Morgunblaðið - 06.08.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2014
Þegar þú kaupir bökunardropa frá
Kötlu, styður þú fjölfötluð börn til náms.
Sunnusjóður hefur í meira en 30 ár
aukið námsmöguleika fjölfatlaðra
barna. Katla er helsti bakhjarl sjóðsins.
DROPAR SEM
LOFA GÓÐU
www.sunnusjodur.is www.katla.is/dropar
Evrópska geimfarið Rosetta á að komast á
braut um halastjörnu í dag eftir tíu ára ferða-
lag frá jörðinni. Rannsóknir geimfarsins eiga
að varpa ljósi á það hvernig sólkerfi okkar
myndaðist.
Rosetta ferðast alls rúma sex milljarða kíló-
metra og er nú um 400 milljónir kílómetra frá
jörðinni. Leiðangurinn er metnaðarfyllsta
verkefni sem Geimvísindastofnun Evrópu
(ESA) hefur ráðist í.
Rosetta flaug þrisvar sinnum framhjá jörð-
inni og einu sinni framhjá Mars til að fá þá
þyngdarhjálp sem þurfti til að auka hraða
geimfarsins svo það kæmist á braut um hala-
stjörnuna. Geimfarið var í dvala í 31 mánuð
þegar það var svo langt frá sólinni að geislar
hennar voru of veikir fyrir sólarrafhlöður fars-
ins.
Í geimfarinu er 100 kg þungt könnunarfar
sem á að lenda á kjarna halastjörnunnar í nóv-
ember. Lendingarfarið nefnist Fílæ, eftir eyju
í Níl sem var til forna helguð gyðjunni Ísis, og
á að rannsaka efnasamsetningu stjörnunnar.
Þetta er í fyrsta skipti sem geimfar er sent á
braut um halastjörnu og jafnframt fyrsta til-
raunin til lendingar á halastjörnu.
Halastjörnur eru leifar frá myndun
sólkerfisins fyrir um það bil 4,6 milljörðum ára
og síðan þá hefur efnasamsetning þeirra lítið
sem ekkert breyst. Talið er því að rannsóknin
varpi ljósi á myndun sólkerfisins og hjálpi vís-
indamönnum m.a. að svara spurningunni um
þátt halastjarna í uppruna vatns og lífs á jörð-
inni, að því er fram kemur á stjörnufræði-
vefnum. bogi@mbl.is Heimildir: ESA, CNES
Rosetta nálgast halastjörnuna 67P
Sólin
2004 2007 2010 20. jan. 2014
Braut
um
jörðu Braut hala-
stjörnunnar
Sólar-
rafhlaða
Mæli- og
rannsóknar-
tæki
Knúnings-
kerfi
Fjarskipta-
loftnet
Braut
geimfarsins
Geimfarinu
skotið á loft
Fór
framhjá
Mars
Fór framhjá
smástirninu
Lútesíu
Geimfarið
vakið af
dvala
Þvermál: 4 km
Massi óþekktur
Hiti:
15. maí28. mars
Fílæ vakin
af dvala
Leiðangur
Fyrstu
myndirnar af
halastjörnunni
6. ágúst
Ágústlok Október
Í minna en 100
km fjarlægð frá
halastjörnunni
Kannar 4 eða 5
hugsanlega
lendingarstaði
Rosetta verður
um 30 km frá
halastjörnunni
Ágúst 2015
Rosetta kemst
næst sólinni
Nóvember
Lendingarfarið Fílæ losnar
frá brautarfarinu og hlekkjar
sig við kjarna halastjörnunnar
Geimfarið ferðast rúma 6 milljarða km.
Halastjarnan
Churyumov-
Gerasimenko
Tvöfaldur kjarni
Kostnaður: 1,3 milljarðar evra, jafnvirði rúmra
200 milljarða króna
Markmiðið með leiðangri geimfarsins er að varpa ljósi á hvernig sólkerfi okkar myndaðist.
Fílæ
-70° á yfirborðinu
Á braut um
halastjörnu
Geimfar sent í fyrsta
skipti að halastjörnu
Sex milljarða km flug
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Ísrael sögðust hafa kallað
herlið sitt á Gaza-svæðinu heim í gær
þegar þriggja daga vopnahlé tók gildi
eftir 29 daga blóðsúthellingar.
Ísraelsstjórn sagðist hafa stöðvað
landhernaðinn á Gaza eftir að herinn
hefði náð því markmiði sínu að eyði-
leggja göng sem liðsmenn Hamas-
samtakanna hafa notað til árása á Ísr-
ael. Herliðið er nú í „varnarstöðu“ í
grennd við Gaza, að sögn talsmanns
Ísraelshers.
