Morgunblaðið - 06.08.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kona slasaðist alvarlega í klifri við
Stjórnarfoss í gær, skammt frá
Kirkjubæjarklaustri. Björgunar-
sveitarmenn frá Kyndli á Klaustri
voru kallaðir á vettvang og komu
konunni, erlendum ferðamanni, til
hjálpar. Sjúkrabíll var einnig send-
ur á staðinn og kallað eftir sjúkra-
þyrlu frá Landhelgisgæslunni.
Búið var um konuna og henni
komið fyrir í sjúkrabílnum á meðan
beðið var eftir þyrlunni, sem kom á
slysstaðinn um klukkan 15. Þyrlan
lenti við mjög erfiðar aðstæður í
þröngu gilinu og flaug svo innar í
það til að ekki þyrfti að aka með
konuna í sjúkrabílnum eftir ósléttu
gilinu að þyrlunni. Konan lá á gjör-
gæslu í gærkvöldi og líðan hennar
var sögð stöðug.
Slasaðist alvarlega
við Stjórnarfoss
Ljósmynd/Guðmundur V. Steinsson
Útkall Erfiðar aðstæður við Stjórnarfoss.
Elín Oddsdóttir
skurðhjúkrun-
arfræðingur er
komin til starfa á
Gaza-ströndinni,
þar sem hún mun
hjúkra stríðs-
særðum á veg-
um Rauða kross-
ins næstu vikur.
Elín starfar með
læknateymi Al-
þjóða Rauða krossins, en mikið álag
er nú á heilbrigðisstarfsfólki Rauða
krossins á Gaza.
Elín starfaði á vegum Rauða
krossins í Suður-Súdan fyrr á þessu
ári og hefur því reynslu af meðferð
stríðssærðra. Aðstæður hjálpar-
starfsfólks Rauða krossins á Gaza
eru sagðar ákaflega erfiðar.
Starfar við hjúkrun
á Gaza-ströndinni
Elín
Oddsdóttir
„Þetta er það sem við erum til-
neyddir til að gera í þessari óvissu,“
sagði Gestur Breiðfjörð Gestsson,
framkvæmdastjóri Sparnaðar, í
samtali við mbl.is í gærkvöldi. Fyr-
irtækið hefur sagt upp öllum fimm-
tíu starfsmönnum sínum.
Uppsagnirnar verða allar dregn-
ar til baka náist samningar á milli
þýska tryggingafyrirtækisins Bay-
ern, sem Sparnaður er umboðsaðili
fyrir, og Seðlabanka Íslands.
Sparnaður segir upp
öllu starfsfólki sínu
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Innheimtustofnun sveitarfélaganna
hefur ekki greitt fjármagnstekju-
skatt af dráttarvöxtum sem stofnun-
in innheimtir. Samkvæmt ársreikn-
ingi stofnunarinnar árið 2012 greiddi
stofnunin 1,4 milljónir króna í fjár-
magnsskatt en hefði átt að greiða 69
milljónir króna miðað við tekjur af
dráttarvöxtum á árinu. Samkvæmt
lögfræðiáliti sem Samtök meðlags-
greiðenda létu gera ber Innheimtu-
stofnuninni að greiða skattinn.
Jón Ingvar Pálsson, forstjóri Inn-
heimtustofnunar, segir að áhöld séu
um það hvort stofnunin eigi að
greiða skattinn. „Við skilum öllum
dráttarvöxtum og meðlögum til rík-
isins mánaðarlega. Ef við eigum að
skila fjármagnstekjuskatti af inn-
heimtum vöxtum, þá er það í raun
hringrás með peninga því þá þyrft-
um við að sækja þá aftur til ríkisins
til að standa straum af greiðslum til
Tryggingastofnunar,“ segir Jón
Ingvar. Hann segir að fjármagns-
tekjuskattur sé greiddur af hagnaði.
Hins vegar myndist enginn hagnað-
ur þar sem dráttarvöxtum sé skilað
til ríkisins mánaðarlega. Hann segir
að endurskoðendur stofnunarinnar
hafi því metið það sem svo að henni
beri ekki að greiða skattinn. „Spurn-
ingin sem svara þarf snýr að því
hvort við eigum að greiða þennan
skatt eða hvort Tryggingastofnun
eigi að taka skatt af þessu sem við
sækjum svo aftur til Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga, sé skyldan til staðar
yfirhöfuð. En ef einhver áhöld eru
um þetta og skattayfirvöld telja að
ekki hafi verið staðið rétt að þessu,
þá gera þau sínar athugasemdir og
málið leysist. Það er enginn að halda
eftir neinum peningum, þessu er öllu
skilað,“ segir Jón Ingvar.
