Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 21
Hagnaður H.F. Verðbréfa á síðasta ári nam ríflega 57 milljónum króna og jókst umtals- vert frá árinu 2012 þegar félagið hagnaðist um 21 milljón króna. Þetta kemur fram í ársreikningi H.F. Verðbréfa en tekjur fyrirtækisins, sem eru nánast alfarið þóknanatekjur, jukust um 77 milljónir króna á milli ára og námu samtals 369 milljónum á árinu 2013. Heildareignir félagsins námu 282 millj- ónum í árslok 2013 og eigið fé var 247 millj- ónir króna. Eiginfjárhlutfall er talsvert yfir 8% lágmarkskröfum og nam hlutfallið 36,2%. Ekki er lagt til að neinn arður verði greiddur út vegna starfsemi félagsins á síð- asta ári. Rekstrarkostnaður eykst Fjöldi starfsmanna var 15 að meðaltali á árinu 2013 en heildarkostnaður launa og launatengdra gjalda nam 165 milljónum króna. Samtals nam rekstrarkostnaður fyr- irtækisins 297 milljónum króna á síðasta ári og hækkaði um 32 milljónir króna frá fyrra ári. Stærstu hluthafar félagsins eru Halldór Friðrik Þorsteinsson, sem jafnframt er stjórnarformaður, með 49,39% eignarhlut og Andri Guðmundsson, framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa, sem fer með 15,55% hlut. Aukinn hagnaður H.F. Verðbréfa  Nam 57 milljónum króna á árinu 2013  Tekjur aukast um 26% á milli ára Andri Guðmundsson FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014 Stuttar fréttir ... ● Vöruskiptajöfn- uður á fyrsta þriðj- ungi ársins hefur ekki verið minni frá hruni. Aukinn inn- flutningur skýrir ekki óhagstæða þróun vöruskipta milli ára heldur ein- göngu snarpur samdráttur í út- flutningi, segir í Morgunkorni Íslandsbanka. Á fyrsta þriðjungi ársins var vöru- skiptajöfnuður hagstæður um 2,3 millj- arða króna samanborið við 30,4 millj- arða króna á sama tímabili í fyrra. Alls voru fluttar út vörur á tímabilinu fyrir 173,8 milljarða króna, sem er 35 milljörðum króna minna en á sama tíma í fyrra. Skýrist það hvort tveggja af rýrum útflutningi iðnaðarvara og sjávarafurða. Alls voru fluttar inn vörur fyrir 171,3 millj- arða á fyrsta þriðjungi ársins, sem er um 7 milljörðum minna en í fyrra. Vöruskiptajöfnuður ekki minni frá hruni Samdráttur var í útflutningi.                                       ! "    # $  ""# %$  &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 "% #%  ! # #   %" "# !"" %%!%  #$  $ # "#     # !$ %%# $"%! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur komist að þeirri niðurstöðu að breyt- ingar sem gerðar voru á íslenskum lög- um um virðisaukaskatt, og vörðuðu við- skiptavini gagnavera, hafi falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð. Fjármála- og efnahagsráðuneytið áréttar í ljósi niðurstöðu ESA að þeim lagaákvæðum sem voru til skoðunar hjá ESA var breytt í mars 2013 og eru um- rædd ákvæði laganna fallin úr gildi, segir í frétt frá ráðuneytinu. Lagabreytingarnar sem ESA komst að niðurstöðu um að væru ólögmætar voru gerðar í desember 2010. Þær sneru annars vegar að því að virðis- aukaskattur var ekki lagður á blandaða þjónustu gagnavera til kaupenda sem búsettir voru erlendis og höfðu ekki fasta starfsstöð á Íslandi. Hins vegar að því að innflutningur á netþjónum og tengdum búnaði var undanþeginn virð- isaukaskatti þegar eigendur þeirra höfðu ekki búsetu á Íslandi og voru ekki með fasta starfsstöð þar. ESA hefur jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu beri að endurheimta ólögmæta aðstoð, ásamt vöxtum og dráttarvöxtum frá þeim tíma er aðstoðin var veitt. Ráðuneytið ætlar að um sé að ræða óverulegar fjárhæðir. ESA telur ívilnun vegna gagnavera ólögmæta ● Bakkavör tapaði 1,2 milljónum punda, jafnvirði um 228 milljónum króna, á fyrsta fjórðungi ársins, sem er nokkuð lakari niðurstaðan en á sama tíma fyrir ári. Að því er fram kemur í ársreikningi jukust tekjur um 4% og námu 408 milljónum punda og rekstrarhagnaður fyrir einskiptikostnað 12,9 milljónum punda. Sé hins vegar tekið tillit til sam- bærilegra þátta (e. like-for-like) þá juk- ust tekjur Bakkavarar um 6% milli ára og voru 414 milljónir punda. EBITDA-rekstrarhagnaður fyrirtæk- isins hækkaði um 7% á milli ára og nam 23,7 milljónum punda. Bakkavör tapar 228 milljónum króna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.