Morgunblaðið - 06.05.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
Á gervihnattarmynd sem tekin var
yfir landinu 1. maí síðastliðinn má
sjá að suðvesturhorn landsins er nú
orðið snjólaust að mestu. Snjór er
ennþá nokkuð áberandi í öðrum
landshlutum.
„Ég var að enda við að skoða
mynd frá 1. maí á seinasta ári til
samanburðar og við fyrstu sýn virð-
ist snjómagnið vera ósköp keimlíkt,“
segir landfræðingurinn Ingibjörg
Jónsdóttir um gervihnattarmynd-
ina. „En þá er ég aðeins að skoða
hvar snjórinn er. Ég er ekki með töl-
ur um það hversu þykkur hann er í
dag, en ég hef heyrt að á sumum
stöðum séu miklir skaflar eftir.“
Gervihnattarmyndin af landinu er
svokölluð MODUS-gervihnattar-
mynd en samkvæmt upplýsingum
Ingibjargar nást þær af jörðinni
nokkrum sinnum á dag. Það er
bandaríska geimferðastofnunin
NASA sem á gervihnettina Terra og
Aqua, sem taka myndirnar, en þar
er myndunum safnað og stofnunin
miðlar myndunum svo í rauntíma til
notenda um allan heim. Notagildi
myndanna er margvíslegt, til rann-
sókna á veðri, gróðurfari og hafinu,
en einnig við eftirlit með ýmsum at-
burðum, svo sem sandstormum og
dreifingu gjósku í eldgosum.
Hnettirnir hafa verið á braut um
jörðu í um tólf ár, og gagnasafnið því
orðið viðamikið. Myndirnar eru að-
gengilegar á netinu og eru m.a. not-
aðar við kennslu og rannsóknir við
Jarðvísindastofnun Háskólans, en
Ingibjörg er dósent þar.
Samkvæmt spá Veðurstofu Ís-
lands verður sólríkt og hlýtt í flest-
um landshlutum eftir hádegi í dag og
á morgun. Er til að mynda spáð allt
að tólf stiga hita í Reykjavík í hádeg-
inu á morgun og átta stigum á Ak-
ureyri. Hinsvegar fer kólnandi eftir
miðja viku með norðlægum áttum.
Von er á stöku skúrum eða éljum um
helgina og þá sérstaklega á Norður-
landi, en samkvæmt langtímaspám
verður hiti við frostmark á Akureyri
í hádeginu á laugardaginn.
audura@mbl.is
Snjómagn á landinu 1. maí síðastliðinn var svipað og í fyrra Spáð rigningu og éljum um helgina
Fer kólnandi eftir miðja vikuna
MODUS-gervihnattarmynd
Tuttugu og tvö
mál eru á dag-
skrá Alþingis í
dag, en þing-
fundur hefst kl.
13.30. Einar K.
Guðfinnsson, for-
seti Alþingis,
segir að málin
sem rædd verði
séu mál sem hafi
verið í nefndum,
og eru því nú að koma til annarrar
eða síðari umræðu.
Áætlað er að þingið ljúki störfum
á föstudaginn í næstu viku. Í starfs-
áætlun þingsins er gert ráð fyrir
fjórum þingfundardögum til við-
bótar, auk tveggja nefndardaga,
sem báðir verða í þessari viku.
Einar segir að ekkert hafi verið
rætt um framlengingu á störfum
þingsins eða um hugsanlegt sum-
arþing. sgs@mbl.is
Ekkert búið að ræða
um framlengingu
eða sumarþing
Einar K.
Guðfinnsson
Búið er að fjarlægja þyrlu Norður-
flugs, sem brotlenti á Eyjafjalla-
jökli, af jöklinum. Ragnar Guð-
mundsson, stjórnandi rannsóknar
hjá Rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa, segir að skyggni á Eyja-
fjallajökli og leiðindaveður um
helgina hafi leitt til þess að ekki var
hægt að sækja flakið fyrr en í gær.
„Við fórum með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar og sóttum vélina upp á
jökul og fórum með hana að Skóg-
um,“ segir Ragnar. Þaðan átti að
flytja flakið í skýli á vegum rann-
sóknarnefndarinnar í gærkvöldi.
Búast má við að rannsóknin taki
nokkrar vikur. sgs@mbl.is
Þyrlan flutt af Eyja-
fjallajökli í gær
Engin niðurstaða fékkst í kjara-
deilu Félags íslenskra atvinnuflug-
manna og Icelandair á fundi hjá
sáttasemjara í gær. Fundurinn
hófst klukkan 13 og stóð í um þrjár
klukkustundir. Næsti fundur í deil-
unni verður haldinn klukkan níu í
fyrramálið.
Um 300 flugmenn starfa hjá Ice-
landair. Náist ekki samningar hafa
flugmenn Icelandair boðað röð
tímabundinna verkfalla. Hið fyrsta
hefst föstudaginn 9. maí og mun
standa í tólf klukkutíma frá kl. 6
um morguninn til kl. 18 um kvöldið.
Fundað í kjaradeilu
flugmanna og Ice-
landair á morgun
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það gæti farið að vefjast verulega fyrir þeim sem ætla út
að borða í höfuðborginni hvert skal halda. Mikil gróska
er í veitinga- og skemmtistaðageiranum um þessar
mundir og nýir staðir spretta upp víða.
