Morgunblaðið - 09.05.2014, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2014
Á fjórða þúsund manns mættu í
Borgarleikhúsið í vikunni vegna
skráningar fyrir hæfileikadaga Bil-
lys Elliots. Prufurnar sjálfar fara
fram næstu daga þar sem valið
verður í hlutverk í söngleiknum.
Lee Proud, danshönnuður úr Mary
Poppins, aðstoðar við val í hlutverk
en hann dansaði í upprunalegu
Billy Elliot-sýningunni á WestEnd í
London. Einnig kemur Elizabeth
Greasley, breskur ballettkennari,
til landsins en samkvæmt upplýs-
ingum úr leikhúsinu hefur hún séð
um val og þjálfun á Billy Elliot um
allan heim.
Margir vilja vera með í Billy Elliot
Fjölmenni Biðröðin náði næstum hringinn í kringum bílastæði Kringlunnar.
AF LISTUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Listasafnið í Bern erfir lista-verkasafn Corneliusar Gur-litts. Gurlitt lést á þriðjudag
og voru miklar vangaveltur um hvað
myndi verða af listaverkunum, sem
talin eru ómetanleg. Gurlitt er sonur
listaverkasala sem starfaði á valda-
tíma nasista og er talið að hluta
verkanna hafi verið stolið af gyð-
ingum.
Á miðvikudag staðfesti safnið í
Bern í Sviss að Gurlitt hefði ánafnað
því verkin. Kváðust ráðamenn safns-
ins steini lostnir.
„Þrátt fyrir vangaveltur í fjöl-
miðlum um að Gurlitt hefði ánafnað
safn sitt listastofnun utan Þýska-
lands komu fréttirnar eins og þruma
úr heiðskíru lofti vegna þess að Gur-
litt hefur aldrei verið í neinu sam-
bandi við Listasafnið í Bern,“ sagði í
tilkynningu frá safninu. Því var bætt
við að ekki væri heldur að leyna að
„þessu stórkostlega umboði fylgir
talsverð ábyrgð og vaknar fjöldi erf-
iðra spurninga, sérstaklega spurn-
ingar af lagalegum og siðferðis-
legum toga“.
Í Listasafninu í Bern er gott
safn klassískra nútímaverka. Má þar
sérstaklega nefna verk eftir Pablo
Picasso og Paul Klee. Segja sér-
fræðingar að safn Gurlitts muni þó
bæta kost safnsins verulega.
Ríkissaksóknaraembættið íAugsburg tók í sína vörslu
1.280 myndir úr íbúð hans í Münc-
hen í febrúar 2012. Í íbúð Gurlitts í
Salzburg í Austurríki fundust nú í
febrúar 238 listaverk til viðbótar,
þar á meðal eftir Monet, Manet,
Cezanne og Gauguin. Þá skilaði
systir hans, Benita, 22 myndum til
lögreglu þar sem hún taldi að þær
væru ekki lengur öruggar í húsi sínu
vegna allrar umfjöllunarinnar.
Tilviljun olli því að myndirnar
fundust. Þær komu í ljós vegna
rannsóknar á smávægilegum und-
anskotum frá skatti.
7. apríl var gengið frá sam-
komulagi við ríkissaksóknara um að
verkunum yrði skilað. Í sam-
komulaginu fólst leyfi til þýskra yf-
irvalda um að hafa uppi á rétt-
mætum eigendum verkanna, þar á
meðal gyðingum, sem voru rændir
og beittir kúgunum í valdatíð nas-
ista. Óháðir sérfræðingar telja að
um 450 verkanna séu þýfi nasista.
Stehan Holzinger, talsmaður Gur-
litts, sagði að samkomulagið næði
ekki til listaverkanna sem fundust í
Einsetumaður arfleiðir
safn í Sviss að verkum
AFP
Fjársjóður Sitjandi kona eftir Henri Matisse var meðal verkanna í íbúð
Corneliusar Gurlitts í München. Myndin tekin af skjá á blaðamannafundi.
Salzburg, en ekki væri ljóst hvort
þau rynnu einnig til safnsins í Bern.
Gurlitt fór í upphafi árs í aðgerð
á hjarta og gerði eftir það erfða-
skrána. Hann var 82 ára gamall þeg-
ar hann lést, einsetumaður, átti eng-
in börn og sagði að listin væri ást lífs
síns.
Faðir Gurlitts, listaverkasalinnHildebrand, komst yfir flestar
myndanna á fjórða og fimmta áratug
tuttugustu aldar. Nasistar fólu hon-
um að selja verk, sem tekin höfðu
verið af gyðingum og nútímalist,
sem gerð hafði verið upptæk á þýsk-
um söfnum og yfirvöld höfðu stimpl-
að úrkynjaða. Verkin lágu í stæðum í
íbúð Gurlitts í blokk í hverfinu
Schwabing innan um ávaxtasafa-
fernur og niðursuðudósir. Hann flík-
aði ekki verkunum, en af og til seldi
hann verk í gegnum listaverkasala í
Sviss til að framfleyta sér. Gurlitt
brást ekki við þegar verkin voru tek-
in utan hvað hann spurði hvers
vegna þeir hefðu ekki getað beðið
þar til hann væri allur, þá hefðu yf-
irvöld fengið verkin hvort sem væri.
