Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Síða 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.7. 2014 BÓK VIKUNNAR Bernska, fyrsta skáldsaga Lev Tolstoj, sem byggist á uppvexti hans, er hreint dásamleg bók sem unn- endur fagurbókmennta mega ekki láta framhjá sér fara. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is Í haust er væntanleg hjá bókaforlaginuSölku íslensk þýðing á bókinni WhereMemories Go en þar skrifar Sally Magnusson fréttamaður um móður sína, Mamie Baird, sem var þekktur blaða- maður og giftist Íslendingnum Magnúsi Magnússyni sem var frægur sjónvarps- maður í Bretland. Mamie fékk alzheimer og bókin fjallar um baráttuna við þenn- an skelfilega sjúk- dóm. Í starfi sínu sem blaðamaður vann Mamie með orð og hafði feikna- gott vald á þeim, en hlaut þau örlög að glata þessari leikni, hætti að kunna skil á umhverfi sínu og þekkti ekki lengur þá sem stóðu henni næst. Bók Sally er einkar fallega skrifuð, ein- læg og áhrifamikil. Í bókinni dregur hún upp sterkar myndir af móður sinni og birtir í bókinni merkilegt og að ýmsu leyti snilldarlegt bréf sem móðir hennar sendi henni stuttu áður en Sally gekk í hjónaband. Þar kynnist lesandinn Mamie kannski best og sér konu sem var stál- greind og bjó yfir æðruleysi, þolgæði og gnægð af góðvild. Sally dregur upp sterkar myndir af fjölskyldu sem átti saman margar gleðistundir en upplifði líka sára sorg þegar son- urinn Siggy, ellefu ára gamall, varð fyrir bíl og dó. Yngri sonurinn Jon var átta ára gamall þegar það gerðist og tók eftir því að hár móður hans varð nánast grátt strax eftir slysið. Mamie lagði sig mjög fram við að leyna sársauka sínum og hélt áfram að vera eftirlifandi börnum sínum glaðlynd og hláturmild móðir, en grét í einrúmi. Bókin er sneisafull af eftirminnilegum myndum. Ein þeirra er af Mamie þar sem hún situr við sjúkrabeð eiginmanns síns þar sem hann er fárveikur og vart með meðvitund og hún minnir hann á að þau eigi bráðum hálfrar aldar brúðkaups- afmæli og raular fyrir hann Sofðu unga ástin mín. Sally kemur víða við í bókinni og fjallar þar um þá niðurlægingu sem fólk sem þjáist af heilabilun þarf að þola á stofn- unum og hjúkrunarheimilum sem eiga að gæta að velferð vistmanna og sjúklinga en gera það ekki. Afskiptaleysið stafar ekki af mannvonsku heldur af skilnings- leysi, skorti á þolinmæði og uppgjöf sem til dæmis vinnuálag getur skapað. Where Memories Go er stórmerkileg bók og það er sannarlega ástæða til að fagna væntanlegri útkomu hennar hér á landi. Orðanna hljóðan STÓR- MERKI- LEG BÓK Sally Magnusson fréttamaður hjá BBC. Bók sem hefur vakið athygli og umtal. S tefán Máni hlaut nýlega Blóðdrop- ann, verðlaun Hins íslenska glæpafélags, fyrir glæpasögu árs- ins 2013, sem er Grimmd. Þetta er í þriðja sinn sem Stefán Máni hlýtur Blóðdropann, en áður hefur hann hlot- ið verðlaunin fyrir Skipið og Húsið. Enginn annar íslenskur rithöfundur hefur leikið þetta eftir. „Það er alltaf gaman að fá klapp á bakið en þessi viðurkenning breytir engu um það hvernig bækur ég mun skrifa, ég held minni áætlun,“ segir Stefán Máni, sem skipti nýlega um forlag, færði sig frá Forlag- inu og er nú höfundur hjá Sögu útgáfu. „Ég hef gert þetta áður, fór frá Eddunni á sínum tíma yfir á Forlagið, sem þá var fremur lítið forlag. Það var mjög hressandi breyting og ég er að upplifa það aftur núna að fara frá fyrirtæki sem mér finnst vera orðið of stórt yfir í grasrótarstemningu þar sem menn snúa bökum saman og stefna í sömu átt. Það á vel við mig,“ segir Stefán Máni. Sögur taka fagnandi á móti Stefán Mána og forlagið hefur endurútgefið í kilju tvær eldri bækur hans, Myrkravél og Skipið, en sú síðarnefnda var árið 2010 útnefnd glæpa- saga ársins í bókmenntatímaritinu Liré í Frakklandi. Stefán Máni er spurður hvaða tilfinningar hann hafi til þessara bóka. „Myrkravél skipar stóran sess í huga mínum því hún er fyrsta bókin sem var útgefin eftir mig,“ segir hann. „Þótt hún sé stutt var ég lengi að skrifa hana og það kostaði nokkurt erfiði að koma efninu á blað. Ég er ennþá ánægður með þá bók. Hún fór mjög hljótt fyrir fimmtán árum og mér finnst komin tími til að minna á hana. Bókin er knöpp frásögn manns sem er stórgallaður en ætlar engum illt, en það er samt sú braut sem búið er að marka honum. Lesandinn fær ákveðna sam- kennd með honum en ég held að það sé samt erfitt að láta sér þykja vænt um hann. Þetta er maður sem fer framhjá kerfinu en í bók- inni er gefið sterklega í skyn að hægt hefði verið að grípa inn í og afstýra því sem gerð- ist. Þetta er bók sem fjallar meðal annars um afskiptaleysi. Skipið er stóra bókin mín, sló í gegn og var þýdd á átta tungumál. Ég á ennþá eftir að slá sölumetið sem ég setti þá. Kannski er ég alltaf að skrifa í skugga Skipsins. Skipið er dálítið einstök, mér þykir mjög vænt um hana.“ Ný bók er væntanleg frá Stefáni Mána í haust, sálfræðidrama sem hann vill að svo stöddu ekki segja mikið um. „Mig langar að láta verkin tala og þess vegna vil ég ekki segja mikið um efni bókarinnar en þar er smá stefnubreyting sem er hluti af þessari endurfæðingu sem felst meðal annars í því að skipta um forlag,“ segir hann. „Ég er á tímamótum sem rithöfundur, er að taka beygju, ég ætla ekki að festast í sama farinu og endurtaka mig. Ég er gríðarlega ánægður með bókina, sem er spennandi þótt þar séu engin morð. Hún er dramatísk og fjallar um fjölskyldur og manneskjur.“ HEFUR ÞRISVAR HLOTIÐ BLÓÐDROPANN Á tímamótum „Ég er á tímamótum sem rithöfundur, er að taka beygju, ég ætla ekki að festast í sama farinu og endurtaka mig, “ segir Stefán Máni sem sendir frá sér nýja bók í haust. Morgunblaðið/Styrmir Kári STEFÁN MÁNI HLAUT Á DÖG- UNUM BLÓÐDROPANN FYRIR SKÁLDSÖGUNA GRIMMD. HANN ER BÚINN AÐ FÆRA SIG YFIR Á NÝTT FORLAG, SEM HEFUR ENDUR- ÚTGEFIÐ TVÆR BÆKUR HANS. NÝ BÓK ER VÆNTANLEG Í HAUST. Það eru margar bækur sem hafa fylgt mér lengi. Ég er nýbúin að standa í flutningum og handlék þá þessa góðu vini, til dæmis Dimmalimm, sem ég á í mörgum útgáfum og á hinum ýmsu tungu- málum, meðal annars sem lítið hefti á fjórum tungu- málum. Eins voru þar mjög tætt og löskuð eintök af Selnum Snorra og Vísnabókinni. Sögur og ljóð Ástu Sigurðar hafa fylgt mér síðan 1985. Saga Ástu Sunnudagskvöld til mánudags- morguns hafði mikil áhrif á mig. Spámaður Kahil Gibran og ljóðabókin Aldrei kaus ég framsókn eftir Kristján Hreinsson eru í miklu uppáhaldi .Ég er forfallinn aðdáandi myndlistarbóka og mér þykir mjög vænt um Diane Arbus, sem er fyrsta bókin sem maðurinn minn gaf mér. Við útskrift úr listfræði gáfu foreldrar mínir mér Íslensk myndlist I og II eftir Björn Th. Björnsson. Pabbi gaf mér svo doktors- ritgerð Selmu Jónsdóttur, sem hún varði við Háskóla Íslands 1960 fyrst kvenna: Byzönzk dómsdagsmynd í Flatatungu. Þessa þrenningu handleik ég með lotningu. Þegar ég var við nám í Banda- ríkjunum átti ég uppáhalds bókabúð sem heitir The Dusty Bookshelf, þar fann ég listaverkabækur með verkum Toulouse-Lautrec og Norman Rockwell, báðar alveg dásamlegar. Ósjálfrátt eftir Auði Jónsdóttur er bók sem er í miklu uppá- haldi. Eitt fyrsta starf sem ég fékk sem unglingur var að kenna börn- um á skíði hjá skíðadrottningunni margumræddu í bók Auðar. Bók Arto Paasilinna, Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð er óborganleg. Ég missti af flugi í Cancun í Mexíkó af því að ég var í bókabúð. Bókin sem varð til þess að ég varð strandaglópur var The Monk Who Sold His Ferrari. Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarin Leifsson er ein besta barnabók sem ég hef lesið, ég bíð spennt eftir nýju bók- inni hans. Í UPPÁHALDI ÁRÓRA GÚSTAFSDÓTTIR MARKAÐSSTJÓRI Áróra Gústafsdóttir á fjölmargar uppáhaldsbækur. Ein þeirra er Dimma- limm sem hún á í fjölmörgum útgáfum á hinum ýmsu tungumálum. Morgunblaðið/Ómar Dimmalimm.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.