Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Qupperneq 40
Tíska
Fáguð lína frá Moss
© Craig McDean and Kate Moss
*Kate Moss frumsýnir fatalínu sína fyrir Topshop í maí-hefti breska tískutímaritsins Vogue. Línan er væntanlegí verslanir Topshop síðar í maí. „Það eru sjö ár síðan égsýndi fyrstu línuna mína. Ég hef vaxið og lært mikið ímillitíðinni. Þessi lína verður örlítið fágaðri.“ Danskaofurfyrirsætan Freja Beha Erichsen klæðist fatnaði fráMoss í skemmtilegum tískuþætti í tímaritinu og Kate
Moss sjálf prýðir forsíðuna.
M
anstu eftir einhverjum
tískuslysum sem þú
tókst þátt í? Smekk-
maður eins og ég
lendir ekki í slíkum hremmingum!
Jú, gera það ekki allir? Ég man
samt ekki eftir neinu hræðilegu,
en á níunda áratugnum var ég
krakki og þráði ekkert heitara en
að klæða mig eins og Boy George!
Hvað hefurðu helst í huga þegar
þú velur föt? Ég á mjög erfitt
með að plana fatakaup, ég sé hluti
og fell fyrir þeim, sem gerist ekki
oft, sem betur fer því þá væri ég
blankur eða blankari. En ég er
mjög praktískur held ég, flíkin
þarf að vera klæðileg og úr góð-
um efnum. Ég vil geta átt flíkina
lengi svo ég kaupi fáar en betri
flíkur.
Áttu þér einhvern uppáhalds-
fatahönnuð? Já, núna er ég mjög
heitur fyrir hönnun austurríska
fatahönnuðarins Peter Holzinger.
Hann hannar undir nafninu Su-
perated. Fötin hans hafa til dæm-
is verið til sölu hjá Tískubúðinni
p3 hér á Íslandi.
Hvert er þitt eftirlætistísku-
tímabil og hvers vegna? Ég verð
eiginlega að segja að það tímabil
sem við erum á núna sé í uppá-
haldi vegna þess að í dag erum
við á tímum endurvinnslu og við
erum að taka allskonar inntak frá
nær öllum tískutímabilum. Svo
einhvern veginn er það bara í lagi
að hafa persónulegan stíl í dag án
þess að vera álitinn frík.
Hvaða þekkta andlit finnst þér
með flottan stíl? Andreas
Kronthaler, eiginmaður Vivienne
Westwood.
Hverju er mest af í fataskápn-
um? Í mínum fataskáp er mest af
handprjónuðum peysum, ég hata
að vera kalt og geng mjög mikið í
prjónapeysum árið um kring.
Hvernig myndir þú lýsa þínum
fatastíl? Ég held að ég sé frekar
klassískur og afslappaður í fata-
vali; skyrta, peysa, gallabuxur –
tilbúið!
Áttu þér uppáhaldsflík? Já, það
er handprjónuð, mintugræn peysa
með útprjónuðum svani framan á
frá MAIAMI / BERLIN.
Hvaðan sækir þú innblástur?
Varðandi fataval þá er það nú yf-
irleitt bara veðurfarið og sú
stemning sem ég er í þann daginn
sem veitir mér innblástur.
Hvað er það síðasta sem þú
festir kaup á fatakyns? Það voru
mjög litaglaðir Puma-strigaskór
sem ég keypti í Hamborg um
daginn.
Hjörtur í peysu með út-
prjónuðum svani framan
á frá MAIAMI / BERLIN.
Peter Holzinger er
einn af eftirlætis-
fatahönnuðum Hjart-
ar. Hann hannar undir
merkinu
Superated.
Andreas
Kronthaler er
flott tískufyr-
irmynd.
Hjörtur
þráði fatastíl
Boy George
á yngri árum.
Á ERFITT MEÐ AÐ PLANA FATAKAUP
Frekar
afslappaður
fatastíll
HJÖRTUR MATTHÍAS SKÚLASON VÖRUHÖNNUÐUR
HANNAR ÁHUGAVERÐA MUNI MEÐ FYRIRTÆKI SÍNU,
HLUTAGERÐINNI. HJÖRTUR HEFUR ÁHUGA Á TÍSKU OG
HÖNNUN EN HANN SÝNIR NÚ HÖNNUN SÍNA Í SPARK
DESIGN SPACE Á KLAPPARSTÍG 33.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður