Morgunblaðið - 06.08.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.08.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2014 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Atvinnuástandið í Vestmannaeyjum hefur sjaldan eða aldrei verið betra og hefur hraður vöxtur ferðaþjón- ustunnar rennt fleiri stoðum undir atvinnulífið, ásamt því að setja mark sitt á mannlífið. Um þetta eru viðmælendur Morgunblaðsins í ferðaþjónustunni í Vestmannaeyjum sammála. Frosti Gíslason, annar eigenda vefsins VisitWestmanIslands.com, segir ferðaþjónustuna í Eyjum mjög háða siglingum frá Landeyjahöfn. „Ferðaþjónustutímabilið er enn sem komið er stutt og takmarkast að mestu leyti við sumarmánuðina. Það má segja að það sé vertíð sem bætist við loðnuna, makrílinn, humarinn, síldina og bolfiskinn. Það er eitt af markmiðum vefsíðunnar að fá fólk til að dvelja lengur í Vestmanna- eyjum og njóta þeirrar ýmsu afþrey- ingar sem í boði er.“ Framboðið kemur á óvart Frosti segir heimsóknir á síðuna hafa margfaldast síðan hún var stofnuð fyrir nokkrum árum, úr 4-5 þúsund á ári í um 56 þúsund. „Á síðunni er hægt að bóka ferðir og nálgast upplýsingar. Fólki finnst þægilegt að geta bókað allt á einum stað. Við bjóðum upp á ferðir fyrir hópa. Markmiðið er að fjölga við- skiptavinum og lengja ferðamanna- tímabilið. Tilkoma Landeyjahafnar hefur skapað nýja möguleika og ferðaþjónustan á allt sitt undir því að hún sé opin.“ Nánast ekkert atvinnuleysi er í Vestmannaeyjum. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar voru þannig 46 án vinnu í Eyjum í júní, 25 karlar og 21 kona. Vestmanneyingar töldust 4.264 um síðustu áramót. Blómatíð í Vestmannaeyjum Arnar Hjaltalín, formaður Dríf- andi stéttarfélags, segir að hluti þeirra sem eru skráðir atvinnulausir hafi skerta starfsgetu, nokkrir séu til sjós á bátum þar sem er árs- tíðabundið hlé og einhverjir séu að leita sér að hlutastarfi. „Sumir þeirra eru að leita sér að vinnu fyrir hádegi. Það hentar til dæmis ekki veitingahúsum. Það má segja að allir sem vettlingi geta vald- ið fái vinnu í Vestmannaeyjum. Það hefur verið skortur á fólki í sumum greinum. Það hefur verið erfitt að manna stöður í ræstingum og þrif- um, til dæmis í frystihúsinu. Þetta er hörkuvinna sem er erfitt að fá fólk til að taka og vinnutíminn hentar ekki öllum. Það hefur líka verið erfitt að finna fólk til að vinna í sumum versl- unum. Þar eru lágir taxtar og lítil vinna. Meginþorri íbúanna nýtur góðs af uppgripum í sjávarútvegi og ferðaþjónustu og hefur það gott. Það er svo mikil vinna í boði að meðal- launin ná því að verða ágæt þrátt fyrir lága taxta.“ – Þarf því að leita erlendra starfs- krafta? „Já, það hefur komið mikið af starfsfólki frá útlöndum. Því hefur fjölgað mikið. Pólverjar eru hættir að koma í stórum hópum. Hingað koma Pólverjar frá öðrum stöðum á landinu. Það má segja að nýbúaþró- unin sé sú að nú komi fólk austar frá Evrópu, frá Búlgaríu og Rúmeníu. Þá á ég við fólk sem flytur til lands- ins vegna vinnu. Pólverjarnir færa sig til innanlands.“ Hestamennskan háð veðrinu Ása Birgisdóttir, annar eigenda hestaleigunnar Lyngfell, segir eftir- spurnina eftir útreiðartúrum mjög háða veðri. Þjónustan hjá Lyngfelli er í boði frá júníbyrjun og fram í miðjan ágúst. „Við erum háð veðri. Ef það er rok og rigning er ekkert að frétta. Júní var mjög lélegur, ábyggilega vegna rigningar. Þá komu fáir ferðamenn til okkar. Júlí hefur hins vegar verið fínn.“ Magnús Bragason, hótelstjóri á Hótel Vestmannaeyjum, segir eftir- spurnina hafa verið góða síðan hót- elið opnaði nýja 24 herbergja álmu í maí. Með því stækkaði hótelið um helming og geta nú um 100 manns gist á hótelinu. Með auknu framboði á gistirými sé hægt að sækja fram á nýja markaði. „Áður gátum við ekki tekið á móti hópum sem sóttust eftir því að koma. Nú geta smærri fyrirtæki og hópar hins vegar komið til Eyja og gist á sama stað. Við finnum að það er mikil eftirspurn eftir gistingu haust og vetur. Margir hafa sýnt því áhuga að halda hér fundi og smærri árshátíðir. Við höfum fengið marga gesti sem ætluðu að koma í dagsferð en komu svo til okkar og spurðu eftir herbergjum af því að dagurinn dugði ekki til að skoða það sem var í boði. Nýja safnið Eldheimar er að slá í gegn ásamt hinum söfnunum Sagn- og Sæheimum. Hér er falleg náttúra og margar skemmtilegar gönguleið- ir sem ferðamönnunum líkar.