Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 39
hyggja var sveitadvölin lærdómsrík og uppbyggileg.“ Í Hafnarfirði var Kristján í Lækjar- skóla og var síðan sendill hjá bók- haldsdeild og ritstjórn Morgunblaðs- ins í Aðalstræti í eitt ár á meðan hann var að safna sér fyrir skiptinámi í Los Alamos í Nýju-Mexíkó í Bandaríkj- unum þar sem hann dvaldi í eitt ár. Kristján stundaði síðan nám við Flensborg og lauk stúdentsprófi það- an 1995. Að loknu stúdentsprófi fór Kristján til Þýskalands, skráði sig í há- skólanám í þýsku og lauk þar prófum en vann einnig á ölknæpum, við sölu- mennsku og á elliheimili. Eftir að Kristján kom heim starfaði hann við endurskoðun, reikningshald og sinnti næturvörslu á hótelum en stundaði auk þess nám í við- skiptafræði með vinnu og lauk prófum í viðskiptafræði 2002. Að loknu prófi í viðskiptafræðinni starfaði hann við innri endurskoðun hjá Landsbankanum 2003-2004. Haustið 2004 fór hann og eiginkona hans til Noregs í níu mánaða und- irbúningsnám fyrir kristniboðsstarf og að því námi loknu voru þau hjónin kristniboðar í Eþíópíu á árunum 2005-2010 að undanskildum tveimur orlofsferðum heim til Íslands. Hann hefur síðan starfað fyrir Kristniboða- sambandið hér heima: „Starfið fellst m.a. í kynningu á starfsemi Sam- bands íslenskra kristniboðsfélaga sem var stofnað árið 1929 og eru elstu góðgerðasamtök hér á landi með meginstarfsemina í útlöndum. Við vinnum einnig að því að skipuleggja margs konar þróunarverkefni, auk þess sem ég kem einnig að rekstri sambandsins. Starfa margir íslenskir kristniboð- ar erlendis um þessar mundir? „Við erum með fólk að störfum í Eþíópíu, Kenýa og Japan. En það verður að segjast eins og er, að okkur vantar fólk til að boða trúna og sinna þessum mikilvægu þróunar- verkefnum. Hins vegar hafa þessi störf okkar verið sjálfbær í þeim skilningi að heimamenn taka við verkefnunum og halda starfinu áfram. Þess vegna hafa frum- kvöðlastörf okkar verið feikilega veigamikil og árangursrík.“ Fjölskylda Eiginkona Kristjáns er Helga Vil- borg Sigurjónsdóttir, f. 7.10. 1975, kristniboði. Hún er dóttir Sigurjóns Gunnarssonar, starfsmanns Lands- bankans, og Margrétar Baldurs- dóttur hjúkrunarfræðings. Börn Kristjáns og Helgu Vilborgar eru Margrét Helga, f. 14.8. 2001; Jóel, f. 2.9. 2002; Dagbjartur Elí, f. 4.2. 2005; Davíð Ómar, f. 11.3. 2007, og Karitas, f. 23.8. 2010. Hálfsystkini Kristjáns, sammæðra, eru Dagbjört Rós Helgadóttir, f. 8.6. 1981, flugfreyja, höfrungaþjálfari og fallhlífastökkvari, búsett í Reykjavík, og Halldór Þór Helgason, f. 19.6. 1985, deildarstjóri hjá Vodafone, bú- settur í Reykjavík. Hálfsystkini Kristjáns, samfeðra, eru Anna Pála Sverrisdóttir, f. 19.9. 1983, lögfræðingur og starfsmaður utanríkisráðuneytisins, búsett í Reykjavík; Sindri Sverrisson, f. 13.8. 1986, íþróttafréttamaður við Morg- unblaðið, búsettur í Reykjavík, og Sunna Mjöll Sverrisdóttir, f. 13.12. 1992, nemi í heilbrigðisverkfræði við HÍ, búsett í Reykjavík. Foreldrar Kristjáns: Sverrir Þór- isson, f. 15.12. 