Morgunblaðið - 12.08.2014, Side 35

Morgunblaðið - 12.08.2014, Side 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2014 íðilfagri forleikur er leikinn þar og maður heyrir í hléinu Íslendinga sem hafa sumir hverjir fordóma gegn Wagner segja: „Þetta var nú ótrúlega flott hjá honum Wagner.“ Brúðkaupsmarsinn Hinn frægi Brúðkaupsmars er þekktasta stefið úr Lohengrin. En það var þó ekki Wagner sem samdi textann: „Here comes the bride / all dressed in white.“ Svo skemmtilega vill til að vestræn kirkjubrúðkaup rammast inn af tveimur stefjum: Inngöngumar- sinn frá Wagner og útgöngumar- sinn frá Mendelssohn úr brúð- kaupsathöfninni í Miðsumarnæturdraumi eftir Shakepeare. Þetta er þeim mun skemmtilegra þar sem Wagner var lítið gefinn fyrir tónlist Mendels- sohns, sem var gyðingur. En svona eru örlögin: þeir spinnast stundum saman sem síst skyldi. Litafegurð Eitt af því listrænasta við upp- setningu Neuenfels á Lohengrin í Bayreuth er óvenjulega sterkt og stýrt litaspjald í gegnum alla sýn- inguna. Mest áberandi er litur sakleysisins: hvítur. Lohengrin, sem er að hálfu leyti guð, telur sig geta lifað farsællega í hjónabandi með Elsu ef hún þekkir ekki upp- runa hans og spyr hann aldrei að nafni. Elsa getur ekki staðið við þetta og hjónabandið leysist upp fljótlega eftir að það hefst. Sam- kvæmt Neuenfels sagði Wagner að Lohengrin væri sorglegasta óper- an hans. Og leikstjórinn vitnar í leikskránni óbeint í Wagner sem á að hafa sagt: „Sem kerfi virka maður og kona ekki saman.“ Ætli það gæti verið orsökin fyrir öllum þessum hjónaböndum sem fara í súginn þrátt fyrir innsigli presta og alls konar svardaga? Litaskrautið í sýningunni á ekki síst við um rotturnar, sem eru stundum í skærgulum jakkafötum sem borgarar (með risastórar rottulappir) og stundum í hvítum, svörtum eða bleikum samfest- ingum sem hermenn. Kvenrott- urnar eru einstaklega smekklega klæddar í stuttum, útþöndum silki- kjólum sem eru grænir, bláir eða bleikir og á höfði bera þær strákollur sem slúta næstum niður á axlir: gular, bláar, grænar, rauð- ar. Allt ber þetta vitni um frábæra litanæmni búningahönnuðarins, sem hannar einnig sviðsmyndina; sá heitir Reinhard von der Than- nen og lærði fag sitt í Vínarborg. Famúrstefna og list Í fyrri greininni um óperur Wagners í Bayreuth þetta árið (sem birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 10. ágúst sl.) benti ég á veikleika Franks Castorf sem leikstjóra þegar hann leikstýrði Hringnum. Nú er það svo að Neuenfels notar nánast sömu formúlu og Castorf: bætir heilmiklu við það sem Wagner hafði upprunalega hugsað sér með Lohengrin. Hvers vegna virkar þá önnur sýningin en ekki hin? Þar skilur á milli feigs og ófeigs. Neu- enfels er auðmjúkur leikstjóri sem hefur listræna hæfileika til að sjá bæði skóginn og trén og býr til áferðarfallega sýningu sem snertir við tilfinningastrengjum í áhorf- endum sem Wagner kunni að leika á með tónlist sinni og textum. Ca- storf er hins vegar spýtukarl sem vill stimpla alla hluti með sínum narcissistíska stimpli sem segir: Ég er mikilvægari en Wagner, horfið á það sem mér datt í hug. Að vera leikstjóri er að stunda eitthvert flóknasta starf sem fyrir- finnst á jörðinni. Líklega eru ekki til nema svo sem tíu afburðagóðir leikstjórar í heiminum í dag og þeir eru flestir