Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014 Fallegur sumarfatnaður Kringlunni 4 Sími 568 4900 Tvær í einni :-) kr. 7.900 Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Str. M-XXXL Fleiri litir Lokakaffi Kvenfélagsins Heimaeyjar verður á Grand hótel Reykjavík sunnudaginn 11. maí kl. 14.00. Við vonumst til að sjá sem flesta. Stjórnin Skoðið laxdal.is/jerez Laugavegi 63 • S: 551 4422 Opið laugardag 10-16 GLÆSILEGUR SUMARFATNAÐUR Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Fylgstu með okkur á Facebook Frábært úrval af sundfatnaði Bikini • Tankini Sundbolir Í tilefni af níræð- isafmæli Jóhann- esar Nordal, fv. seðlabanka- stjóra, sem verð- ur á sunnudag, halda hag- fræðideild Há- skóla Íslands og Seðlabanki Ís- lands ráðstefnu honum til heiðurs í dag, föstudag, klukkan 15.00: Ráðstefnan heitir „Í ljósi reynslunnar“ og verður haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands. Erindi flytja: Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, Ásgeir Jóns- son, lektor við hagfræðideild HÍ, Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, og Friðrik Már Baldursson, prófessor við HR. Fundarstjóri er Sveinn Agn- arsson. Ráðstefnan er öllum opin. Ráðstefna til heiðurs Jóhannesi Nordal Jóhannes Nordal Staðan í vatnsbúskapnum hefur nú vænkast það mikið að Landsvirkjun telur óhætt að hefja á ný fulla af- hendingu rafmagns til þeirra við- skiptavina sem hafa þurft að sæta skertri afhendingu. Innrennsli til miðlunarlóna Landsvirkjunar hefur aukist umtalsvert og gera spár ráð fyrir áframhaldandi auknu inn- rennsli. Rennsli í Tungnaá, Þjórsá og Blöndu hefur aukist verulega. Landsvirkjun hóf skerðingar á af- gangsorku til stórnotenda og jafn- orku til húshitunar undir lok febr- úar. Á tímabilinu hefur verið dregið úr afhendingu rafmagns sem nemur um 2% af raforkuafhendingu síðasta árs, segir í frétt frá fyrirtækinu. Vatnshæð Þórisvatns hefur farið hækkandi og stendur nú í 561,1 m y.s. Hinn 3. apríl fór vatnshæð Þór- isvatns í lægstu stöðu sem mælst hef- ur frá upphafi 560,31 m y.s. og var það um 11 metra undir meðaltali vatnshæðar Þórisvatns á þeim tíma árs. Vatnshæð Blöndulóns stendur nú í 469,5 m y.s. Lægst fór staðan í 466,9 m y.s. hinn 5. apríl, sem var um 5 metra undir meðalhæð á þeim árs- tíma. Innrennsli í Hálslón hefur einnig aukist og hægt á niðurdrætti í lóninu. Ört batnandi vatnsstaða í miðlunarlónum og full afhending rafmagns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.