Morgunblaðið - 06.05.2014, Síða 12

Morgunblaðið - 06.05.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014 Áþreifanleg vellíðan EDDA HEILDVERSLUN Stofnsett 1932 Gæði og glæsileiki Heildverslunin Edda hefur um áratuga skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni. Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt sem minni nota allt lín frá okkur. Bjóðum einnig upp á lífrænt lín. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210 eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is 82 ÁRA EDDA Heildverslun Draumur um góða nótt Heildverslun með lín fyrir: • hótelið • gistiheimilið • bændagistinguna • veitingasalinn • heilsulindina • hjúkrunarheimilið • þvottahúsið • sérverslunina Innanríkisráðuneytið tekur undir þá gagnrýni að vinnsla og geymsla gagna líkt og þeirra sem um ræðir í máli hælisleitenda eigi ekki að fara fram á opnu drifi tölvukerfis. Þeirri vinnureglu hefur þegar verið breytt til að tryggja aukið öryggi gagna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í frétt á vef innanríkisráðuneytisins. „Í framhaldi af umfjöllun um úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur og dóm Hæstaréttar sem varða upplýs- ingagjöf blaðamanna vegna gagna um málefni hælisleitanda í svokölluðu lekamáli vill innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram: Rannsókn málsins af hálfu yfir- valda er ekki lokið. Niðurstöður Hér- aðsdóms Reykjavíkur og síðar Hæstaréttar tengjast einungis þeirri kröfu að blaðamenn upplýsi um heim- ildarmenn sína. Ráðuneytið ítrekar því að á meðan rannsókn málsins stendur yfir getur hvorki ráðherra né einstaka starfsmenn tjáð sig um það efnislega. Samantektir ráðuneytisins eins og sú sem fjallað er um í dómi Hæsta- réttar eru ekki minnisblöð og hafa ekki slíka stöðu í ráðuneytinu þrátt fyrir að einstaka fjölmiðlar og ein- staklingar hafi fjallað um málið með þeim hætti. Slíkar samantektir um feril mála eru alvanalegar í stjórn- sýslunni og sú samantekt sem í um- ræðunni hefur verið er í engu frá- brugðin þessari almennu vinnureglu. Fól hún einungis í sér hefðbundna lýsingu á staðreyndum máls, röð af- greiðslna undirstofnana ráðuneytis- ins og rök lögmanna. Ráðuneytið ítrekar að engin meið- andi ummæli voru í þeirri samantekt, líkt og einhverjir hafa haldið fram og jafnvel verið dreift af einhverjum sem niðurstöðu ráðuneytisins. Ráðu- neytið hefur áður harmað þá umræðu enda hvergi í gögnum ráðuneytisins að finna slíkar staðhæfingar um um- ræddan hælisleitenda eins og áður hefur verið skýrt tekið fram. Ráðu- neytið tekur undir þá gagnrýni að vinnsla og geymsla slíkra gagna eigi ekki að fara fram á opnu drifi tölvu- kerfis. Þeirri vinnureglu hefur þegar verið breytt til að tryggja aukið ör- yggi gagna. Um leið skal minnt á að allir starfsmenn ráðuneytisins eru bundnir trúnaði um mál sem til með- ferðar eru í ráðuneytinu,“ segir í frétt á vef ráðuneytisins í gær. Skjal hefði ekki átt að geyma á opnu drifi Morgunblaðið/Golli Við fylgjum hins vegar alþjóðlegri skilgreiningu sem er sú að ef við- komandi er að leita að vinnu og getur hafið störf innan tveggja vikna þá er viðkomandi atvinnulaus. Þá skiptir ekki máli hvort viðkomandi er í námi eða er að gera eitthvað annað. Hvað varðar sveiflurnar á mældu atvinnuleysi hjá okkur þá skýrast þær meðal annars af miklum hreyf- anleika á vinnumarkaði og mikilli at- vinnuþátttöku ungs fólks. Atvinnu- þátttaka ungs fólks er miklu meiri en í öðrum Evrópulöndum og er yfir 70% ungs fólks á vinnumarkaði og rúmlega 60% námsmanna á vinnu- markaði. Atvinnuleysi er á niðurleið en sennilega hefur kennaraverkfallið haft þau áhrif að skólafólk hefur far- ið fyrr af stað að leita sér að vinnu en vanalega,“ segir Lárus um þróunina. Aðferðin leiði til vanmats Eins og grafið hér fyrir ofan sýnir er mælt atvinnuleysi hjá Vinnumála- stofnun í mörgum tilfellum lægra en hjá Hagstofunni. Spurður hvort því megi líta svo á að Vinnumálastofnun vanmeti atvinnuleysið segir Lárus að það sé ekki fjarri lagi. „Vinnumálastofnun mælir þá sem uppfylla skráninguna, þannig að þeir eru frátaldir sem falla út af skránni. Við hjá Hagstofunni myndum því að öllu jöfnu telja að atvinnuleysið hjá okkur væri hærra – að skráð at- vinnuleysi hjá Vinnumálastofnun myndi vanmeta