að fást við kvik- myndir. Einn af dáðustu leik- stjórum 20. aldar var Peter Brook, sem setti upp byltingarkennda sýningu á Miðsumarnæturdraumi Shakespeares hjá Royal Shake- speare Company; og fleiri frábær- ar sýningar setti hann á svið. Hver hefur tekið við kefli Brooks á leiksviðinu? Ég hef ekki komið auga á neinn, nema Neuenfels. Miðar á óperusýningar Ég kynntist nokkrum Bretum í sumar í Bayreuth sem voru búnir að bíða í átta ár eftir miðum á Hringinn. Þeir voru afar svekktir yfir því að lenda síðan á Hring Castorfs. Ef einhvern Íslending langar til Bayreuth, til dæmis til að skoða sýningu Neuenfels á Lo- hengrin, er auðveldast að hafa samband við Selmu Guðmunds- dóttur, sem hefur verið formaður Wagnerfélagsins á Íslandi frá upp- hafi, og þá er tryggt að fólk þurfi ekki að bíða eftir miðum í átta ár. Lohengrin Bayreuther Festspiele/Enrico Nawrath Bayreuther Festspiele/Enrico Nawrath Buguð Elsa (Edith Haller) búin að klúðra hjónabandinu með forvitni sinni um uppruna Lohengrins, en hún hafði lofað að spyrja hann aldrei nafns. Bayreuther Festspiele/Jörg Schulze Barnasýning Eitt það besta sem systurnar sem stjórna hátíðinni í Bayreuth hafa gert er að þjóna börnum með vönduðum sýningum á verkum Wagners: Richard Wagner fyrir börn. Hér sést Lohengrin moka Telramund ofan í leiksviðið. Norbert Ernst syngur Lohengrin og á einhverja mýkstu tóna í rödd sinni sem greinarhöfundur hefur heyrt hjá tenór. Auk þess er hann frábær leikari og hefur gamanleik auðveldlega á valdi sínu, sem fæstir leik- arar hafa. Á stóra sviðinu er það hins vegar Klaus Florian Vogt sem syngur Lohengrin, en hann er dýrkaður og dáður í Þýskalandi. Tríóið Minua hefur hringferð sína um landið með tónleikum í Akra- neskirkju í kvöld kl. 20. Tríóið skipa þeir Luca Aaron gítarleikari, Fabian Willmann bassaklarin- ettuleikari og Kristinn Smári Kristinsson gítarleikari, sem er nýútskrifaður úr tónlistarháskól- anum í Basel. „Saman mynda þeir tregafullan spunahljóðheim þar sem tón- smíðum og spuna er ofið saman og einföldum laglínum teflt á móti fljótandi, óreiðufullum hljómum,“ segir m.a. í tilkynningu frá hópn- um. Tríóið heldur átta tónleika á næstu tveimur vikum. Næstu tón- leikar verða í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði nk. fimmtudag kl. 21 og í menningarhúsinu Bergi á Dal- vík föstudaginn 15. ágúst kl. 21. Í framhaldinu kemur tríóið fram í Akureyrarkirkju, Sláturhúsinu á Egilstöðum, Tónlistarmiðstöð Austurlands og Pakkhúsinu á Höfn. Tónleikaferðinni lýkur með tónleikum á Kex Hostel þriðjudag- inn 26. ágúst kl. 20.30. Allar nánari upplýsingar um stað- og tímasetningu tónleikanna má finna á Facebook-síðu tríósins sem og á vefnum minua.net. Tregafullur spunahljóðheimur Ljósmynd//Susanna Drescher Hringferð Gítarleikararnir Kristinn Smári Kristinsson og Luca Aaron skipa tríóið Minua ásamt bassaklarin- ettuleikaranum Fabian Willmann. Tríóið heldur átta tónleika víðs vegar um landið á næstu tveimur vikum. HEILSA OG LÍFSTÍLL SÉRBLAÐ PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 18. ágúst Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og lífstílsbreytingu haustið 2014. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út sérblað um heilsu og lífstíl föstudaginn 22. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.