Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Side 29
27.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Það er ekkert til, heyrist oft úr eld-
húsinu þegar svangt heimilisfólk
opnar ísskápinn í von um ein-
hverjar kræsingar. Örbylgjuofninn
hefur gert marga hugmyndasnauða
og blinda á leyndardóma eldhúss-
ins. Oftast má finna eitthvað í eld-
húsinu sem gera má úr góðan rétt
sem er hvort tveggja í senn nær-
andi og góður fyrir líkama og sál.
Nærri því undantekningalaust er
til eitthvert grænmeti og allir eiga
egg í eldhúsinu. Það fyrsta sem ætti
að koma upp í huga fólks er mat-
armikil eggjabaka en hún krefst
ekki mikils undirbúnings eða vinnu.
Eina sem þarf að gera er að hræra
nokkur egg, skera niður grænmet-
ið og finna krydd eftir smekk. Sum-
ir vilja steikja grænmetið fyrst í
stuttan tíma áður en eggjahræran
er sett út á heita pönnuna en aðrir
kjósa að hafa grænmetið óhitað.
Hver sem smekkur manna er þá er
þetta einfaldur og léttur réttur og
er hægt að nota afgangs skinku,
grænmeti og jafnvel rækjur ef þær
eru til í frystinum. Nú ef allt bregst
og það er raunverulega lítið sem
ekkert til er alltaf hægt að bjarga
sér með hafragrautnum. Graut-
urinn þarf þó ekki að vera bragðlít-
ill og daufur. Kanill og epli gera
mikið fyrir hafragrautinn og sum-
um finnst mjög gott að mauka ban-
ana ofan í heitan hafragraut. Eld-
húsið er undaheimur og oftast má
finna eitthvað sem hræra má sam-
an í góðan rétt.
Eldað upp úr
því sem til er í
ísskápnum og
eldhússkúffum
Í eldhúsinu er oftast að finna nægan
mat til að gera hina bestu rétti þó í
fyrstu líti út fyrir að ekkert sé til.
Morgunblaðið/Kristinn
Besta svarið við rigningunni er góð
kaka og heitt súkkulaði. Til eru ótelj-
andi uppskriftir af kökum og öðrum
kræsingum en hér kemur ein einföld
og fljótleg uppskrift að döðluköku.
DÖÐLUKAKA
500 gr. döðlur
½ dl kókosmjöl
1 ½ dl. kókosólí
1 ½ dl. hafamjöl
100 gr. dökkt súkkulaði
1 banani og ávextir eftir smekk
Þeir sem láta döðlurnar ekki liggja í
vatn yfir nótt geta soðið þær í örlitlu
vatni í 10 mínútur og leyft þeim að
kólna í um það bil 15 mínútur þegar
búið er að taka þær af hellunni. Kókos-
olía er brædd í vatni og sett í mat-
vinnsluvél ásamt döðlunum, hafra-
mjöli, kókosmjöli og einum banana.
Öllu er hrært vel saman í mat-
vinnsluvélinni og síðan sett í kökumót.
Ágætt er að geyma kökuna inni í ísskáp
til að leyfa henni að harðna örlítið og
síðan má skreyta hana með ávöxtum
og bera hana fram með rjóma. Þá má
einnig smyrja á hana rjóma og raða
bláberjum, jarðarberjum og vínberjum
ofan á og saxað súkkulaði dreift yfir.
HEITT SÚKKULAÐI
175 g suðusúkkulaði
2 dl vatn
1 l mjólk
Dass af salti
Vatnið er hitað að suðu, ekki sjóða
það, og súkkulaðið látið bráðna í því.
Hræra þarf duglega í á meðan og þegar
súkkulaðið er bráðnað er bætt út í
mjólkinni og hitað upp að suðu. Að
lokum er sett salt út í og þá er súkku-
laðið tilbúið. Þá er ekkert eftir en að
kalla saman vini og fjölskyldu til að
njóta.
Heitt súkkulaði og góð kaka bætir upp veðrið sem hefur alls ekki verið
upp á marga fiska í höfuðborginni í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
Heitt súkkulaði og döðlukaka