Ég hef líka gaman af bókunum um Breka og Dreka, Breki og Dreki
í leikskóla og Undarlegar uppfinningar Breka og Dreka. Þeir
eru litlir prakkarar og svo eru myndirnar flottar. Stundum les ég þá
mörg kvöld í röð.
Í bókinni um Greppikló eru tröll og mús sem verða vinir, Greppikló
vill borða músina, en músin platar hann og textinn rímar. Skrímslabæk-
urnar, um Litla skrímslið og Stóra skrímslið, eru bara skemmti-
legar, skrímslin eru fyndin og skrítin. Ég sá einu sinni leikrit með þeim.
Í Helgi skoðar heiminn er lítill strákur sem ferðast um heiminn,
það er skemmtilegast þegar hann er hjá tröllunum á leiðinni heim. Ég
myndi vilja fara í svona ferð eins og Helgi í sveitinni hjá afa og ömmu á
Þokka, sem er hesturinn minn.
Í Pétri og úlfinum eru brúður. Þetta er saga um strák sem heitir
Pétur sem fór út í skóg og gleymdi að loka hliðinu og þá kom afi hans og
lokaði hliðinu. Þá hitti hann úlf, úlfurinn át öndina og Pétur náði úlf-
inum.
Í UPPÁHALDI
ÁSGEIR SKARPHÉÐINN
ANDRASON 6 ÁRA
Ásgeir Skarphéðinn hefur afskaplega gaman af því að lesa. Hann á fjöl-
margar uppáhaldsbækur og Helgi skoðar heiminn er ein þeirra.
Morgunblaðið/Kristinn
BÓKSALA 1.-31. MARS 2014
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Hljóðin í nóttinni : minningasagaBjörg Guðrún Gísladóttir
2 Marco-áhrifinJussi Adler-Olsen
3 Eldhúsið okkarMagnús Ingi Magnússon
4 30 dagar - leið til betri lífsstílsDavíð Kristinsson
5 5:2 mataræðið með Lukku í HappUnnur Guðrún Pálsdóttir
6 5:2 mataræðiðDr. Michael Mosley / Mimi Spencer
7 Stóra Disney heimilisréttabókinMargrét Þóra Þorláksdóttir ritst.
8 EftirköstinRhidan Brook
9 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir
10 PrjónabiblíanGréta Sörensen
Kiljur
1 Marco-áhrifinJussi Adler-Olsen
2 EftirköstinRhidan Brook
3 Fimmtíu gráir skuggarE L. James
4 Fimmtíu skuggar frelsisE L. James
5 KonungsmorðiðHanneVibeke-Holst
6 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
7 Fimmtíu dekkri skuggarE L. James
8 HHhHLaurent Binet
9 Gamlinginn sem skreið út umgluggann og hvarf
Jonas Jonasson
10 Ólæsinginn sem kunni að reiknaJonas Jonasson