Holzinger sagði við fréttastof-una AFP að hann vildi ekki
velta vöngum yfir því hvers vegna
skjólstæðingur sinn hefði ákveðið að
láta listaverkin renna til listasafns í
Sviss. Í fjölmiðlum hefur hins vegar
komið fram að Gurlitt hafi sárnað
meðferð þýskra yfirvalda og að lista-
verkasafnið skyldi tekið af honum
vegna smávægilegs skattamáls. Far-
ið hefði verið með sig „eins og
glæpamann“. Því hefði ekki komið til
greina að myndirnar yrðu áfram í
Þýskalandi.
» Gurlitt sagði aðfarið hefði verið með
sig „eins og glæpa-
mann“. Því hefði ekki
komið til greina að
myndirnar yrðu áfram í
Þýskalandi.
Hljómsveitin The Bangoura Band
heldur tónleika á Café Haiti í kvöld
kl. 21.30. Hljómsveitin leikur afro-
beat-, funk- og mandigues-tónlist
og stefnir að því að taka upp sína
fyrstu plötu á árinu. Aðgangseyrir
er 1.000 kr. Café Haití er í Geirs-
götu 7c við Reykjavíkurhöfn.
The Bangoura
Band á Café Haiti
Dansvænt The Bangoura Band leikur
taktfasta tónlist á Café Haiti.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is SPAMALOT–„alveg konunglega skemmtilegt bull“ Morgunblaðið
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 9/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 17/5 kl. 19:30 32.sýn Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn
Lau 10/5 kl. 16:00 31.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 33.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn
Fáránlega skemmtilegt! Síðdegissýning fyrir alla fjölskylduna þann 10.maí!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Fös 9/5 kl. 19:30 24. sýn Lau 17/5 kl. 19:30 25.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 26.sýn
Síðustu sýningar - Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur.
Eldraunin (Stóra sviðið)
Sun 11/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/6 kl. 19:30 14. sýn
Fim 15/5 kl. 19:30 7.sýn Mið 28/5 kl. 19:30 11. sýn Lau 14/6 kl. 19:30 15. sýn
Fös 16/5 kl. 19:30 8.sýn Sun 1/6 kl. 19:30 12. sýn
Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn Fim 5/6 kl. 19:30 13. sýn
Sýning sem enginn ætti að missa af. Sýningartímabil: 25.apríl til 14. júní.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 10/5 kl. 14:00 Aukas. Lau 17/5 kl. 14:00 Lau 24/5 kl. 14:00
Lau 10/5 kl. 16:00 Aukas. Lau 17/5 kl. 16:00 Lau 24/5 kl. 16:00
Sun 11/5 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/5 kl. 14:00 Sun 25/5 kl. 14:00
Sun 11/5 kl. 16:00 14.sýn Sun 18/5 kl. 16:00 Sun 25/5 kl. 16:00
Fimm stjörnu sýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 til 12 ára.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 9/5 kl. 20:00 Fös 9/5 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Hamlet litli –★★★★★ – BL, pressan.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fös 9/5 kl. 20:00 Fös 23/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Sun 11/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Fim 22/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Ótvíræður sigurvegari Olivier Awards 2013.
BLAM (Stóra sviðið)
Þri 13/5 kl. 20:00 1.k Lau 17/5 kl. 14:00 Fös 20/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 2.k Sun 18/5 kl. 14:00 6.k Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fim 15/5 kl. 20:00 3.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Fim 19/6 kl. 20:00 aukas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00
Lau 17/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Fös 9/5 kl. 20:00 18.k Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k
Sun 11/5 kl. 20:00 19.k Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Mið 14/5 kl. 20:00 20.k Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Fim 15/5 kl. 20:00 21.k Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Fim 12/6 kl. 20:00
Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Fös 13/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fös 9/5 kl. 10:00 * Þri 13/5 kl. 10:00 * Fös 16/5 kl. 10:00 *
Lau 10/5 kl. 13:00 ** Mið 14/5 kl. 10:00 * Sun 18/5 kl. 13:00
Sun 11/5 kl. 13:00 Fim 15/5 kl. 10:00 *
Shakespeare fyrir byrjendur. * Skólasýningar. **Táknmálstúlkuð sýning
Der Klang der Offenbarung des Göttlichen (Stóra svið)
Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Fuglinn blái (Aðalsalur)
Þri 13/5 kl. 20:00
Leiklestur
Wide Slumber (Aðalsalur)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 25/5 kl. 20:00 Mán 26/5 kl. 20:00
Miða má nálgast hjá Listahátíð í Reykjavík
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Stund milli stríða (Aðalsalur)
Fös 9/5 kl. 20:00
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/