Morgunblaðið - 06.08.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2014
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það var ekki að sjá að sá fjöldi
ferðamanna sem skoðaði Sól-
heimajökul í gær hefði áhyggjur
af því hættuástandi sem þar ríkir
nú, enda vissu langfæstir af því.
Tveir meðlimir Björgunarsveit-
arinnar Dagrenningar á Hvolsvelli
stóðu vaktina við bílastæðið og
létu fólk vita af stöðu jökulsins og
að það mætti ekki fara út fyrir
lögregluborða sem voru strengdir
við enda göngustígs og til að loka
neðra bílastæði.
Óvissustigi var lýst yfir við Sól-
heimajökul á mánudaginn. Að
undanförnu hafa aðstæður við
sporð jökulsins breyst hratt, segir
í tilkynningu sem almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra sendi frá
sér. Sporður jökulsins gangi nú
fram í jökullón og jakar hafi
brotnað framan úr jökulsporðinum
og fallið í lónið. Við það að jökull-
inn gangi fram í lónið lyftist
sporður hans og nú síðustu daga
hafi fremsti hluti sporðsins lyfst
um 1,5 metra. Ef stærri stykki
brotna framan af jöklinum ryðja
þau frá sér vatni og það getur
valdið flóðbylgju á flatlendinu við
jókullónið. Þá hafi heyrst brestir í
jöklinum, segir í tilkynningunni. Í
kjölfar yfirlýsts óvissustigs var
lokað fyrir umferð niður á bíla-
stæði sem er næst jökullóninu og
ferðamönnum bent á að fara ekki
fram á flata hluta jökulsporðsins.
Óvissustigi verður haldið að
minnsta kosti fram í vikuna eða
þar til staðan verður ljósari.
Enginn orðið til vandræða
Björk Arnardóttir hjá björg-
unarsveitinni Dagrenningu hóf
vaktina við jökulinn klukkan átta í
gærmorgun ásamt félaga sínum og
stóð hana til átta um kvöldið.
„Hlutverk okkar er að vara fólk
við að fara ekki fyrir neðan borð-
ana og biðja það um að vera örugg
í því sem það er að gera. Fólk tek-
ur þessu mjög vel og hefur ekki
orðið til neinna vandræða,“ segir
Björk. „Almennt er fólk að fara
göngustíginn og taka myndir af
jöklinum, það er ekki að sækjast í
að ganga á jökulinn. Þeir sem vilja
ganga á ís eru yfirleitt alltaf með
leiðsögumönnum.“
Björk segir nánast eingöngu er-
lenda ferðamenn heimsækja Sól-
heimajökul og af þeim um 70 sem
hún hafði talað við fyrrihluta gær-
dagsins hafði aðeins einn heyrt af
óvissustiginu sem var lýst yfir við
jökulinn.
Björgunarsveitir á svæðinu
skiptast á næstu daga að standa
vaktina við jökulinn. Ásamt því að
vara ferðamenn við líta þær til
með jöklinum og eru vakandi fyrir
breytingum á honum, þá eru þær í
reglulegum samskiptum við lög-
regluna um stöðu mála.
Vill áberandi
aðvörunarskilti
Það veitir víst ekki af að hafa
björgunarsveitarfólk á vaktinni
enda hefur ekki verið sett upp
skilti til að láta ferðamenn vita af
ástandinu. Á þremur stöðum er þó
lítill pappírsmiði, hálft A4 blað,
með tilkynningu Almannavarna,
ritaðri með smáu letri á ensku.
Einn miði er límdur á stein sem
er við lögregluborðann við enda
göngustígsins, annar á hliðinu sem
var sett upp til að loka neðra bíla-
stæðinu og sá þriðji hangir
frammi á kaffishúsinu. Af-
greiðslustúlkan þar sagðist aldrei
hafa séð neinn lesa tilkynninguna
og svo virtist sem viðskiptavinir
kaffihússins vissu ekkert um
óvissuástandið. Hún sagðist gera
sitt besta til að uppfræða þá.