“ Orðin blómleg atvinnugrein – Hvaða þýðingu hefur vöxtur ferðaþjónustunnar haft á þjón- ustustigið í Eyjum? „Þar hefur orðið algjör bylting. Það er ekki aðeins fólgið í því að geta tekið vel á móti ferðamönnum. Það er orðið miklu skemmtilegra að búa í Vestmannaeyjum. Hér er fjöl- breytt flóra veitingastaða og kaffi- húsa og mannlífið er orðið miklu skemmtilegra. Það hafa verið opn- aðir margir góðir og flottir veitinga- staðir. Maður vonar að þetta lifi allt af.“ – Hvernig er skiptingin milli inn- lendra og erlendra gesta? „Það er miklu meira af erlendum ferðamönnum yfir sumarið. En Ís- lendingar halda þessu uppi vor og haust.“ Gísli Matthías Auðunsson, yfir- matreiðslumaður á veitingahúsinu Slippnum, segir byltingu hafa orðið í veitingahúsamenningu Vest- mannaeyja á síðustu árum. „Það var í raun og veru aðeins einn veitingastaður hér fyrir fimm árum. Sá staður hét Cafe Maria. Síð- an opnaði staður sem hét 900 Grill- hús og svo hefur fjölgunin verið hröð. Eftirspurnin er mjög mikil.“ Fólksflutningar eru líka að aukast. Eimskip áætlar að um 290 þúsund farþegar fari með Herjólfi í ár, eða um 5 þúsund færri en met- árið 2012. Markið var sett á 300 þús- und farþega í ár. Verkföll röskuðu þeirri áætlun. Spáir metumferð á næsta ári Að sögn Gunnlaugs Grettissonar, rekstrarstjóra Herjólfs, féllu þannig niður 37 ferðir í vor vegna verkfalls undirmanna á Herjólfi. Fyrir vikið fóru 4.600 færri farþegar með Herj- ólfi í mars en í sama mánuði í fyrra. Gunnlaugur segir vætutíð hafa átt þátt í því að innlendum ferðamönn- um fjölgaði ekki meira í ár en raun ber vitni. Erlendum ferðamönnum hafi hins vegar fjölgað og það vegið á móti. Hann áætlar aðspurður að ef vel viðrar á næsta ári verði það að líkindum metár í farþegaflutningum með Herjólfi. „Við ásamt Vegagerðinni höfum þá sameiginlegu stefnu að þróa áfram áætlun Herjólfs á komandi ári sem mun gera það að verkum að hægt verður að sigla allt að sex ferð- ir á dag á álagstímum og auka þann- ig sætaframboð Herjólfs. Með því fer hámarksfjöldi ferða á viku úr 34 ferðum í 37.“ Að sögn Gunnlaugs eru siglingar frá Landeyjahöfn orðnar tryggar. Aðeins einn dagur féll niður í sumar, þá var siglt til Þorlákshafnar. Siglt er til Landeyjahafnar frá mars eða apríl og til nóvember eða eins langt inn í veturinn og aðstæður leyfa. Þá taka við siglingar til Þorlákshafnar. Skortur á vinnuafli í Vestmannaeyjum  Uppgrip eru í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum  Nánast ekkert atvinnuleysi er í bæjarfélaginu  Flytja þarf inn vinnuafl frá Austur-Evrópu  Eimskip spáir metumferð með Herjólfi á næsta ári Við Nausthamarsbryggju Skemmtiferðaskipið Prinsendam við höfnina í gær. Í baksýn er skipið Veendam. Gunnar Árnason, kenndur við Lukku, í útreiðartúr með norskum ferðamönnum í Eyjum í gær. Milt og gott veður var í Vestmannaeyjum og settu farþegar skemmtiferðaskipanna mikinn svip á mannlífið. Ljósmyndir/Óskar Friðriksson 24 veitingastaðir » Samkvæmt áætlun Gísla Matthíasar Auðunssonar, yfir- matreiðslumanns á Slippnum, er nú hægt að fara út að borða á 24 stöðum í Eyjum. » Það jafngildir einum stað á hverja 178 íbúa. » Þar af eru sex söluturnar með skyndibita og átta veit- ingahús með matseðli. » Tvö bakarí eru í Eyjum og átta aðrir matsölustaðir. » Slippurinn var opnaður í júlí 2012 og nú í sumar opnaði veitingastaðurinn Gott við Aska Hostel í Eyjum. Frosti Gíslason Arnar Hjaltalín Magnús Bragason Ása Birgisdóttir Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri Eldheimasafnsins, segir aðsóknina að nýja safninu hafa farið fram úr björtustu vonum. Safnið var opnað 23. maí. „Við gerðum okkur vonir um að fá 15.000 gesti í ár. Nú er- um við að ná því og það eru fimm mánuðir eftir af árinu.“ – Hvaða þýðingu hefur þessi góða aðsókn fyrir reksturinn? „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir reksturinn. Það er áhersla lögð á að reksturinn gangi vel. Það er ánægjulegt að taka á móti gestum sem gera sér sérstaka ferð til Vestmannaeyja út af Eldheimum. Öll ferðaþjónustan í Vestmanna- eyjum nýtur góðs af því. Þá á ég bæði við innlenda og erlenda ferðamenn. Íslendingarnir haga ferðalögum sínum dálítið eftir veðri. Þegar vel viðrar fyllist allt af Íslendingum,“ segir Kristín og bendir á að í haust verði opnuð önnur sýning tileinkuð Surtsey. Um 2.500 manns skoðuðu safn- ið opnunarhelgina í maí síðast- liðnum. Um fimm þúsund íbúar Heima- eyjar þurftu að flýja heimili sín 23. janúar 1973 vegna eldgoss. Tíu ár- um áður reis Surtsey úr sæ. Aðsóknin umfram væntingar GOSMINJASAFNIÐ ELDHEIMAR Nýtt safn Gestir skoða gamla gripi. Fæst án lyfseðils. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun. 20% afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.