Morgunblaðið - 12.08.2014, Side 17

Morgunblaðið - 12.08.2014, Side 17
BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Barack Obama, forseti Bandaríkj- anna, hefur lagt áherslu á að vanda- mál Íraks verði ekki leyst með því að Bandaríkin beiti hervaldi en hefur nú neyðst til að fyrirskipa loftárásir á vígasveitir íslamista í norðanverðu landinu. Stjórn Obama segir að markmiðið með lofthernaðinum sé að vernda jasída og fleiri trúarhópa sem hafa orðið fyrir árásum íslömsku of- stækismannanna, en mikil óvissa rík- ir um markmið hernaðarins til lengri tíma. Óljóst er hvernig Bandaríkja- stjórn hyggst koma í veg fyrir að Ríki íslams, samtök íslamista, geti komið á fót „kalífadæmi“ á yfirráðasvæðum sínum í Sýrlandi og Írak. Stefna Obama í málefnum ríkjanna tveggja hefur sætt gagnrýni vestra, ekki aðeins meðal repúblikana, held- ur einnig demókrata, þeirra á meðal Hillary Clinton, fyrrverandi utan- ríkisráðherra. Obama hefur verið sakaður um að hafa auðveldað stór- sókn íslamistanna síðustu vikur með tvennum hætti; fyrst með því að kalla allt bandaríska herliðið í Írak heim árið 2011 og síðan með því að draga það að vopna hófsamar uppreisnar- hreyfingar í grannríkinu Sýrlandi. Stjórn Obama var mjög hikandi og treg til að senda uppreisnarhreyfing- unum í Sýrlandi bandarísk vopn af ótta við að þau kæmust síðar í hendur íslamskra öfgamanna. Óttast vaxandi ógn Þetta hik varð til þess að hófsamari uppreisnarhreyfingar í Sýrlandi koðnuðu niður vegna skorts á vopn- um og peningum. Margir liðsmenn þeirra ákváðu því að ganga til liðs við Ríki íslams og fleiri samtök íslamista í Sýrlandi. Sú stefna stjórnar Obama að forð- ast íhlutun í stríðinu varð til þess að bandaríski sendiherrann í Sýrlandi, Robert Ford, sagði af sér og kvaðst ekki geta varið hana lengur. Hann tók undir varnaðarorð hermála- sérfræðinga sem telja að þjóðar- öryggi Bandaríkjanna stafi hætta af samtökum íslamistanna. Þeir óttast m.a. að íslamistar, sem bjuggu í Evr- ópu eða Bandaríkjunum og gengu til liðs við samtökin, snúi aftur og fremji hryðjuverk á Vesturlöndum. Repúblikanar á Bandaríkjaþingi hafa gagnrýnt stefnu Obama harka- lega. John McCain og Lindsey Gra- ham, repúblikanar í öldungadeildinni, segja stefnu forsetans í baráttunni við íslamistana hafa einkennst af „hálfkáki“ og nauðsynlegt sé að beita meiri hörku til að brjóta samtökin á bak aftur. „Þeim er útþenslustefna eðlislæg og það verður að stöðva þau,“ sögðu þingmennirnir í sam- eiginlegri yfirlýsingu eftir að Obama tilkynnti takmarkaðan lofthernað gegn vígasveitum samtakanna í Norður-Írak. „Því lengur sem við bíð- um með að grípa til aðgerða, þeim mun meiri verður ógnin sem stafar af þeim.“ Andvíg íhlutun Tengsl ættbálka súnní-múslíma í austanverðu Sýrlandi og í hér- uðunum Anbar og Nineveh í Norður- Írak hafa verið náin öldum saman og óttast er að Ríki íslams geti notfært sér þau til að festa „kalífadæmi“ sitt á svæðinu í sessi. Samtökin geta nú þegar fjármagnað starfsemi sína án utanaðkomandi aðstoðar með skatt- lagningu, fjárkúgunum og tekjum af olíuvinnslu á yfirráðasvæðum sínum, að sögn The New York Times. Þótt stefna Obama sæti gagnrýni er hún í samræmi við almennings- álitið í Bandaríkjunum. Í könnun sem CNN birti í september sl. sögðust um sex af hverjum tíu þátttakendanna vera andvígir því að Bandaríkin beittu hernaði í Sýrlandi. Samkvæmt könnun Pew-rannsóknamiðstöðvar- innar voru aðeins 39% Bandaríkja- manna hlynnt hernaðaríhlutun í Írak í júlí eftir að samtök íslamistanna hófu sókn sína í norðanverðu landinu, stökktu