Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014 Avro Lancaster-sprengjuflugvél stríðsflugvélasafnsins í Hamilton í Kanada verður millilent á Íslandi á leið til Englands í sumar og er hægt að fá að fara með fyrir 25.000 sterlingspund eða um 4,75 milljónir króna. Aðeins tvær vélar af þessari tegund eru til í flughæfu ástandi og verða þær saman í ákveðnum verkefnum á Englandi áður en kanadísku vélinni verður flogið aftur til Hamilton. 18 tíma á lofti Vélinni verður flogið frá Ha- milton 4. ágúst og lent í Con- ingsby í Lincolnshire á Englandi 8. ágúst. Millilent verður í Goose Bay í Kanada, Narsarsuaq á Grænlandi og í Keflavík. Flug- vélin verður alls 18 tíma á flugi á leiðinni. „Þetta er einstakt tækifæri,“ segir David Rohrer, flugmaður og framkvæmdastjóri stríðsflug- vélasafnsins í Hamilton, um til- boðið á eBay. Hann bætir við að vélin hafi ekki verið í ástandi til að fljúga henni yfir hafið í um hálfa öld og svona tilboð komi ekki aftur. Það rennur út á morg- un og í gær hafði enginn tekið því. steinthor@mbl.is Bjóða flug- sætið á nær 5 milljónir  Tilboðið á eBay rennur út á morgun Herflugvél Kemur við á Íslandi. „Þetta er dæmi um sameiginlegt átak í litlu samfélagi, menn taka sig saman um að gera hlutina,“ segir Örn Sigurðsson, rekstrarstjóri Icewear / Víkurprjóns í Vík. Þrjú ferðaþjónustufyrirtæki eru að láta byggja tíu íbúðir í raðhúsum til að koma hreyfingu á hlutina í þorpinu. „Hér hefur verið viðvarandi hús- næðisskortur. Ef fyrirtæki vilja vaxa verður að byrja á því að leysa hús- næðisvandann því hér er ekki hægt að fá leigt eða keypt,“ segir Örn. Hann nefnir að þegar hann tók við stjórnun í Víkurprjóni fyrir tveimur árum hafi fjölskyldan þurft að búa í 60 fermetra húsi fyrsta sumarið. „Vöxtur í ferðaþjónustu kallar á auk- ið húsnæði. Það hefur til dæmis orðið grundvallarbreyting hjá hótelunum, það er ekki lengur vertíð yfir hásum- arið heldur orðinn tíu mánaða rekst- ur fyrir ákveðinn kjarna starfsfólks. Það þarf að höggva á þennan hnút til að fyrirtækin geti þróast.“ Raðhúsin eru í elsta hluta Víkur- þorps. Þau eru byggð úr einingum frá BM Vallá og Smíðandi ehf. sér um uppsetningu og frágang. Þær verða seldar tilbúnar undir innrétt- ingar og afhentar í haust. Þegar er búið að ráðstafa sjö íbúðum af tíu, áður en byrjað er að auglýsa. Fyrir- tækin þrjú sem standa að bygging- unni, Víkurprjón, Hótel Höfða- brekka og Hótel Vík, taka eina íbúð hvert, sveitarfélagið kaupir eina og þrjár hafa verið seldar. helgi@mbl.is Sameiginlegt átak Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Skóflustunga Jóhannes Kristjánsson hefur framkvæmdir og honum til halds og trausts eru Sigurður Elías Guðmundsson og Örn Sigurðsson.  Ferðaþjónustufyrirtæki koma hreyfingu á hlutina í Vík Í vikunni birtist viðtal við Árna Bjarnason fé- laga í Karla- kórnum Heimi sem söng með kórnum í Hörpu um helgina, 82 ára gamall. Í framhaldi af þessu viðtali var athygli blaðsins vakin á því að Gunnar Svavar Guðmunds- son hefði sungið með eldri félögum í Karlakórnum Þröstum í Hafn- arfirði á tónleikum í Hörpu í janúar 2012, þegar hann var 91 árs gam- all. Stóð Gunnar á sviðinu í þrjár klukkustundir. Ekki er vitað um eldri kórfélaga, sem staðið hefur á sviði Hörpu. Gunnar lést í janúar síðastliðnum. Gunnar Svavar Guðmundsson Söng í Hörpu 91 árs gamall

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.