Morgunblaðið - 06.05.2014, Side 11

Morgunblaðið - 06.05.2014, Side 11
Morgunblaðið/Malín Brand Á söguslóðum Reynir Hlíðar og Tara á Álftanesi þar sem þau ganga daglega um magnaðar söguslóðir. Reynir vill hvergi annars staðar búa en á nesinu. landinu og töluvert er af stríðs- minjum allt í kringum húsið og Bes- sastaðatjörn. Reynir segir að á gönguferðunum spinnist skemmti- legar sögur tengdar þessum minj- um, sögur sem ef til vill eru ekki all- ar heilagur sannleikur en eru þó skemmtilegar. „Þannig var að Bret- arnir byggðu varðturninn,“ segir Reynir, „en þeir byggðu hann bara upp að brjósti og þarna stóðu greyin í öllum veðrum. Svo kom Kaninn og þá var byggt yfir, sett þak á og hitari í skúrinn“, segir Reynir og hlær. Loftvarnabyrgi í garðinum María á Jörfa man vel eftir þessum árum og er sammála Reyni um að sagan sé góð en þó er hún nokkuð viss um að Bretar hafi byggt sinn varðturn með þaki. Herinn reisti braggana í landi föður hennar sem bjó á bænum Grund. „Þeir tóku jörðina hans, tóku hér túnið við Bessastaðatjörn og við Seiluna en slepptu samt eyr- inni. Ætli þetta hafi ekki verið um sjö hektarar að stærð,“ segir María um braggabyggðina sem þar reis á skömmum tíma. „Svo var byggður hér rosalega stór bíóskáli og sam- komuhús fyrir alla þessa menn. Þar voru steyptir grunnar. Annað stórt hús var líka steypt við hliðina og þar var matsalurinn,“ segir hún. Allt sést þetta vel á jörðinni. Við Reynir bregðum okkur út í garð með Maríu sem sýnir okkur heilt loftvarnabyrgi sem staðið hefur óbreytt frá því herinn reisti það árið 1940. Faðir Maríu nýtti það sem kartöflugeymslu síðar en fjöl- skyldan þurfti að hlaupa þangað niður þegar loftvarnaflauturnar gáfu til kynna að þýsk flugvél nálg- aðist. Minningar Maríu um herinn eru góðar þrátt fyrir að aðstæður hafi verið sérstakar. Bretinn fór og fjölskyldan fékk að eiga húsin. „Hann seldi braggana til niðurrifs. Þetta var það mikill peningur að hann gat fengið sér traktor,“ segir hún og brosir. Það er ljóst að gönguferðir eldri borgara um sögu- slóðir Álftaness eiga eftir að skapa góðan sagnabrunn. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014 Það er enn hægt að sjá og í raun finna fyrir bíóbragganum við hús þeirra Maríu og Bjarna á Jörfa. Bragginn er í rauninni þarna enn þó að fátt sjást af honum annað en skor- steinninn. Jörðin bungar þarna því undir henni er bragginn þar sem hermennirnir í Brighton-kampi sóttu kvikmyndasýningar. Þeir dönsuðu á Bjarnastöðum og báðu kon- urnar í kvenfélaginu sem héldu dansiböllin að geyma byssurnar fyrir sig á loftinu meðan þeir dönsuðu. Ekkert var verið að flækja hlutina þegar böll voru annars vegar hjá her- mönnunum í Brighton-kampi á Álftanesinu. BÍÓBRAGGINN VINSÆLL Skorsteinninn á bíóbragg- anum varð eftir. Byssur, böll og bíó Ljósmynd/Reynir Hlíðar Annað sjónarhorn Félagar út gönguhópi eldri borgara á Álftanesi í kaffipásu á Skansinum, fyrrverandi aðsetri Óla Skans. Vel sést til Reykjavíkur þaðan. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I volvo.is volvo v40 rennilegt útlit og framúrskarandi tækninýjungar. kynntu þér volvo v40, öruggasta bíl í heimi. Volvo V40 D2 115 hö, tog 285 Nm, 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 3,4 l/100 km. CO2 88 g/km. Volvo V40 D2 115 hö, tog 285 Nm, 6 þrepa sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 3,9 l/100 km. CO2 102 g/km. Volvo V40 búinn D2 dísilvél uppfyllir þau skilyrði sem þarf til að fá frítt í stæði í miðbæ Reykjavíkur í 90 mínútur í senn. Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. KOMDU OG PRÓFAÐU VOLVO V40, ÖRUGGASTA BÍL Í HEIMI VOLVO V40 FÉKK HÆSTU EINKUNN SEM HEFUR VERIÐ GEFIN Í ÖRYGGISPRÓFUNUM Euro NCAP. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17 OG LAUGARDAGA KL. 12-16. Volvo v40 beinskiptur frá 4.590.000 kr. sjálfskiptur frá 5.090.000 kr. lifðu í lúxus - veldu volvo volvo.is V40

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.