Samtök meðlagsgreiðenda vöktu
máls á vangoldnu sköttunum. Gunn-
ar Kristinn Þórðarson, stjórnarfor-
maður þeirra, telur bagalegt að ekki
sé rétt staðið að skattskilunum.
„Ástæðan fyrir því að við fórum að
skoða fjármagnstekjuskattinn er sú
að við vildum fá að vita hvað Inn-
heimtustofnun átti mikið af uppsöfn-
uðu fé inni á sínum reikningum. En
engar tölur halda vatni og það er
ekki til þess fallið að auka traust á
kerfi sem gengur eins hrikalega
fram gegn borgurunum og Inn-
heimtustofnun gerir,“ segir Gunnar
Kristinn Þórðarson.
Greiðir ekki fjármagnstekjuskatt
Innheimtustofnun sveitarfélaganna greiðir ekki fjármagnstekjuskatt Hringrás með peninga segir
forstjóri stofnunarinnar Ekki traustvekjandi að mati stjórnarformanns Samtaka meðlagsgreiðenda
Morgunblaðið/Ómar
RSK Innheimtustofnunin greiðir
ekki fjármagnstekjuskatt.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Heldur óvenjuleg sending kom í gær með þyrlu
Norðurflugs, sem fer með vistir til starfsfólks
sem starfar við að fylgja ferðamönnum ofan í
Þríhnúkagíg. Var þar í för pitsusendill með flat-
bökur fyrir starfsmenn fyrirtækisins 3H Travel.
„Ferðamenn og vistir koma reglulega til okk-
ar með þyrlu. Allir viðskiptavinir fá kjötsúpu
þegar þeir koma og starfsfólkið okkar hefur
borðað hana líka í allt sumar. Því var komin ei-
lítil þreyta í hópinn að borða þessa kjötsúpu í
sífellu. Við ákváðum af þeim sökum að senda
pitsur með þyrlunni sem var að fara með við-
skiptavini að gígnum,“ segir Ólafur Júlíusson,
einn forsvarsmanna ferðaþjónustufyrirtækisins
3H Travel sem heldur utan um ferðir ferða-
manna ofan í Þríhnúkagíg. Ólafur segir hug-
myndina um að senda sendilinn á staðinn hafa
komið frá Dominos. „Það kom mér í opna
skjöldu en þeim hjá Dominos fannst víst fyndið
að senda hann með þyrlunni,“ segir Ólafur.
3H Travel fer daglega með fjóra til fimm
hópa ofan í Þríhnúkagíg. Gígurinn er gömul eld-
stöð sem gaus fyrir þrjú til fjögur þúsund árum
og liggur í Þríhnúkum, um þrjá kílómetra vest-
ur af skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Inni í Þrí-
hnúkagíg á um 120 metra dýpi er að finna mikla
gíghvelfingu, Þríhnúkahelli, en hann er eitt
stærsta og merkasta náttúrufyrirbæri sinnar
tegundar í heimi og hefur laðað að fjölda er-
lendra ferðamanna frá því að fyrsta skipulagða
skoðunarferðin var farin á vegum fyrirtækisins
árið 2012.
Fengu pitsur sendar með þyrlu
Starfsfólk var orðið
þreytt á kjötsúpunni
Ljósmynd/Ólafur Júlíusson
Óvenjuleg sending Pitsusendill Dominos kom með flatbökur til starfsmanna með þyrlu.
Borgarfulltrúar Reykvíkinga voru í essinu sínu í
Nauthólsvík í gær þegar dagskrá Hinsegin daga
í borginni hófst þar með strandblaki í stíl
Strandvarðanna, eða Baywatch. Dagskráin
stendur út alla vikuna og er mjög fjölbreytt. Há-
tindurinn er gleðigangan í miðborginni á laugar-
daginn.
Á myndinni eru f.v. Halldór Auðar Svansson,
Þórgnýr Thoroddsen, Sóley Tómasdóttir, S.
Björn Blöndal, Eva Baldursdóttir, Eva Einars-
dóttir, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir. »32
Morgunblaðið/Ómar
Gleði og gamanlæti við upphaf Hinsegin daga
Dagskrá í þágu mannréttinda, menningar og margbreytileika í Reykjavík alla vikuna