Morgunblaðið - 12.08.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.08.2014, Blaðsíða 18
þar hefi ég varið ótal góðum stundum og keypt mér margvíslega hluti til gagns og gamans. Þar var opnuð í jólamánuðinum 1988 verslun sem hét BORIS herravörur og var sérverslun með kölnarvatn, snyrtivörur og annað tilfallandi fyrir herramanninn. Búðin sú var rækilega á undan sinni samtíð og þar sem ekki voru nógu margir eins og undirrit- aður þraut hina ágætu búð örendi á tæpum 4 árum. Síðar rak Gunnar vinur minn þar mikla eftirlætisverslun undir heitinu GK, og þar fékk ég meðal annars jakkafötin sem ég gifti mig í fyrir röskum 11 árum. Mér stóð því ekki á sama um þetta rými, svo ekki sé fastar að orði kveðið og brá því þegar ég sá húsið nú í sumar þegar framkvæmdum við það lauk. Nú er búið að eyðileggja framhlið þessa fallega verslunarrýmis – að mér finnst, vel að merkja – með kauðalegri málmklæðningu og mér sýnist reksturinn í dag snúast um hótelgistingu, nema hvað. Maður skyldi ætla að mýmörg íslensk dæmi síðustu áratuga um verðmæti á sviði byggingarlistar sem fóru forgörðum vegna grátlegrar skammsýni hefðu kennt mörlandanum að skemma ekki það sem vel væri gert. En svo virðist ekki vera og næsta mál á dagskrá er því að vona heitt og innilega að ekki verði byggður hinn skelfilegi steinkumbaldi við hlið Hörpu sem fyrirhug- aður er á hafnarbakkanum. Þar er einfaldlega allt of mikið í húfi til að af megi verða. Mál er að linni og við verðum að halda borginni okkar í horfinu. jonagnar@mbl.is U ndirritaður á því láni að fagna að hafa ferðast talsvert um Evrópu það sem af er ári og heimsótt á ferðum sínum margar fallegar og skemmtilegar borgir, stórar sem smærri, á meginlandinu. Í Lissabon þótti mér einna mest koma til gamla bæjarhlutans ofan við höfnina, og um leið þótti mér Vasco Da Gama-brúin tilkomumikið mannvirki. Í Rotterdam er að sama skapi að finna glæsi- lega brú, kennda við þann fróma heiðursmann Erasmus sem kenndi sig einmitt einatt við téða heimaborg sína. Í Mainz í Þýskalandi, rétt vestan við Frankfurt, er að finna ákaflega fallegan miðbæ þar sem gamlar byggingar hafa fengið að halda svip sínum og sama er að segja um austurrísku borgina Innsbrück; þar er fyrir einstaklega huggulegur kjarni í mið- bænum sem jafnan er nefndur „gamli bærinn“ og þar eru hús sem telja aldur sinn í árhundruðum. Óþarfi er að fjöl- yrða um svipfegurð ítölsku borganna Veróna, Flórens og Písa, að ógleymdu miðaldaþorpinu Montecatini Alto sem stendur efst á hæð í Toskana og strandbænum Bellagio sem stendur við Como-vatn. Allir skarta þessir staðir sérlega fallegum arkitektúr – og þar með miðbæjaranda – sem byggir öðru fremur á því að þar hafa hús fengið að standa óáreitt gegnum tíðina; enginn sá ástæðu til að mola þau mélinu smærra til að byggja eitthvað nýstár- legra. Hér á landi kveður við annan tón, illu heilli. Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá hvernig kom- ið var fyrir húsi einu við Laugaveg sem mér er kært því Jón Agnar Ólason Pistill Að halda borg í horfinu 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Minnimátt-arkenndinhefur haft mikil áhrif í ís- lenskum stjórn- málum á liðnum ár- um, eða að minnsta kosti frá því að vinstristjórninni tókst með ósannindum að fá Alþingi til að samþykkja að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Rökin fyrir aðild voru marg- vísleg, meðal annars að með að- ild myndi fullveldi landsins efl- ast til muna. Fullveldisafsalið væri til þess fallið að styrkja fullveldið í anda slagorðanna alræmdu úr bókinni 1984. Meginsjónarmið margra úr þeim minnihluta landsmanna sem vildi aðild að Evrópusam- bandinu var að Ísland væri of smátt og veikt til að geta verið fullvalda og sjálfstætt ríki og þess vegna yrði það