Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Blaðsíða 40
Tíska Fáguð lína frá Moss © Craig McDean and Kate Moss *Kate Moss frumsýnir fatalínu sína fyrir Topshop í maí-hefti breska tískutímaritsins Vogue. Línan er væntanlegí verslanir Topshop síðar í maí. „Það eru sjö ár síðan égsýndi fyrstu línuna mína. Ég hef vaxið og lært mikið ímillitíðinni. Þessi lína verður örlítið fágaðri.“ Danskaofurfyrirsætan Freja Beha Erichsen klæðist fatnaði fráMoss í skemmtilegum tískuþætti í tímaritinu og Kate Moss sjálf prýðir forsíðuna. M anstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Smekk- maður eins og ég lendir ekki í slíkum hremmingum! Jú, gera það ekki allir? Ég man samt ekki eftir neinu hræðilegu, en á níunda áratugnum var ég krakki og þráði ekkert heitara en að klæða mig eins og Boy George! Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Ég á mjög erfitt með að plana fatakaup, ég sé hluti og fell fyrir þeim, sem gerist ekki oft, sem betur fer því þá væri ég blankur eða blankari. En ég er mjög praktískur held ég, flíkin þarf að vera klæðileg og úr góð- um efnum. Ég vil geta átt flíkina lengi svo ég kaupi fáar en betri flíkur. Áttu þér einhvern uppáhalds- fatahönnuð? Já, núna er ég mjög heitur fyrir hönnun austurríska fatahönnuðarins Peter Holzinger. Hann hannar undir nafninu Su- perated. Fötin hans hafa til dæm- is verið til sölu hjá Tískubúðinni p3 hér á Íslandi. Hvert er þitt eftirlætistísku- tímabil og hvers vegna? Ég verð eiginlega að segja að það tímabil sem við erum á núna sé í uppá- haldi vegna þess að í dag erum við á tímum endurvinnslu og við erum að taka allskonar inntak frá nær öllum tískutímabilum. Svo einhvern veginn er það bara í lagi að hafa persónulegan stíl í dag án þess að vera álitinn frík. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Andreas Kronthaler, eiginmaður Vivienne Westwood. Hverju er mest af í fataskápn- um? Í mínum fataskáp er mest af handprjónuðum peysum, ég hata að vera kalt og geng mjög mikið í prjónapeysum árið um kring. Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Ég held að ég sé frekar klassískur og afslappaður í fata- vali; skyrta, peysa, gallabuxur – tilbúið! Áttu þér uppáhaldsflík? Já, það er handprjónuð, mintugræn peysa með útprjónuðum svani framan á frá MAIAMI / BERLIN. Hvaðan sækir þú innblástur? Varðandi fataval þá er það nú yf- irleitt bara veðurfarið og sú stemning sem ég er í þann daginn sem veitir mér innblástur. Hvað er það síðasta sem þú festir kaup á fatakyns? Það voru mjög litaglaðir Puma-strigaskór sem ég keypti í Hamborg um daginn. Hjörtur í peysu með út- prjónuðum svani framan á frá MAIAMI / BERLIN. Peter Holzinger er einn af eftirlætis- fatahönnuðum Hjart- ar. Hann hannar undir merkinu Superated. Andreas Kronthaler er flott tískufyr- irmynd. Hjörtur þráði fatastíl Boy George á yngri árum. Á ERFITT MEÐ AÐ PLANA FATAKAUP Frekar afslappaður fatastíll HJÖRTUR MATTHÍAS SKÚLASON VÖRUHÖNNUÐUR HANNAR ÁHUGAVERÐA MUNI MEÐ FYRIRTÆKI SÍNU, HLUTAGERÐINNI. HJÖRTUR HEFUR ÁHUGA Á TÍSKU OG HÖNNUN EN HANN SÝNIR NÚ HÖNNUN SÍNA Í SPARK DESIGN SPACE Á KLAPPARSTÍG 33. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Morgunblaðið/Þórður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.