Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Qupperneq 22
Heilsa og
hreyfing
Tengsl milli svefns og megrunar
Morgunblaðið/Ernir
Háskólinn í Chicago rannsakaði
svefn og þyngdartap.
*Rannsókn sem háskólinn í Chicago og há-skólinn Wisconsin-Madison sendu frá sérfyrir nokkrum árum sýndi að svefn hefurtöluverð áhrif á þyngdartap fólks. Tveir hóp-ar voru rannsakaðir. Annar fékk að sofa í 5,5tíma en hinn í 8,5 tíma á nóttu. Báðir hóparmisstu svipaða þyngd á svipuðu mataræði en
hópurinn sem svaf minna missti minna af fitu
og meira af vöðvum .
H
líðar Skálafellsins hafa
dregið til sín skíðafólk
í áratugi en þar
byggði skíðadeild KR
sinn fyrsta skíðaskála árið 1936.
KR-ingar eru enn með aðstöðu í
Skálafelli þótt óneitanlega hafi
Bláfjöllin tekið við af Skálafellinu
sem helsta skíðasvæði höfuðborg-
arsvæðisins. Lengi vel var að-
staðan í Skálafelli ein sú besta á
landinu og árið 1961 var fyrsta
skíðalyfta landsins tekin þar í
notkun en seinna átti eftir að
setja upp toglyftur og stærri
skíðalyftu. Reykjavíkurborg tók
við rekstri Skálafells af KR upp
úr 1990 en þá var reksturinn
orðinn erfiður í samkeppni við
Bláfjallasvæðið. Skíðamenn sækja
enn Skálafellið í dag, þó í minna
mæli en áður en þeir dagar sem
opið er í fjallinu eru fáir og und-
anfarin tvö ár hefur aðeins verið
opið um helgar. Anna Laufey
Sigurðardóttir, formaður skíða-
deildar KR, telur mikil tækifæri
liggja í aukinni uppbyggingu í
Skálafelli. „Hugmyndir eru uppi
um skíðalyftu í norðurhlíðum
Skálafells og myndi það bæta til
muna aðstöðuna á svæðinu og
gera skíðafólki á höfuðborgar-
svæðinu kleift að stunda sína
íþrótt vel inn í vorið en snjó
tekur ekki að leysa í norður-
hlíðum Skálafellsins fyrr en um
miðjan maí,“ segir Anna.
Alpastemning í
Skálafellinu á vorin
Útsýnið af toppi Skálafellsins er
einstakt og brekkurnar langar og
skemmtilegar að sögn Önnu sem
segir svæðið vera útivistarparadís.
„Frá toppi Skálafells sést vel yfir
Þingvallavatn og allt svæðið í
kring sem er gífurlega fallegt.
Það er því eftir meiru að sækj-
ast en bara brekkunum fyrir
skíðafólk en hjólreiðamenn hafa
lagt hjólabraut á svæðinu og það
er tilvalið fyrir göngufólk sem
vill njóta náttúrunnar og útsýn-
isins.“
Uppbygging í Skálafelli gæti
því lengt skíðatímabilið við höf-
uðborgarsvæðið og orðið áfanga-
staður ferðamanna sem vilja
sækja í íslensku náttúruna og
njóta útivistar hér á landi. „Á
vorin væri hægt að skapa sann-
kallaða alpastemningu í Skálafelli
þegar fólk rennir sér niður norð-
urhlíðarnar í sól og blíðu vors-
ins.“
Ljósmyndari/Guðmundur Jakobsson
ÁHUGI Á UPPBYGGINGU Í NORÐURHLÍÐUM SKÁLAFELLS
Skíðað lengur í
lengri brekkum
BREKKURNAR Í SKÁLAFELLI ERU MEÐ ÞEIM BETRI Á
LANDINU EN AÐSTÖÐUNA MÆTTI BÆTA. ÁHUGA-
FÓLK UM UPPBYGGINGUNA TELUR SKÁLAFELL GETA
ORÐIÐ FRAMTÍÐARÚTIVISTARSVÆÐI REYKJAVÍKUR.
Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
Áhugamenn um bætta aðstöðu í
Skálafelli hafa tekið saman nokkra
punkta um nauðsyn þess og kosti
að bæta aðstöðu í Skálafellinu.
1. Öruggur skíðasnjór alla vetur
fram í lok maí. Nægt vatn í Skála-
felli til snjófram-leiðslu í suður-
hlíðum. Alltaf nægur snjór í norð-
urhlíðum. Þar gefst kostur á tvisvar
sinnum lengri brekkum en eru í
suður-hlíðum fjallsins og í Bláfjöll-
um!
2. Lyftur frá bílaplani upp á topp
gefa öllum kost á útsýnisferðum
allt árið, jafnt frískum sem hreyfi-
hömluðum. Útsýnið af toppi Skála-
fells er óviðjafnanlegt. Þaðan sér
allt austur til Vatnajökuls og jökl-
anna á miðhálendinu, Þingvallavatn
liggur að fótum, Hekla, Tindfjöll,
Mýrdalsjökull, Eyjafjallajökull, Blá-
fjöll, Reykjanesskaginn, Reykjavík,
Mosfellssveitin, Borgarfjarðardalir,
Kjósin og Hvalfjörður o.s.frv.
3. Óviðjafnanlegar gönguleiðir um
fjallið opnast fyrir þá sem ekki
treysta sér til að ganga upp en vilja
njóta fjallaloftsins á leiðinni niður í
áreynsluminni göngu.
4. Fjallahjólaleiðir liggja þegar um
fjallið. Með lyftum upp á topp fjalls-
ins aukast möguleikarnir
5. Veðurkerfi Kjósarinnar í norð-
ur-brekkunum niður í Svínadalinn
býður oft upp á veðursæld þó að
veðrið í suður-hlíðum sé rysjótt.
Oft er bjart á Skálafelli þó að út-
synningurinn og þokuloft grúfi sig
yfir höfuðborgarsvæðið. Vef-
SÍFELLT VAXANDI FERÐAMANNASTRAUMUR BÝÐUR
UPP Á NÝ OG SPENNANDI TÆKIFÆRI
Átta ástæður fyrir upp-
bygginu í Skálafelli
Snjórinn troðinn í Skálafellinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
myndavélar leiðbeina um veðrið
áður en lagt er í hann.
6. Nýr áfangastaður fyrir alla fjöl-
skylduna á góðum stundum. Aukn-
ir möguleikar fyrir ferðaþjónustuna
en ferðamenn sækja að sjálfsögðu í
sömu afþreyingu og Íslendingar
vilja sækja í.
7. Framtíðarmöguleikar til áfram-
haldandi uppbyggingar með fleiri
skíðalyftum til að taka við vaxandi
aðsókn og jafnvel með veitinga-
rekstri á toppnum. Skálafellið gæti
orðið enn stórkostlegri útivistarp-
aradís.
8. Aukin umsvif á fjallinu myndu
leiða til þess að svæðið allt um-
hverfis Skálafell kæmist í alfaraleið
en þar gefast fjöldamörg tækifæri
til áframhaldandi uppbyggingar á
útivistaraðstöðu í skjólgóðu og fal-
legu landslagi.
Með því að opna norðurhlíðar
Skálafells býðst ekki aðeins skíða-
og snjóbrettamönnum af SV-landi
veruleg lenging á þeim tíma sem
unnt er að stunda íþróttina heldur
opnar þetta möguleika fyrir skíða-
menn í Evrópu og Bandaríkjunum
til að lengja æfingatíma sinn um 1-2
mánuði.
Vakin er athygli á því að full
starfsemi er yfir sumartímann.
Læknisfræðileg endurhæfing á Heilsustofnun
er góður kostur og miðar að því að ná mestri
mögulegri færni og lífsgæðum og viðhalda þeim.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu okkar
www.hnlfi.is og í síma 483 0300.
Endurhæfing allt árið
Heilsustofnun NLFÍ
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Grænumörk 10 - Hveragerði - Sími 483 0300
www.hnlfi.is - heilsu@hnlfi.is