Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Fjölskyldan Hvað og hvenær? Flugdrekagerð í Borgarbókasafni Reykjavíkur,Tryggvagötu 15, sunnudag kl. 15.
Nánar: Fjölskyldur fá tækifæri til að búa til glæsilega flugdreka í um-
sjón Jóns Víðis. Allt efni í föndrið er á staðnum og þátttaka ókeypis.
Búum til flugdreka saman
SKEMMTILEGIR LEIKIR SEM HALDA ÞEIM YNGSTU EINBEITTUM OG UPPTEKNUM
Sniðugt föndur fyrir litla fingur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞAÐ ER SJALDAN DAUÐUR TÍMI Í KRINGUM YNGSTU
BÖRNIN. ÞAU HAFA GAMAN AF ÞVÍ AÐ DUNDA SÉR
VIÐ ÝMISLEGT SEM ÞYKIR KREFJANDI FYRIR ÞEIRRA
ALDUR OG ÞVÍ TILVALIÐ AÐ ÚTBÚA EITTHVAÐ ÖÐRU-
VÍSI OG SKEMMTILEGT FYRIR ÞAU AÐ GERA. HÉR ERU
TILLÖGUR AÐ ÞRENNS KONAR FRÁBÆRUM HEIMA-
GERÐUM LEIKJUM FYRIR TVEGGJA TIL ÞRIGGJA ÁRA
BÖRN SEM FORELDRAR ÞURFA EKKI AÐ HAFA MIKIÐ
FYRIR OG KOSTAR LÍTIÐ AÐ BÚA TIL.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Spaghettí-leikurinn
Efni sem þarf:
Spaghettí, óeldað
Gamall kryddstaukur
Aðferð:
Brjóttu spaghettíið í minni bita og
sýndu barninu hvernig þarf að taka
upp eitt spaghettí í einu og miða því
ofan í gatið.
Bílabraut í pappakassann
Efni sem þarf:
Gamall pappakassi, helst grunnur, plastbox eða
jafnvel bali
Örlítið af mold, sandi eða möl eða allt í bland
Litlir bílar eða gröfur
Fata og skófla
Aðferð:
Hjálpið barninu að setja moldina, sandinn og
mölina í kassann með fötunni. Þannig er hægt að
búa til vinnusvæði fyrir gröfurnar og bílana.
Börn í leikskólanum Austurkór
dunda sér hér við að föndra. Það
þarf ekki að vera flókið að búa til
eitthvað sniðugt að gera fyrir
þau yngstu.
Cheerios-leikurinn
Efni sem þarf:
Leir
Tannstönglar (má einnig nota spaghettí)
Cheerios
Aðferð:
Búið til stóra kúlu úr leirnum (ef til vill nokkrar) og
stingið tannstönglum í leirinn. Sýnið barninu hvernig
raða á Cheerios-hringjunum á tannstönglana.1
2
3