1953, kennari og starfs- maður Námsmatsstofnunar, og Dag- björt Lína Þorsteinsdóttir, f. 6.11. 1953, húsfreyja. Úr frændgarði Kristjáns Þórs Sverrissonar Kristján Þór Sverrisson Sumarlína Dagbjört Jónsdóttir húsfr. í Rvík Kristján Ingvar Kristjánsson húsgagnasmiður í Rvík Íris Dröfn Kristjánsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Þorsteinn Sigurðsson útgerðarm. og vélsmiður í Hafnarfirði og annar stofnenda Stálskipa Dagbjört Lína Þorsteinsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Jenný Ágústsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Sigurður Eiríksson sjóm. og vélstj. í Hafnarfirði Guðný Kristjánsdóttir húsfr. á Rauðaskriðu Árni Friðfinnsson b. á Rauðaskriðu í Aðaldal Þóra Karitas Árnadóttir húsfr. í Rvík og form. Thorvaldssenfélagsins Þórir Már Jónsson póstur í Rvík Sverrir Þórisson kennari og starfsmaður Námsmatsstofnunar, í Rvík Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfr. í Rvík Jón Jónsson verslunarm. í Rvík Á akrinum Kristján við ána í Voitó dalnum í Eþíópíu. ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014 Páll Agnar Pálsson yf-irdýralæknir fæddist á Klettií Reykholtsdal 9.5. 1919, son- ur Páls Zóphóníassonar, alþm. og búnaðarmálastjóra, og Guðrún Hannesdóttir húsfreyju. Páll var sonur Zóphóníasar Hall- dórssonar, prófasts í Viðvík, og Jó- hönnu Sofíu, dóttur Jóns, háyfirdóm- ara og alþm., bróður Péturs biskups og Brynjólfs Fjölnismanns. Guðrún var dóttir Hannesar Magnússonar, hreppstjóra í Deildartungu, og Vig- dísar Jónsdóttur, af Deildartungu- ætt, systur Þuríðar, ömmu Jóns Helgasonar, prófessors og skálds í Kaupmannahöfn. Systkini Páls: Unnur, húsfreyja í Reykjavík; Zóphónías, skipulags- stjóri ríkisins; Hannes aðstoð- arbankastjóri; Hjalti fram- kvæmdastjóri og Vigdís kennari. Eiginkona Páls var Kirsten Hen- riksen dýralæknir og eignuðust þau tvær dætur, Hlín Helgu kennara og Vigdísi Hallfríði hjúkrunarfræðing. Páll lauk stúdentsprófi frá MR 1937, kandidatsprófi frá Dýralækna- háskólanum í Kaupmannahöfn 1944 og stundaði framhaldsnám í sýkla- og meinafræði húsdýra í Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi. Páll var sérfræðingur við Til- raunastöð Háskólans í meinafræði á Keldum 1948-98 og forstöðumaður þar 1959-67. Hann sinnti marg- víslegum rannsóknarstörfum, eink- um á sviði visnu og mæðiveiki og var yfirdýralæknir 1959-89. Páll var varaformaður Lands- sambands hestamannafélaga, sat í stjórn Tilraunaráðs búfjárræktar, í dýraverndarnefnd, í stjórn vís- indasjóðs, var formaður fisk- sjúkdómanefndar, sat í lyfjanefnd um árabil og í Dýraverndunarnefnd Evr- ópuráðsins. Hann var félagi í Vísinda- félagi Íslendinga, sæmdur Ridd- arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Konunglega dýralækna- og landbún- aðarháskólann í Kaupmannahöfn, Dýralæknaháskóla Noregs, við læknadeild HÍ og var heiðursfélagi í Dýralæknasamtökum Finnlands og í Íslenska dýralæknafélaginu. Páll lést 10.7. 