Morgunblaðið - 06.05.2014, Side 19

Morgunblaðið - 06.05.2014, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014 Aðeins eitt íbúðarhús er eftir á stóru byggingarsvæði í Fikirtepe-hverfi í Istanbúl, öll önnur mannvirki hafa verið fjarlægð. Eigandinn neitar að fara. Nafn manns- ins hefur ekki verið gefið upp en hann er kallaður AD í tyrkneskum fjölmiðlum. AD krefst þess að bygginga- fyrirtækið geri við sig skýran samning um bætur. AFP Staðfastur húseigandi í Istanbúl Síðustu kannanir fyrir þing- og sveitarstjórnarkosningarnar í Suð- ur-Afríku á morgun benda til að Afr- íska þjóðarráðið, ANC, muni halda meirihluta sínum á þingi en fá ívið minna fylgi en 2009 eða 63,9%. Helsta flokki stjórnarandstæðinga, Lýðræðisbandalaginu, er spáð góðri kosningu, 23,7%, en var síðast með 16,7%. Leiðtogi flokksins, Helen Zille, er hvít. Um 89% S-Afríkumanna eru blökkumenn, 9,5% hvít og hinir af blönduðu kyni. ANC, flokkur Nel- sons heitins Mandela, nýtur enn góðs af tengslunum við þjóðhetjuna en hefur nú verið við völd í 20 ár. Vaxandi spilling flokksbrodda, hrottaskapur gegn verkfalls- mönnum og fleiri hneyksli hafa vald- ið honum miklum vanda. Nýlega kom í ljós að Jacob Zuma forseti lét gera umbætur á sveitasetri sínu sem kostuðu 215 milljónir randa, um 2.200 milljónir króna, úr ríkissjóði. Löng valdatíð hefur spillt ANC og gert ráðamenn værukæra, þannig gengur hægt að bæta kjör fátækra blökkumanna. Hagvöxtur hefur minnkað, var aðeins 2,3% í fyrra, skráð atvinnuleysi er um 25% en mun meira í reynd. Fyrir tveim ár- um var róttækur vinstrisinni, Julius Malema, sem stýrði ungliðahreyf- ingu ANC, rekinn, m.a. fyrir að gagnrýna æðstu menn. Hann hefur nú stofnað nýjan flokk sem spáð er 4,7% fylgi. kjon@mbl.is ANC spáð sigri í Suður-Afríku  Hörð gagnrýni vegna spillingar valdamanna og lélegra kjara svartra AFP Ósátt Liðsmenn EFF, flokks Malema, á kosningafundi í Pretoríu á sunnu- dag með eftirlíkingu líkkistu sem skreytt er mynd af Jacob Zuma forseta. Óþreyja blökkumanna » Hvítir ráða enn mestu í efnahagslífinu. Uppsöfnuð reiði og vonleysi svartra vegna lélegra kjara er sögð geta ýtt mjög undir ókyrrð og verkföll. » Krafa Malema um að námur verði þjóðnýttar, menntun verði ókeypis og lögskipuð verði lágmarkslaun endur- speglar óþreyju margra svartra. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Boko Haram, samtök íslamskra hryðjuverkamanna í Nígeríu, hafa viðurkennt að hafa rænt hundruðum skólastúlkna í apríl. „Ég rændi stúlkunum ykkar,“ segir leiðtogi Boko Haram, Abubakar Shekau, í myndskeiði sem birt var í gær. Sagði hann að stúlkurnar yrðu seldar á uppboði en þær eru bæði úr röðum kristinna og múslíma. Alls var 276 skólastúlkum rænt í bænum Chibok í Borno í norðurhluta landsins. Um 50 þeirra tókst að flýja en enn eru 223 í haldi mannræningj- anna. Mikil reiði er í Nígeríu vegna málsins, fjöldi fólks hefur tekið þátt í kröfugöngum þar sem meint að- gerðaleysi stjórn- valda hefur verið gagnrýnt. Forseti landsins, Good- luck Jonathan, hefur skipað hernum að hafa uppi á stúlkunum og beðið Banda- ríkin um aðstoð. Naomi Mutah, áhrifakona frá Chibok, sem tók þátt í að skipuleggja mótmælagöngur í höfuðborginni Abuja, í síðustu viku var í gær handtekin. Er fullyrt að það hafi verið gert að kröfu for- setafrúarnnar, Patience Jonathan. Er hún sögð hafa sakað aðgerða- sinna um að hafa sviðsett mannránið til að sverta ríkisstjórnina. Stúlkurnar verða seldar  Leiðtogi Boko Haram gengst við mannráninu í apríl  223 stúlkur frá smábæ í Nígeríu enn í haldi ræningja Blóði stokknir » Boko Haram-liðar hafa árum saman staðið fyrir hryðjuverk- um í Nígeríu og þúsundir manna hafa fallið, þar af um 1.500 á þessu ári. » Um helmingur Nígeríu- manna er kristinn, hinir eru múslímar sem búa aðallega í norðurhlutanum. » Goodluck Jonathan er krist- inn en trúflokkarnir skiptast á um forsetaembættið. Spilling einkennir efnahagslífið. Goodluck Jonathan Kristján Jónsson kjon@mbl.is Didier Burkhalter, forseti Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, og núverandi forseti Sviss, er væntanlegur til Moskvu á morgun til viðræðna. Ráðamenn í Rússlandi og Þýskalandi hafa hvatt ÖSE til að reyna að miðla málum í deilum stjórnvalda í Kænugarði og aðskiln- aðarsinna. Úkraínuher er smám saman að ná tökum á miðborg Slavj- ansk í austurhluta landsins þar sem um 800 aðskilnaðarsinnar, hlynntir Rússum, hafa tekið ýmsar stjórnar- byggingar. Vitað er að minnst 10 hafa fallið í átökunum síðustu daga í austurhér- uðunum, þar af fjórir hermenn. All- margir aðskilnaðarsinnar sáust í gær flýja frá miðborginni. Að sögn úkraínskra stjórnvalda hafa aðskiln- aðarsinnar, sem sagðir eru vel þjálf- aðir og ráða yfir öflugum vopnum, notað óbreytta borgara sem mann- lega skildi, skotið á stjórnarhermenn úr íbúðarhúsum. En ekki hafi verið svarað með þungavopnum af ótta við mannfall í röðum almennra borgara. Stjórnvöld í Kænugarði hafa heit- ið rannsókn á atburðunum í Odessa á föstudag þegar tugir manna fórust í eldsvoða í kjölfar slagsmála milli annars vegar aðskilnaðarsinna og hins vegar stuðningsmanna Úkra- ínustjórnar. Líklegt er að eldurinn hafi kviknað þegar bensínsprengjum var varpað en báðir aðilar notuðu slík vopn, að sögn New York Times. Myndskeið á föstudag sýnir fólk úr hópi Úkraínusinna reyna að færa vinnupalla að brennandi húsinu til að fólk á efri hæðum geti flúið út um glugga og komist niður. En nokkrir syngja úkraínska þjóðsönginn sem er eitur í beinum aðskilnaðarsinna. ÖSE miðli mál- um í Úkraínu  Úkraínuher sækir fram í Slavjansk AFP Reiðubúnir Úkraínskir hermenn í varðstöð nálægt Slavjansk í gær. Flottar fermingargjafir - okkar hönnun og smíði PI PA R\ TB W A • SÍ A • 14 06 29 jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind Flottar fermingargjafir Trú, von og kærleikur – okkar hönnun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.