Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Blaðsíða 57
18.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Á sunnudaginn klukkan 17
koma Hallveig Rúnars-
dóttir sópran, Sigríður Að-
alsteinsdóttir messósópran
og Birna Hallgrímsdóttir píanóleikari
fram í tónleikaröðinni áhugaverðu
„Perlur íslenskra sönglaga“ í Kalda-
lóni.
2
Tónlistarunnendur ættu að
steðja í Langholtskirkju á
laugardag þar sem klukkan
16 hefst flutningur á hinni
mikilfenglegu Mattheusarpassíu eftir
J.S. Bach. Flutningurinn er í tilefni af
50 ára starfsafmæli Jóns Stefánssonar,
stjórnanda Kórs Langholtskirkju.
Benedikt Kristjánsson syngur
hlutverk guðspjallamannsins.
4
Á sunnudag klukkan 15 held-
ur Chrissie Telma Guð-
mundsdóttir útskriftar-
tónleika í Salnum í Kópavogi
en hún útskrifast með Bmus-gráðu í
fiðluleik frá tónlistardeild Listahá-
skóla Íslands í vor.
5
Um helgina eru þrjár sýn-
ingar á leikverki Kristjáns
Ingimarssonar og félaga,
BLAM!, sem hefur aftur
verið tekið til sýninga í Borgarleik-
húsinu. Þeir sem séð hafa hrífast allir
af markvissum ærslunum og hama-
ganginum og hefur verkið verið sýnt
víða um lönd við afar góðar viðtökur.
3
Áhugafólk um kvikmyndir ætti
ekki að láta Vonarstræti,
nýjustu íslensku kvikmyndina
fram hjá sér fara. Rýnir Morg-
unblaðsins gaf henni fjórar og hálfa
stjörnu og sagði þessa nýju „íslensku
kvikmyndavon [vísa] bjartan veg til
framtíðar.“
MÆLT MEÐ
1
The Five Live Lo Fi er heiti myndlist-arsýningar í fjórum þáttum, sem verðuropnuð fjórum sinnum í Gallerí Kling &
Bang á Listahátíð. Fyrsta opnunin er á
fimmtudagskvöldið kemur, sú næsta á laugar-
dag og tvær til í vikunni á eftir.
Að verkefninu kemur listadúó frá New York,
sem kallar sig E.S.P. TV, og fjórir íslenskir
listamenn, þau Kolbeinn Hugi Höskuldsson,
Helgi Örn Pétursson, Rebekka Moran og Ás-
dís Sif Gunnarsdóttir. Setja þau upp stað-
bundna gjörninga á hverri opnun sem eru
teknir upp af sjónvarpsstöð bandarísku lista-
mannanna. Áhorfendur fylgjast með gjörning-
unum, þar sem hver er eins og rödd sem
spinnur einn þráð en síðan kemur sá næsti
með nýjan þráð sem spinnst saman við þann
fyrsta, og koll af kolli. Í framhaldinu verða
upptökurnar sýndar í galleríinu.
„Bandarísku listamennirnir eru með sjón-
varpsstöð á netinu og þegar þau fara af stað
og halda sýningar þá vinna þau með lista-
mönnum á hverjum stað og taka upp sjón-
varpsþáttaröð með þeim, fyrir framan „green
screen“,“ segir Ásdís Sif. „Hvert okkar er með
sýningaropnun, hún er kvikmynduð og útkom-
unni varpað upp jafn óðum. Performansinn er
tekinn upp og sýndur um leið. Kolbeinn Hugi
byrjar fyrsta kvöldið en eitt kvöldið erum við
öll saman; þetta er myndlistarsýning, perform-
ans og upptaka, allt á sama tíma.“ Hún bætir
við að vegna myndvinnslunnar verði listamenn-
irnir að klæðast einhverju grænu og þá verði
innsetningin að vera græn að einhverju leyti.
„Hver gjörningur er einn til tveir klukku-
tímar. Fólk getur komið og farið á meðan,
þetta eru ekki verk með ákveðið upphaf og
endi, og við erum ólíkir listamenn og
sýningarnar því ólíkar.“
Hvað mun Ásdís Sif gera?
„Ég verð með tveggja tíma performans þar
sem ég fer með ljóð en um leið verður ákveðin
umbreyting í annan karakter. Eftir 31. maí
verður hægt að skoða allar upptökurnar í
Kling & Bang. Þetta er mjög spennandi verk-
efni,“ segir hún. efi@mbl.is
THE FIVE LIVE LO FI Í KLING & BANG GALLERÍI Á LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
„Performans og upptaka“
„ÞETTA ER MJÖG SPENNANDI VERK-
EFNI,“ SEGIR ÁSDÍS SIF UM SAM-
STARF ÍSLENSKRA OG BANDA-
RÍSKRA LISTAMANNA.
Gjörningar listamanna verða teknir upp af sjónvarpsstöð þeirra bandarísku og sýndir í galleríinu.
„Ég var nú skammaður svolítið en það var allt í lagi, það hafði engin áhrif á mig, breytti mér ekki neitt,“ segir Atli Heimir.
Morgunblaðið/Kristinn
Á fimmtudagskvöldið kemur leikur Kamm-
ersveit Reykjavíkur á opnunartónleikum
Listahátíðar í Hörpu, undir yfirskriftinni
„Pierrot prójektið“. Kammersveitin flytur
verkið „Pierrot lunaire“ eftir Arnold
Schönberg, í sviðsetningu Valerij Lisac. Þá
verður frumflutt nýtt verk Atla Heimis
Sveinssonar. Flytjendur eru Áshildur Har-
aldsdóttir, Rúnar Óskarsson, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, Una Sveinbjarnardóttir,
Hrafnkell Orri Egilsson, Benedikt Gylfason,
Frank Aarnink og Hanna Dóra Sturludóttir.
Pierrot prójekt á
opnunartónleikum
Flytjendur, tónskáld og listrænir stjórnendur; fólkið sem stendur að Pierrot prójektinu.