2003. Merkir Íslendingar Páll Agnar Pálsson 90 ára Guðjón Pálsson Guðríður Dýrleif Skjóldal Ingibjörg Jónasdóttir Kristín Guðmundsdóttir 85 ára Teitur Jensson 80 ára Björn Sigurðsson 75 ára Guðmundur Lárusson Jóhannes Sigurbjörnsson 70 ára Bára Lyngdal Stefánsdóttir Erla Björg Delbertsdóttir Franz Viðar Árnason Jóhannes Jónsson Ólöf Svana Samúelsdóttir 60 ára Andrés Andrésson Eggert Ólafsson Hallbjörn Þorbjörnsson Ragnheiður G. Gunnarsdóttir Ragnheiður Guðmundsdóttir Stefán Þóroddsson Þrúður Ingibjörg Jónsdóttir 50 ára Erla Þorsteinsdóttir Geir Þráinsson Guðrún Sigríður Jósefsdóttir Ingibjörg Hreiðarsdóttir Íris Kröyer Jónsdóttir Magnea Torfhildur Magnúsdóttir Ólöf Þorvarðsdóttir Pernilla Rein Sigurlaug Árborg Ragnarsdóttir Sveinn Kristinsson Unnur Bragadóttir 40 ára Björn Ágústsson Dóra Fjölnisdóttir Elísabet M. Nickel Stefánsdóttir Geir Gunnarsson Gísli Magnússon Halldór Björnsson Haukur Elvarsson Hákon Heimir Sigurðsson Helena Olsen Jón Trausti Ólafsson Kristín Konráðsdóttir Nanna Kristín Magnúsdóttir Ragnheiður Valdimarsdóttir Rósa Huld Sigurðardóttir Stella Hrönn Jóhannsdóttir 30 ára Ásta Hermannsdóttir Ásta Minney Guðmundsdóttir Erla María Árnadóttir Ívar Örn Halldórsson Khaled Hamed Magnhildur Ingólfsdóttir Malgorzata Russ Matthías Hálfdánarson Til hamingju með daginn 30 ára Sindri ólst upp á Akureyri, lauk lögfræði- prófi frá HA og vinnur hjá Lyfjastofnun. Maki: Rannveig Magn- úsdóttir, f. 1984, mót- tökuritari á Juris – lög- mannsstofu. Dóttir: Sigrún Margrét, f. 2013. Foreldrar: Kristján Jó- steinsson, f. 1954, fé- lagsráðgjafi, og Sólveig Hrafnsdóttir, f. 1956, námsráðgjafi. Sindri Kristjánsson 30 ára Guðmundur ólst upp í Stykkishólmi og er aðstoðarverslunarstjóri hjá Bónus þar. Maki: Guðbjörg Anna Bragadóttir, f. 1989, starfsmaður hjá Ice- landair. Foreldrar: Guðmundur Kristinsson, f. 1960, skipasmiður, og Birna Sævars, f. 1962, starfs- maður við aðhlynningu við Heilsugæslu Vest- urlands í Stykkishólmi. Guðmundur S. Guðmundsson 30 ára Jón ólst upp í Þor- lákshöfn og býr þar, lauk sveinsprófi í húsasmíði, stundar nám í bygg- ingafræði við HR og starf- ar hjá Arkís. Maki: Karen Dröfn Haf- þórsdóttir, f. 1984, söng- kona. Dóttir: Katla, f. 2012. Foreldrar: Skarphéðinn Haraldsson, f. 1964, og Guðrún E. Guðmunds- dóttir, f. 1964, Þau starfa hjá Alcoa á Reyðarfirði. Jón Bryngeir Skarphéðinsson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Fituhreinsir 1 ltr. 4899,-4899,- 999,- SíuhreinsirFroðueyðir 1 ltr. Fullt verð 5.443,-Fullt verð 5.443,- Fullt verð 1.249,- 10-20% afsláttur m i ð s t ö ð v a r o f n a r Handklæðaofn mánaðarins Úrval fylgihluta fyrir heita potta á tilboði í tilefni sumarsins... 6.990,- Home Swim pakki, hreinsiefni án klórs 2 fyrir 1 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - ofnasmidja@ofnasmidja.is - simi 577 5177 CO • Ryðfrítt stál 114.999,-Fullt verð 124.999,- ára ábyrgð *Tilboðin gilda út maí á meðan birgðir endast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.