stjórnarhernum á flótta og náðu m.a. borginni Mosul á sitt vald. Saka stjórn Obama um hálfkák  Óvissa um markmið Bandaríkjastjórnar með takmörkuðum lofthernaði í Írak  Þorri Bandaríkja- manna andvígur hernaðaríhlutun  Óttast er að íslamistarnir fremji hryðjuverk á Vesturlöndum AFP Jasídar á flótta Flóttafólk úr röðum jasída fer yfir landamærin að Sýrlandi. Um 20.000 flóttamenn, flestir þeirra ja- sídar, komust af Sinjar-fjalli í Írak eftir að hafa flúið þangað vegna árása vígasveita íslamista sem líta á jasída sem djöfladýrkendur og eru sagðar hafa reynt að útrýma þeim. Trú Jasída sameinar ýmsa þætti úr kristni og íslam. Senda Kúrdum vopn » Bandaríkjaher hefur hafið flutninga á vopnum til hersveita Kúrda í Norður-Írak til að efla þær í baráttunni gegn ísl- amistum. » Bandaríkjamenn eru með ræðismannsskrifstofu og bæki- stöð fyrir bandaríska hern- aðarráðgjafa í Arbil, höfuðstað sjálfstjórnarsvæða Kúrda. FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2014 Forseti Íraks fól í gær varaforseta þingsins, Haidar al-Abadi, að mynda nýja ríkisstjórn og taka við embætti forsætisráðherra af Nuri al-Maliki sem hafði gefið til kynna að hann hygðist berjast fyrir því að hann héldi embættinu. Maliki, sem er sjíti, hafði verið sakaður um að kynda undir átökum milli trúar- og þjóðernishópa í Írak. Hann missti stuðning Bandaríkja- stjórnar og nánast allra annarra bandamanna sinna, t.a.m. áhrifamikilla klerka úr röðum sjíta, stjórn- valda í Íran og jafnvel flokks- bræðra sinna. Abadi er flokksbróðir Malikis og hefur verið náinn sam- starfsmaður hans. Forsetinn sniðgekk Maliki VARAFORSETA ÞINGSINS FALIÐ AÐ MYNDA RÍKISSTJÓRN Haidar al-Abadi Jose Manuel Barroso, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, hringdi í Vladimír Pútín Rúss- landsforseta í gær og varaði hann við hvers konar hernaðaríhlutun í Úkra- ínu. Stjórnvöld í Kreml sögðu að Pútín hefði sagt Barroso að Rússar hygð- ust senda bílalest til að taka þátt í neyðaraðstoð í austanverðri Úkraínu í samstarfi við Alþjóðaráð Rauða krossins. Talsmaður Pútíns sagði að bílalestin yrði ekki í fylgd hermanna og hún hefði verið send með sam- þykki stjórnarinnar í Kænugarði. Notað sem átylla? Rússar hafa beitt sér fyrir vopna- hléi í Austur-Úkraínu og segjast vilja senda þangað bílalest vegna neyðarástands í borgum sem Úkraínuher hefur umkringt í barátt- unni við aðskilnaðarsinna. Leiðtogar vestrænna ríkja óttast að Pútín noti neyðarástandið sem átyllu til að fyrirskipa hernaðaríhlutun í Úkra- ínu. Hermt er að Kremlverjar hafi sent þúsundir hermanna að landa- mærunum að Úkraínu til að undir- búa hugsanlega innrás. Að minnsta kosti 1.500 manns hafa beðið bana frá því að stjórn Úkraínu sendi hersveitir til að binda enda á uppreisn aðskilnaðarsinna sem eru sagðir hafa fengið vopn frá Rúss- landi. Hundruð þúsunda manna hafa flúið heimkynni sín vegna átakanna, margir þeirra til Rússlands. Stjórnarherinn hefur meðal ann- ars umkringt borgina Donetsk, sem var með milljón íbúa áður en átökin hófust. Hermt er að borgin sé án raf- magns og að borgarbúar séu að verða uppiskroppa með matvæli, að sögn fréttavefjar breska ríkis- útvarpsins. bogi@mbl.is Vara Rússa við hernaðaríhlutun  Rússar senda bílalest til hjálpar- starfa í Úkraínu AFP Umsátur Donetsk-búar við inngang sprengjuhelds byrgis í borginni. Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN Snjallara heyrnartæki Beltone First™ Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu og prófaðu, það er engu líkt! Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.