Morgunblaðið - 06.08.2014, Blaðsíða 27
1997. Adda Jóhanna hóf síðan störf
við Barnaskóla Vestmannaeyja
1999 og kenndi á yngsta stigi. Hún
var síðan grunnskólakennari í
Vestmannaeyjum til ársins 2012.
Ekki áttavillt í Eyjaskokki
„Í byrjun árs 2012 keyptum við
hjónin Hótel Þórshamar og breytt-
um nafninu á hótelinu, en það heit-
ir nú Hótel Vestmannaeyjar. Þar
hef ég síðan starfað við reksturinn
og haft í nógu að snúast.“
Áhugamál Öddu Jóhönnu snúast
að mestu um hreyfingua og sauma-
klúbbinn hennar, sem er í miklu
uppáhaldi: „Ég hleyp reglulega
með hlaupahópnum Eyjaskokki og
hef tekið þátt í mörgum hlaupum,
m.a. hlaupið heilt maraþon. Þá
starfa ég í hópi sem stendur fyrir
Vestmannaeyjahlaupinu sem fer
fram fyrsta laugardag í september
ár hvert.
En þegar minnst er á áhugamál
má ekki gleyma saumaklúbbnum
mínum. Ég er í mjög skemmti-
legum og litríkum saumaklúbbi
sem heitir Áttavilltar. Sá hópur
samanstendur af bráðhressum
konum sem hittast reglulega. Við
finnum svo alltaf upp á einhverju
skemmtilegu til að bralla saman og
skemmtum okkur konunglega.“
Fjölskylda
Eiginmaður Öddu Jóhönnu er
Magnús Bragason, f. 26.11. 1965,
hótelstjóri. Foreldrar hans eru
Sigríður Magnúsdóttir, f. 9.10.
1945, og Bragi Steingrímsson, f.
1.1. 1944, en þau eru búsett í Vest-
mannaeyjum.
Börn Öddu Jóhönnu og Magn-
úsar eru Daði Magnússon, f. 5.11.
1988, tölvunarfræðingur, búsettur
í Vestmannaeyjum; Bragi Magnús-
son, 13.6. 1990, í námi í byggingar-
verkfræði við HÍ en unnusta hans
er Ragnheiður Perla Hjaltadóttir,
f. 29.11. 1993, nemi í hjúkr-
unarfræði við HÍ; Friðrik Magn-
ússon, 1.7. 1997, nemi í Fram-
haldsskóla Vestmannaeyja en hann
er að fara sem skiptinemi til
Maine í Bandaríkjunum í þessum
mánuði.
Systkini Öddu Jóhönnu eru Jón
Ingi Sigurðsson, f. 21.10. 1959,
vélatæknifræðingur, búsettur á
Sauðárkróki; Sigurbára Sigurðar-
dóttir, f. 1.4. 1963, hárgreiðslu-
meistari, sem er búsett í Kópa-
vogi; Vigdís Sigurðardóttir, f.
14.11. 1973, viðskiptafræðingur,
búsett í Austurríki, og Lilja Sig-
urðardóttir, f. 19.4. 1981, skrif-
stofudama búsett á Sauðárkróki.
Foreldrar Öddu Jóhönnu eru
Sigurður Georgsson, f. 1.3. 1941,
skipstjóri, búsettur í Vestmanna-
eyjum, og Guðný Fríða Einars-
dóttir, f. 12.6. 1941, verslunarkona,
búsett í Vestmannaeyjum.