atvinnuleysið. Í þessum orðum felst ekki gagnrýni á aðferð Vinnumálastofnunar, þar er einfaldlega beitt annarri aðferð. Vinnumálastofnun er til dæmis með svonefnt hlutaatvinnuleysi, sem nær yfir þá sem eru í hlutastarfi en fá atvinnuleysisbætur að hluta. Hjá okkur eru þeir sem hafa vinnu skráðir í vinnu, óháð því hvort um hlutastarf er að ræða,“ segir Lárus um hinar ólíku mælingaraðferðir Hagstofunnar og VMST. Athygli vekur að samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar voru 47.200 að jafnaði utan vinnu- markaðar á Íslandi á fyrstu þremur mánuðum ársins, 47.700 sömu mán- uði í fyrra og 47.033 að meðaltali þessa mánuði 2012. Telst sá munur að líkindum innan skekkjumarka. Sé litið lengra aftur var meðal- fjöldi fólks utan vinnumarkaðar þessa mánuði 46.233 árið 2011, 44.433 árið 2010 og 45.733 árið 2009. Margir utan vinnumarkaðar Samkvæmt þessu voru því fleiri utan vinnumarkaðar á þessu tímabili í ár en sömu mánuði 2010 sem jafnan er talið hafa markað botn niður- sveiflunnar eftir efnahagshrunið. Ber í þessu efni að hafa í huga að landsmönnum hefur fjölgað á tíma- bilinu, úr 319.368 hinn 1. janúar 2009 í 325.671 hinn 1. janúar 2014. Loks má nefna að samkvæmt Vinnumálastofnun voru 1.620 há- skólamenntaðir án vinnu í mars 2013, borið saman við 1.571 í sama mánuði á þessu ári. Til samanburðar voru 4.166 grunnskólamenntaðir án vinnu í mars 2013, 3.516 í mars sl. Telur atvinnuleysið vanmetið  Deildarstjóri hjá Hagstofu Íslands telur Vinnumálastofnun vanmeta fjölda atvinnulausra á Íslandi  Hagstofan fylgi alþjóðlega viðurkenndum aðferðum  Atvinnulausir geti fallið af skrá hjá VMST Morgunblaðið/Golli Útivinna í blíðunni Áætlað er að 7.800-11.200 manns séu án vinnu. Ný staða » Atvinnuleysi á Íslandi um þessar mundir er hátt í sögu- legu samhengi og hefur verið það allt frá því haustið 2008. » Á tímabilinu frá 1. júlí 2012 til 31. mars sl. voru aðfluttir er- lendir ríkisborgarar 2.890 fleiri en brottfluttir. » Slíkur flutningsjöfnuður hef- ur ekki sést áður á Íslandi þegar atvinnuleysi er jafn mikið. » Samkvæmt tölum Hagstof- unnar voru að jafnaði 10.500 án vinnu á fyrsta ársfjórðungi í ár. Mælingar á atvinnuleysi Á landinu öllu frá ársbyrjun 2012 Heimildir: Hagstofa Íslands, Vinnumálastofnun j m m j s nf a j á o d 2012 j m m j s nf a j á o d 2013 j mf 2014 9% 8% 7% 6% 5% 4% 3% 2% 1% 0% Vinnumálastofnun Vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands 6,7 % 6,1 % 7,2 % 4,5 % 8,8 % 7,5 % 4,3 % 6,8 % 5,6 % 4,3 % 5,4 % 4,5 % BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Atvinnuleysi er í raun meira en ætla má út frá tölum Vinnumálastofnunar og munar þar nokkur þúsund manns. Þetta má ráða af svörum Lárusar Blöndal, deildarstjóra atvinnu, lífs- kjara og mannfjölda hjá Hagstofu Íslands, en tilefnið er nýjar tölur í svonefndri vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar sem framkvæmd er í hverri einustu viku ársins. Þátttakendur eru á aldrinum frá 16-74 ára og er að jafnaði um 80% svörun. Fjöldi svara er um og yfir 300 í hverri viku. Um er að ræða handahófskennt úrtak úr þjóðskrá og er þýðið svo vigtað, þannig að það endurspegli aldurshópa og kyn. Lárus segir Hagstofuna fylgja al- þjóðlega viðurkenndum aðferðum og fara t.d. sömu leið við mánaðarlega áætlun og Svíar, Finnar, Danir og Norðmenn við að áætla atvinnuleys- ið. Þá sé beitt sömu aðferð og hjá Eurostat, hagstofu ESB. Samkvæmt könnuninni voru 11.200 án vinnu í mars, borið saman við þá áætlun Vinnumálastofnunar að atvinnulausir hafi verið 7.106 að meðaltali í mars. Samkvæmt könn- uninni voru 7.800 án vinnu í febrúar en 7.213 að meðaltali hjá Vinnumála- stofnun. Það eru miklar sveiflur í Hagstofutölunum. Samkvæmt þeim voru 12.400 án vinnu í janúar en Vinnumálastofnun áætlar að 7.190 hafi þá að meðaltali verið án vinnu. Beita ólíkum aðferðum Lárus segir Hagstofuna og Vinnu- málastofnun fara mismunandi leiðir við að áætla atvinnuleysið. „Aðferðin er mjög ólík. Vinnu- málastofnun mælir skráð atvinnu- leysi, þ.e. telur þá sem uppfylla skil- yrði skráningarinnar. Það er breytilegt eftir tímabilum. Á tímabili var réttur til atvinnuleysisbóta fjög- ur ár. Það tímabil var svo stytt og við það féllu margir út af atvinnuleysis- skrá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.