að gefa sig Brussel á vald. Og þau sjón- armið heyrðust að við hefðum haft það langbest undir Dönum og þess vegna væri ástæða til að treysta öðrum fyrir framtíð þjóðarinnar. Þessir baráttumenn fyrir því að Ísland afsalaði sér sjálfs- forræði sínu hafa síðan fundið að enginn áhugi er á því meðal almennings að selja Ísland undir erlent vald. Þeir hafa þess vegna breytt áherslum sínum og orðið talsmenn þess að kosið sé um hvort að ljúka beri viðræðunum við Evrópu- sambandið, eins og það er kall- að. Því fylgir að svo verði kosið um aðildina og spurt hver geti verið á móti því að bera samn- ing undir almenning. Nú er það svo að þessi samn- ingur yrði aldrei til nema að undangenginni aðlögun Íslands að ESB og þá yrði um seinan að hætta við; landið væri í raun búið að taka upp allt regluverk sambandsins og aðeins forms- atriðið væri eftir. En krafan um kosningu er engu að síður ítrekuð hvenær sem aðildarsinnar – sem nú vilja heita viðræðusinnar – hefja upp raust sína, sem er ekki sjaldan miðað við hve fá- liðaðir þeir eru. Látið er að því liggja og jafnvel sagt fullum fetum að þeir sem vilji ekki kosningu um þetta fjarstæðu- kennda mál hafi eitthvað á móti lýðræðinu og jafnvel að þeir treysti ekki fólki. Vitað er að enginn vilji er til þess hér á landi að ganga í Evr- ópusambandið, hvort sem litið er til almennings, þings né rík- isstjórnar. Aðildarsinnarnir láta eins og þetta séu sérstök rök fyrir því að andstæðingar aðildar ættu að vilja kjósa, en þá má spyrja hvort ekki væri ráð að kjósa um fleiri óvinsælar og fjarstæðukenndar hug- myndir? Nú hefur til að mynda verið sett fram sú hugmynd, og tals- vert kapp lagt á að kynna hana og afla henni fylgis, að Ísland gerist hérað í Nor- egi. Líkt og með hina aðild- arsinnana er búið að setja upp vefsíðu þar sem fólk getur skráð stuðning sinn og haldið er uppi áróðri sem er í bland stórfurðulegur og kol- rangur. Því er til að mynda haldið fram, eins og Páll Vilhjálmsson bendir á í skrifum sínum í gær, að óstofnaði Fylkisflokkurinn vinni að „endursameiningu Ís- lands og Noregs með því að Ís- land verði 20. fylki Noregs.“ Páll vitnar til orða Jóns Sig- urðssonar forseta sem sagði: „Það er öllum kunnugt, sem nokkuð vita um sögu landsins, að Íslendíngar gengu í sam- band við Noreg á seinasta stjórnarári Hákonar konúngs Hákonarsonar og fyrsta ári Magnús lagabætis, sonar hans. Ísland gekk í samband við Nor- eg sjálfviljuglega, ekki sem sérstakt hérað eða ey, sem heyrði Noregi til, heldur sem frjálst land, sem hafði stjórnað sér sjálft um rúm 300 vetra, án þess að vera Noregi undirgefið í neinu. Það samtengdist Nor- egi með þeim kjörum, sem Ís- lendíngar urðu ásáttir um við Noregs konúng, og þar á meðal þeim kosti, að öll stjórn þeirra og lög skyldi vera innlend …“ En þó að sögufölsun Fylk- isflokksmanna sé slæm er hún ekkert endilega verri en margt það sem hinir aðildarsinnarnir hafa lagt af mörkum til umræð- unnar um aðild Íslands að Evr- ópusambandinu. Þess vegna verður hvorki séð að veik rök- semdafærslan né rýr stuðning- urinn ætti að verða til að koma í veg fyrir að kosið yrði um það hér á landi hvort Ísland skuli gerast aðili að Noregi ef ástæða væri til að kjósa um að- ild að ESB. Og ef út í það er farið, þá er ekki síður líklegt til óvinsælda að leggja til að Ís- land og hin vestnorrænu lönd- in, Grænland og Færeyjar, slái sér saman í eitt ríki. Væri það síst verri hugmynd en hinar og því einboðið að ganga til kosn- inga um þann kost ef einhver leggur á sig að setja upp heimasíðu, skrifa greinar og mæta í útvarpsviðtöl. Eða vill einhver vera á móti því að fólki verði gefinn kostur á að kjósa um þessa fráleitu kosti? Og væri ekki svakalegt ef næsta ríkisstjórn tæki af skarið og sliti viðræðum við Noreg eða Grænland og Fær- eyjar ef sú stjórn sem nú situr tæki sig til og hleypti slíkum viðræðum af stað með klækja- brögðum og af óheilindum? Eða mætti ef til vill frekar líta svo á að næstu stjórn bæri skylda til að slíta viðræðunum tafarlaust og án frekari mála- lenginga? Er víst að allir aðild- arkostir hafi verið skoðaðir til fulls?