Úr frændgarði Öddu Jóhönnu Sigurðardóttur
Adda Jóhanna
Sigurðardóttir
Fríður Ingimundardóttir
húsfr. í Eyjum
Jón Hjálmarsson
útgerðarm. í Eyjum
Árna Jóhanna Jónsdóttir
húsfr. í Eyjum
Einar Guðmundur Ólafsson
vélstj. í Hafnarfirði
Guðný Fríða Einarsdóttir
verslunark. í Eyjum
Guðný P. Guðmundsdóttir
húsfr. í Eyjum
Ólafur Einarsson
búsettur í Eyjum
Vigdís Sigurðardóttir
húsfr. í Vestri-Tungu
Sigríður Sigurðardóttir,
húsfr. í Unhól í Þykkvabæ
Guðni Sigurðsson
b. í Háarima í Þykkvabæ
Elías
Baldvinsson
slökkviliðsstj. í
Eyjum
Baldvin Skæringsson
umsjónarmaður Íþróttahússins
í Mosfellsbæ
Guðfinna Sveinsdóttir
húsfr. á Háarima
Sigurður Guðnason
b. í Háarima í Þykkvabæ
Sigurbára Júlía Sigurðardóttir
húsfr. Eyjum
Georg Skæringsson
húsvörður í Eyjum
Sigurður Georgsson
skipstj. í Vestmannaeyjum
Kristín Ámundadóttir
húsfr. á Rauðafelli og Vík
Skæringur Sigurðsson
b. á Rauðafelli og smiður
í Vík, af Bolholtsætt og
Selkotsætt
Hlauparar Adda og Maggi eftir götu-
hlaup í Gautaborg fyrir skömmu.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2014
Miðvikudagstilboð
– á völdum einnota
og margnota borðbúnaði
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 14
Komdu í verslun RVog sjáðu glæsilegtúrval af einnota ogmargnota borðbúnaði íflottum sumarlitum
Di
sk
ar
Se
rv
íe
ttu
r
G
lö
s
Hn
ífa
pö
r
Unnur eða Hulda, sem varskáldnafn hennar, fæddist6.8. 1881, dóttir Benedikts
Jónssonar, bónda á Auðnum í Laxár-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu, og k.h.,
Guðnýjar Halldórsdóttur húsfreyju.
Unnur giftist árið 1905 Sigurði Sig-
fússyni frá Halldórsstöðum í Reykja-
dal og tóku þau sér ættarnafnið
Bjarklind. Sigurður var kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Þingeyinga á Húsa-
vík 1918-35 en eftir það bjuggu þau í
Reykjavík. Þau eignuðust þrjú börn.
Hulda ólst upp á miklu menningar-
heimili, þar sem m.a. var til húsa
Bókafélag Þingeyinga, en faðir henn-
ar var mikill menningar- og félags-
málafrömuður. Hún hlaut góða
menntun í foreldrahúsum og stundaði
nám í einkatímum í Reykjavík. Þá fór
hún tvisvar í utanlandsferðir til að
kynna sér menningu annarra þjóða
og dvaldi þá m.a. um tíma hjá Ís-
landsvininum prófessor William A.
Craigie í Oxford.
Fyrstu ljóð Huldu birtust á prenti
er hún var tvítug og þá undir skáld-
nafninu Hulda. Síðan birtust eftir
hana kvæði í tímaritum sem áttu eftir
að vekja athygli, m.a. stórskálda á
borð við Matthías Jochumsson, Þor-
stein Erlingsson og Einar Benedikts-
son. Hún sendi alls frá sér 18 bækur,
ljóðabækur, smásögur, skáldsögu og
ævintýri.
Ljóð Huldu og önnur verk hennar
fengu yfirleitt vinsamlega dóma þótt
fæstir litu svo á að hún væri á meðal
fremstu skálda þjóðarinnar. Það
þóttu því tíðindi þegar ljóð eftir hana
var annað tveggja sem fengu fyrstu
verðlaun í ljóðasamkeppni vegna
stofnunar lýðveldisins á Þingvöllum
1944. Reyndar er ljóðið sem nú er svo
oft sungið undir heitinu Hver á sér
fegra föðurland, einungis þriðji hluti
ljóðaflokks Huldu sem í heild ber
heitið Söngvar helgaðir Þjóðhátíðar-
degi Íslands 17. júní 1944.
Ljóðin voru send inn undir dul-
nefni. Emil Thoroddsen gerði verð-
launalagið við þennan þriðja hluta af
ljóðaflokknum og hefur hvort tveggja
elst einkar vel með þjóðinni.
Hulda lést 10.4. 1946.
