Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Side 18
Ferðalög
og flakk *Ferðalög þvert yfir heiminn með tilheyrandieldsneytisbrennslu eru ekki sérlega hagfelldumhverfinu. Á vefnum www.ecotourism.orgmá fræðast um svokallaða visthæfa ferða-mennsku. Hún felur í sér að ferðamaður leit-ast við að vera ábyrgur í sínum ferðalögumog að ferðalögin dragi ekki úr lífsgæðum íbúa
eða gangi um of á náttúru í því landi sem
heimsótt er.
Hvað er visthæf ferðamennska?
R
agnheiður Guðmundsdóttir
kynntist fjallamennsku í
björgunarsveitinni Ársæli
á Seltjarnarnesi og fékk
brennandi áhuga á viðfangsefninu.
Hún starfaði í kjölfarið hjá Íslensk-
um fjallaleiðsögumönnum og kynnt-
ist þar Indverjanum Satyabrata
Dan og fór í framhaldinu utan til
náms.
Satyabrata Dan hefur klifið alla
sjö hæstu tinda heims, farið á bæði
norður- og suðurpólinn og klifið
Mount Everest nokkrum sinnum.
„Hann vinnur nú sem leiðsögu-
maður fólks sem gengur á fjöll og
benti mér á skólann sem ég fór í,
Nehru Institute of Mountain-
eering,“ segir Ragnheiður.
„Þó að ég hefði grunn í fjalla-
mennsku fór ég á grunnnámskeið,
sem var í raun framan af upprifjun
á því sem ég var þegar búin að
læra en svo var líka farið í hluti
sem ekki eru kenndir í björgunar-
sveitinni. Okkur var til dæmis
kennt hvernig hægt er að bjarga
sér uppi í fjöllunum með sem
minnstan búnað meðferðis.“
Ragnheiður segist ekki vita til
þess að annar Íslendingur hafi
numið við Nehru-skólann áður. „Ég
hef fundið fyrir ákveðnum for-
dómum gagnvart svona námi í Asíu
og margir halda að þarna sé ekki
kennt í samræmi við þá staðla sem
við erum vön. Það er mikill mis-
skilningur og í þennan skóla fara til
dæmis flestir Sjerpar sem eru leið-
sögumenn sem og aðrir sem vinna í
í Himalaya-fjöllunum.“ Ragnheiður
segir skólann m.a. rekinn af ind-
verska hernum. „Aginn var mikill;
mér leið stundum eins og ég væri
komin í herinn! En þarna gafst
tækifæri til að ganga upp á fjöll,
stunda klettaklifur og ísklifur og
fleira; að upplifa Himalaya-fjöllin,
fyrir brot af þeim kostnaði sem
þarf að greiða fyrir slíkar ferðir.“
Námskeið í einn mánuð með fullu
fæði og öllum búnaði kostaði Ragn-
heiði 650 dollara, andvirði um 75
þúsund króna. Að námskeiðinu
loknu fékk Ragnheiður vinnu hjá
flúðasiglingafyrirtæki. Þar kynntist
hún kærastanum sínum, Ravi, sem
er uppalinn við rætur Himalaya.
„Þegar ég byrjaði hjá fyrirtækinu
var hann aðalleiðsögumaður og var
látinn kenna mér að verða leið-
sögumaður í flúðasiglingum. Ég
held reyndar að ég hafi ekki lært
neitt rosalega mikið vegna þess að
ég var svo upptekin við að vera ást-
fangin af honum!“
Um svipað leyti kynntist Ragn-
heiður öðrum manni á kajakhátíð á
Ganges fljóti og fékk vinnu hjá
honum: við flúðasiglingar í Skaga-
firði, þar sem hún starfar í sumar.
Heimurinn er ekki stór!
Ragnheiður heldur utan á ný
með haustinu, fer í annan skóla og
hyggst einnig starfa með Ravi sem
hefur komið á fót eigin fyrirtæki –
www.royalejourne.com – sem býður
upp á ævintýraferðir um norður-
hluta Indlands. „Við stefnum að því
að fá Íslendinga út, í samstarfi við
Erlu Þórdísi Traustadóttir hjá
Fjallhalla sem er nýtt ferðafyrir-
tæki á Íslandi, og höfðum til þeirra
sem vilja ævintýraferðamennsku;
fjallagöngur og flúðasiglingar.
Flestir sem fara til Indlands vilja
kynna sér menninguna, sjá fólkið
og fallegu litina en ekki virðist
mörgum detta í hug að skoða
landslagið og náttúruna sem Ind-
land hefur upp á bjóða.“
Mikið er um þesskonar ferðir í
Nepal, þar sem finna má fjölda
gistiheimila, en því er ekki að
heilsa þar sem þau verða starfandi.
„Á Norður-Indlandi er þetta miklu
frumstæðara, engin gistiheimili en
við munum gista heima hjá venju-
legu fólki uppi í fjöllunum. Það er
mjög mikil upplifun.“
FJALLAMENNSKA OG FLÚÐASIGLINGAR
Ævintýri
á Indlandi
RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR BJÓ Á INDLANDI Í HÁLFT ÁR, NAM FJALLAMENNSKU
OG STARFAÐI HJÁ FYRIRTÆKI SEM GERIR ÚT Á ÆVINTÝRAFERÐAMENNSKU Í NORÐUR-
HLUTA LANDSINS. ÞAR KYNNTIST HÚN KÆRASTANUM SÍNUM OG SAMAN STEFNA ÞAU
AÐ ÞVÍ AÐ BJÓÐA ÍSLENDINGUM UPP Á ÆVINTÝRAFERÐIR UM INDLAND.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Ragnheiður og félagar hennar á fjallanámskeiði í norðurhluta Indlands.
Hópur í flúðasiglingum á Ganges. Ravi, unnusti Ragnheiðar, fremst fyrir miðju.
Ragnheiður í þorpinu Chopta sem er í 4.000 m hæð yfir sjávarmáli.
Ragnheiður eftir góðan túr við flúða-
siglingar á Gangesfljótinu.
Brúin Laxman Jhula sem liggur yfir Gangesfljótið, þar sem vinsælt er að stunda flúðasiglingar.