Nýverið var veitingastaðurinn Kjallarinn opnaður í
kjallara hússins við Aðalstræti 2 í miðborginni. Þar var
áður Rub 23 sem er nú aðeins á Akureyri. Eigendur
Kjallarans eru þeir sömu og Steikhússins í Tryggva-
götu. Tómas Kristjánsson, einn eigenda, segir Kjall-
arann ólíkan Steikhúsinu að mörgu leyti, þar verði aðal-
áherslan á fisk og sushi á meðan kjötið er í meirihluta á
Steikhúsinu.
Hann hefur ekki áhyggjur af því að offramboð sé af
veitingastöðum í miðborginni, alltaf sé pláss fyrir góða
staði. „Það hafa orðið mjög miklar breytingar í þessum
geira undanfarin ár, breytingar af hinu góða. Fjölgun
ferðamanna er ekkert að stoppa, þessir gestir þurfa að
borða og það kallar á fleiri og fjölbreyttari staði,“ segir
Tómas.
Þá er Icelandic Fish and Chips flutt úr húsinu við
Tryggvagötu 8 og verður brátt opnað á nýjum stað, ekki
langt frá, í Hafnarhvoli, Tryggvagötu 11. Nýr staður var
opnaður í síðustu viku í Tryggvagötu 8, hann nefnist
Reykjavík Fish og eru eigendur hans þeir sömu og
Humarhússins.
„Við bjóðum upp á léttan fisk; plokkfisk, sjávar-
réttagratín og djúpsteiktan fisk borinn fram á breskan
máta. Þetta er heiðarlegur skyndibitafiskur og ekkert
verið að reyna að finna upp hjólið,“ segir Ottó Magn-
ússon, einn eigandi Reykjavík Fish.
Kaffihús og ölhús í Hafnarstræti
Á horninu í Hafnarstræti 5, þar sem
skemmtistaðurinn Café Amsterdam var lengi til húsa,
standa nú yfir miklar framkvæmdir en þar verður opnað
Fredriksen Ale House um næstu mánaðamót. Á daginn
verður staðurinn kaffihús en á kvöldin krá með lifandi
tónlist, hann er á tveimur hæðum og tekur 120 manns í
sæti.
Að staðnum standa þeir Helgi Tómas Sigurðarson,
Sigurður Ólason og Arnar Svansson en þeir eru líka með
Kónginn sportbar í Grafarholti. „Þetta er stórglæsilegt
hús og gaman að opna hér stað. Ég hef engar áhyggjur
af því að það sé of mikið framboð komið af stöðum í bæn-
um, við verðum líka með okkar sérstöðu,“ segir Helgi.
Fleiri nýir staðir eru í miðborginni; Jörundur
hundadagakonungur er nýr alhliða matsölustaður í
Austurstræti 22. Nýtt kaffihús sem tekur 150 manns í
sæti á að opna á Vesturgötunni, í húsi Fríðu frænku,
með vorinu. Það verður tíundi veitingastaðurinn við
Grófartorg. Í haust á svo að opna nýjan veitingastað í
Austurstræti 16, þar sem Reykjavíkurapótek var lengst-
um til húsa.
Hafa engar áhyggjur
af offramboði staða
Tveir nýir fiskistaðir og einn gamall flyst á nýjan stað
Tryggvagata 8 Reykjavík Fish er nýr staður í skyndibitastíl og býður m.a. upp á fisk og franskar á breska vísu.
Vinnslustöðin í
Vestmanna-
eyjum hefur
stefnt Bjarna
Benediktssyni
fjármálaráð-
herra, fyrir hönd
ríkisins, vegna
sérstaka veiði-
gjaldsins sem
fyrirtækið
greiddi fyrir
fiskveiðiárið 2012-2013. Fyrirtækið
krefst þess að ríkissjóður endur-
greiði því 516 milljónir króna og
byggir kröfu sína á því að gjaldið
brjóti í bága við eignarréttar-
ákvæði stjórnarskrárinnar og með
álagningunni væri gengið út fyrir
mörk löglegrar skattheimtu, eins
og fram kom í frétt í Morgun-
blaðinu í gær.
Um margt ósanngjarnt
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra var í gær spurður hvort
hann teldi að stefna Vinnslustöðv-
arinnar ætti við rök að styðjast:
„Ég á eftir að skoða þetta mál. Ég
á líka eftir að heyra í ríkislögmanni
um stefnuna.
Í þessu máli mun ríkið vitanlega
taka til varna og því ekki rétt að tjá
sig efnislega um það á þessu stigi,“
sagði Bjarni.
„Eitt er að skattar og gjöld séu
lögð á með sanngjörnum hætti,“
sagði Bjarni, „og ég hef talað fyrir
því undanfarin ár að þetta sérstaka
veiðileyfagjald, sem taki ekki til af-
komu í einstökum tegundum, væri
um margt ósanngjarnt. En það
þýðir ekki endilega að það brjóti
gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar.
Það þurfum við bara að taka til sér-
stakrar skoðunar.“ agnes@mbl.is
Ríkið mun
taka til
varna
Bjarni
Benediktsson
Fyrir dómstóla Tekist er á um
greiðslu sérstaka veiðigjaldsins.