Merkir Íslendingar
Unnur Benediktsdóttir
Bjarklind
101 ára
Lára Jónsdóttir
90 ára
Bjarnfríður Leósdóttir
Margrét Gísladóttir
85 ára
Anne Marsden
Eggert Ólafur Ásgeirsson
Erla Eyjólfsdóttir
Sigurhörður Frímannsson
80 ára
Arnar Sighvatsson
Guðrún Lilja Árnadóttir
Stella Finnbogadóttir
Svanhvít Sigurlinnadóttir
Walter Lúðvík Lentz
75 ára
Ásrún H. Kristinsdóttir
Elín Þorsteinsdóttir
Guðni Gústafsson
Magnús Stefánsson
70 ára
Gissur Tryggvason
Margrét Bjarnadóttir
Ólafur R. Sigurjónsson
Pétur Vilbergsson
Sigurður Hilmarsson
Valgerður Jónsdóttir
60 ára
Birna Björnsdóttir
Bjarni Guðjónsson
Einar Guðmundsson
Guðmundur S.T. Blöndal
Guðrún Valfríður
Sigurðardóttir
Jens Guðfinnur
Hallgrímsson
Páll Kristinn Ingvarsson
Sigrún Ása Sturludóttir
Sigurður Pétur Bragason
Svala Ólafsdóttir
50 ára
Anna Berglind Arnard.
Dungal
Arnaldur Sigurðsson
Eðvald Eyjólfsson
Elísabet Benedikz
Ena Dahl
Jóhanna Hinriksdóttir
Kristinn Jón Bjarnason
Lilja Líndal Aðalsteinsdóttir
Ryszard Mariusz Krzyzak
Steingerður Katla
Harðardóttir
40 ára
Anna Helga Einarsdóttir
Anton Þór Hjartarson
Auður Þórhallsdóttir
Einar Sigmarsson
Eyrún Ósk Guðjónsdóttir
Heiðdís Björk Helgadóttir
Inga Dóra Halldórsdóttir
Marisa Quinonez Corpuz
Pétur Heiðar Freysteinsson
Svavar Pálsson
Þuríður Kristín
Sigurðardóttir
30 ára
Ásta Særós Haraldsdóttir
Daníel Páll Jóhannsson
Geir Elí Bjarnason
Jayson Paraiso
Montemayor
Klara Jenný Sigurðardóttir
Linda Ingólfsdóttir
30 ára Marteinn ólst upp
í Kópavogi og Hafnarfirði,
býr í Reykjanesbæ, lauk
stúdentsprófi frá Flens-
borg og starfar við kvik-
myndagerð.
Unnusta: Sigrún Birta
Sigurðardóttir, f. 1984,
grunnskólakennari.
Foreldrar: Hellen Sigur-
björg Helgadóttir, f. 1956,
grunnskólakennari, og
Einar Eberhardtsson, f.
1952, starfsmaður hjá
Vaka.
Marteinn
Einarsson
30 ára Inga Dóra ólst upp
á Sauðárkróki, býr þar,
lauk tveggja ára námi á
hestabraut við Háskólann
á Hólum og starfar hjá
Póstinum.
Maki: Ingólfur Jón Geirs-
son, f. 1981, sjómaður.
Sonur: Ingimar Eyberg, f.
2009.
Foreldrar: Halldóra
Helgadóttir, f. 1945, hús-
freyja, og Ingimar Páls-
son, f. 1946, fram-
kvæmdastjóri Topphesta.
Inga Dóra
Ingimarsdóttir
30 ára Jenný ólst upp í
Grindavík, býr þar og vinn-
ur í saltfiski hjá Vísi hf.
Maki: Jón Unnar Viktors-
son, f. 1993, sem starfar
einnig hjá Vísi hf.
Börn: Patrekur Ívar, f.
2003, og Antonía Björk, f.
2007.
Foreldrar: Eyrún Björk
Eyjólfsdóttir, f. 1967,
sjúkraliði við Víðihlíð í
Grindavík, og Jens
Sigurðsson, f. 1959, vél-
stjóri.
Jenný Björk
Jensdóttir
Til hamingju með daginn