Ekki eru allir sáttir við þetta
fyrirkomulag en Jono Liew, leið-
sögumaður hjá Íslenskum fjalla-
leiðsögumönnum, fer nokkrar
ferðir á dag á jökulinn og honum
finnst vanta áberandi skilti á
nokkrum tungumálum við bíla-
stæðið sem varar fólk við hætt-
unni. „Fólk ferðast vitanlega á
eigin ábyrgð en það er gott að fá
viðvörun. Ég hef séð ferðamenn
fara of nálægt hættusvæðinu uppi
á jöklinum,“ segir Jono. Leiðsögu-
menn fara nú með hópa upp á jök-
ulinn á öðrum stað en vanalega og
koma þá upp á hann miðjan í stað
þess að vera nálægt sporðinum.
Jono segist sjá mun á jöklinum
nánast á hverjum degi en hann
hefur gengið reglulega á hann
með hópa síðan í vor.
Breytist rosalega hratt
Höskuldur Frímannsson, leið-
sögumaður hjá Kynnisferðum, var
með hóp á svæðinu sem lét sér
nægja að sjá jökulinn frá göngu-
stígnum. Hann hefur varað fólk
við að fara upp á ísinn frá því í
byrjun júlí. „Ég hef veriðað koma
hingað í sumar og séð hvernig
jökullinn þróast þannig að ég hef
passað að fólk sé ekkert að fara
upp á jökulinn. Ég fór að vara
fólki við því snemma í júlí. Jökull-
inn breytist rosalega hratt og lón-
ið stækkar hratt. Meðan þetta er
að gerast veit maður ekki hvernig
hann hagar sér og því er betra að
fara varlega,“ segir Höskuldur.
Ein af þeim sem var að taka
myndir af Sólheimajökli var
Sandra Traper frá Austurríki.
Þetta var annar dagurinn hennar
á Íslandi og fyrstu nóttina gisti
hún á hóteli á Skógum. Hún hafði
þrátt fyrir það ekki heyrt af
óvissuástandinu við jökulinn, ekki
fyrr en hún sá tilkynninguna frá
lögreglunni við enda göngustígs-
ins. Pierre-Yves Durand frá
Frakklandi, sem var í sinni fjórðu
Íslandsferð, var að koma úr göngu
á jökulinn þegar blaðamaður náði
tali af honum á bílastæðinu. Hann
hafði aðeins heyrt um óvissu-
ástandið áður en hann kom að
jöklinum enda gönguferðin fyrir
löngu ákveðin og pöntuð. Hann
segir leiðsögumanninn hafa frætt
þau vel um ástandið og ekki farið
nálægt fremsta hluta jökulsins.
Pierre segir gönguferðina hafa
verið mjög eftirminnilega og hann
hafi ekkert verið hræddur við að
fara á jökulinn þrátt fyrir óviss-
una.
Langfæstir vissu af óvissustiginu
Fjöldi ferðamanna við Sólheimajökul Björgunarsveitir standa vaktina og passa að enginn fari
nærri jöklinum Leiðsögumaður hefur varað fólk við því að fara upp á ísinn síðan í byrjun júlí
Morgunblaðið/Eggert
Pósað saman Margir taka sjálfsmynd af sér með Sólheimajökul í bakgrunni enda fegurri bakgrunnur vandfundinn.
Pierre-Yves
Durand
Jono
Liew
Sandra
Traper
Höskuldur
Frímannsson
Handunnir íslenskir skartgripir úr silfri
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Verð 25.500,- Verð 25.600,-Verð 14.800,-
Verð 34.900,-
Verð 29.900,- Verð 25.700,-
Verð 25.700,-
Verð 17.900,-
Verð 17.900,-
Verð 18.900,-
Verð 17.900,-
Verð 25.700,-
Verð 19.900,-
Verð 14.800,-