Vopnahléið tók gildi klukkan átta í
gærmorgun að staðartíma, klukkan
fimm að íslenskum. Margir íbúar
Gaza-svæðisins og nálægra byggða í
Ísrael voru efins um að vopnahléið
héldist í þrjá sólarhringa. Þetta var í
annað skipti á fjórum dögum sem
samkomulag náðist um hlé á árásun-
um og fyrra vopnahléið hafði aðeins
staðið í tæpar tvær klukkustundir
þegar það var rofið.
Yfir 1.900 biðu bana
Vopnahléið tók gildi eftir viðræður
egypskra embættismanna við útlæga
fulltrúa Hamas í Kaíró. Leiðtogar
samtakanna á Gaza-svæðinu sendu
samningamenn til Kaíró í gær og Ísr-
aelar sögðust einnig ætla að taka þátt
í viðræðunum.
Alls hafa 1.867 Palestínumenn látið
lífið í árásum Ísraelshers á Gaza, þar
af voru um 68% óbreyttir borgarar. 63
hermenn og fjórir óbreyttir borgarar í
Ísrael létu lífið í árásum Hamas.
Að sögn Ísraela skutu Hamas-
menn meira en 3.300 flugskeytum á
Ísrael og talið er að Hamas eigi um
3.000 flugskeyti sem samtökin geti
beitt síðar.
Talið er að eignatjónið vegna árása
Ísraelshers nemi allt að 700 milljörð-
um króna, að sögn Palestínumanna.
AFP
Landhernaði lokið Ísraelskir hermenn í skýli í grennd við Gaza-svæðið.
Herlið Ísraela á
Gaza kallað heim
Þriggja daga vopnahlé tók gildi
22 ára gömul indversk kona þykir hafa unnið mikið
þrekvirki með því að synda tæpan kílómetra í breiðu og
straumþungu fljóti á níunda mánuði meðgöngu til að
fæða barn sitt á sjúkrahúsi.
Konan, sem heitir Yellavva, notaði þurrkuð grasker
til að halda sér á floti þegar hún synti frá heimili sínu í
litlu þorpi á eyju í Krishna-fljóti í Karnataka-ríki á
Suður-Indlandi, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.
Þorpsbúarnir nota yfirleitt fleka til að komast á
meginandið en það var ekki hægt vegna mikilla vatna-
vaxta eftir látlausar monsúnrigningar á þessum slóð-
um.
Yellavva segist hafa verið hrædd þegar hún lagðist
til sunds en hafa viljað fæða barnið við öruggar að-
stæður. Engin heilsugæsla væri í heimaþorpi hennar og
hún hefði ekki viljað fæða barnið heima hjá sér. Faðir
hennar, bróðir og frændur hennar syntu með henni, að
því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Íbúar þorpsins og læknar lýstu sundinu sem miklu
þrekvirki.
Synti í foraðsfljóti á steypinum
Leiðtogar þriggja
stærstu stjórn-
málaflokkanna í
Bretlandi undir-
rituðu í gær yfir-
lýsingu þar sem
þeir hétu því að
auka völd Skot-
lands í skatta- og
velferðarmálum
ef Skotar hafna
tillögu um sjálf-
stæði frá Bretlandi í þjóðaratkvæða-
greiðslu 18. september.
Að sögn breska dagblaðsins The
Daily Telegraph var markmiðið með
yfirlýsingunni að slá vopnin úr hönd-
um Alex Salmond, forsætisráðherra
skosku heimastjórnarinnar, fyrir
sjónvarpskappræður sem fram fóru
í gærkvöldi. Salmond mælti þá fyrir
sjálfstæði Skotlands og atti kappi
við Alistair Darling, fyrrverandi
fjármálaráðherra Bretlands, sem fer
fyrir andstæðingum aðskilnaðar frá
Bretlandi.
Skoðanakannanir benda til þess
að þegar Skotar verði beðnir að
velja á milli sjálfstæðis, óbreyttrar
stöðu innan Bretlands eða aukinna
valda skoska þingsins velji flestir
þeirra síðastnefnda kostinn.
George Osborne, fjármálaráð-
herra Bretlands, sagði að yfirlýsing
bresku flokkanna þriggja sannaði að
völd skoska þingsins yrðu aukin ef
Skotar höfnuðu sjálfstæði og einu
máli gilti hvers konar ríkisstjórn
yrði mynduð eftir næstu þingkosn-
ingar í Bretlandi.
Lofa að
auka völd
Skota
Alex
Salmond