Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Side 37
18.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
25ÁRA
1988-2013 Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst
Sjónvarpsrásir fyrir hótel,
gistiheimili og skip
Bjóddu þínum
gestum
upp á úrval
sjónvarps-
stöðva
Alfredo Zolezzi, uppfinninga-
maður og vísindamaður frá Síle,
hefur fundið upp aðferð sem
hreinsar 35 lítra af menguðu vatni
á rúmum fimm mínútum. Orkan
sem þarf til að knýja skiljuna sem
hreinsar vatnið er svipuð og þarf
til að kveikja á ljósaperu. Hann
kynnti uppfinningu sína fyrir Reau-
ter fréttaveitunni í Síle. „Við er-
um búin að setja eina skilju upp í
einu fátækrahverfi hér í Síle og
árangurinn er framar okkar björt-
ustu vonum. Mér finnst að vatn
ætti að vera réttur hvers og eins,
nú er það hægt,“ sagði Zolezzi.
99% árangur
Kerfið sem hann bjó til er flókið
ferli en í stuttu máli breytir vatnið
um ham, verður að lofttegund,
það er jónað og út kemur hreint
og ferskt vatn. Í tilraunum hans
og aðstoðarmanna hans voru nið-
urstöðurnar yfirleitt 99% og
stundum 100% hreint vatn. Skað-
legar bakteríur og örverur sem
fundust áður en vatnið fór í gegn-
um skiljuna hans Zolezzi höfðu
horfið.
Rósa Reyes, sem býr í fátækra-
hverfinu San Jose de Cerrillos,
segir að uppfinning Zolezzi sé
bylting fyrir sig og börnin sín.
„Árum saman hafa íbúar hér
þjáðst af sjúkdómum sem rekja
má til mengaðs neysluvatns. Börn-
in okkar eru ekki lengur veik og
það er auðveldara fyrir öldunga
að fá sér vatn, því það þarf ekki
lengur að sjóða vatnið.“
Sameinuðu þjóðirnar áætla að
einn af hverjum sex hafi ekki að-
gang að hreinu drykkjarvatni og
Rósa biður til Guðs á hverjum
degi að uppfinning Zolezzi geti
hjálpað okkar minnsta bróður.
Alfredo Zolezzi horfir á uppfinningu
sína sem gæti hjálpað milljónum.
Vatn fyrir
fátæka
Vatnið skiptir um ham og verður að
lofttegund.
Ódýrt Adler safa-
pressa 350 wött.
Pressar bæði ávexti
og grænmeti. Sía úr
ryðfríu stáli. Fer að-
eins í gang ef lok er á
réttum stað. Gúmmí-
fætur tryggja stöð-
ugleika.
Verð 7.500 krónur
Fæst í Smith & Nor-
land.
Miðlungs Philips
Safapressa. 700
watta. Tekur hart
grænmeti og ávexti
og engin þörf á að
taka fræin úr eða
börkinn af. 0,8 lítra
safakanna og má
setja í uppþvottavél.
Verð 28.995
Fæst í Heimilis-
tækjum.
Dýr Multi safa-
pressa 1500 wött,
kanna fyrir safa
1,2 lítrar, kanna
fyrir hrat 3 lítrar.
Fyrir mjúka og
harða ávexti
Fimm hraðastill-
ingar
Verð 79.990
krónur
Fæst í Ormsson.
ÓDÝRT, MIÐLUNGS OG DÝRT
Safapressa