} Grænland og Færeyjar? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Skúli Halldórsson sh@mbl.is Byggðastofnun gaf nýveriðút skýrslu um þróunfasteignamats og fast-eignagjalda á árunum 2010 til 2014. Í skýrslunni er not- ast við viðmið undanfarinna ára, einbýlishús sem er 161,1 fermetri að grunnfleti og með 808 fermetra lóð. Við lestur skýrslunnar kennir ýmissa grasa en áberandi er að fasteignamat og -gjöld hafa hækk- að töluvert á undanförnum árum. Þá er ljóst að mikill munur er á þróuninni eftir einstökum þétt- býlisstöðum. Mest hækka fasteignagjöldin á Siglufirði, en þar nemur hækkunin 82,3 prósentum, úr 130.092 krónum í 237.165 krónur. Hólmavík fylgir fast á eftir, þar sem gjöldin hækka um 79,3%, og í Vestmannaeyjum hækka gjöldin um 72,6%. Fasteignagjöldin á þessum stöðum eru þó langt frá því hæsta sem þekkist. Hæst eru fasteigna- gjöldin á Grundarfirði, 318.622 krónur. Til samanburðar eru fast- eignagjöldin í Suður-Þingholtum Reykjavíkur 284.722 krónur. Þar er heildar fasteigna- og lóðamat hins vegar 62,3 milljónir, en sama eign á Grundarfirði væri metin á tæpar 24 milljónir. Matið hækkar mest í Eyjum Snorri Björn Sigurðsson, for- stöðumaður þróunarsviðs Byggða- stofnunar, segir ljóst að gjöldin hafi hækkað töluvert. „Fasteigna- matið hefur þó hækkað sömuleiðis og skýrist hækkun gjalda að mestu leyti af því. Sums staðar hækka gjöldin þó talsvert meira en hækk- un matsins gefur tilefni til og þar liggja líkast til aðrar ástæður að baki.“ Mest hefur hækkun matsins í prósentum verið í Vestmanna- eyjum, 70,6%, og næstmest á Höfn í Hornafirði og á Siglufirði, 64,1%. Eru þetta einu staðirnir þar sem hækkunin á þessum fjórum árum nemur meira en 50 prósentum. Hólmavík liggur þó nærri, þar sem matið hækkar um 48,7%, en hvergi annars staðar hækkar matið um meira en 40%. Á fjórum stöðum lækkar fast- eignamatið á milli áranna 2010 og 2014. Í Borgarnesi var lækkunin mest, 6,3 prósent, og næstmest í Keflavík, eða fimm prósent. Gjöld hækka ekki alls staðar Á tímabilinu hækka heildar fasteignagjöld í þéttbýlisstöðunum almennt meira en fasteignamatið. Aðeins á þremur stöðum hækka gjöldin hlutfallslega minna en fast- eignamatið; á Höfn í Hornafirði, í Stykkishólmi og á Dalvík. Ekki hafa þó öll sveitarfélögin hækkað fasteignagjöld. „Selfoss og Keflavík hafa gengið þar fram fyrir skjöldu og þrátt fyrir litla lækkun í krónutölu munar um minna þegar tillit er tekið til verðbólgunnar,“ segir Snorri. Þá er athyglisvert að af þeim átta sveitarfélögum sem minnst hækka fasteignagjöldin, eru sjö á höfuðborgarsvæðinu. Verðmætið er æði misjafnt Snorri segir að þessi athugun sé um margt fróðleg. „Í raun er þetta merkilegt, þú tekur sömu eignina og setur hana niður á mis- munandi stöðum, þá kemur í ljós að verðmæti hennar er æði mis- jafnt. Þá eru fast- eignagjöldin í rauninni ekki í neinu samræmi við verðmætið. Á höfuðborgarsvæðinu finnurðu dýrustu eign- irnar en þar eru alls ekki hæstu gjöldin.“ Fasteignagjöld fara hækkandi víða Breyting á fasteignagjöldum frá árinu 2010 til ársins 2014 Sig lufj örð ur Hól ma vík Ves tma nna eyja r Rey kjav ík Aku rey ri Egi lsst aðir Ísaf jörð ur Kóp avo gur Kefl avík Heimild: Byggðastofnun 300.000 250.000 200.000 150.000 100.000 50.000 0 2010 2014 *Breyting í % *82,3% *79,3% *72,6% *38,8% *29,1% *19,8% *17,1% *15,7% *-0,3% Af þeim stöðum sem teknir eru fyrir í skýrslunni, er fasteignamatið hæst í Vest- mannaeyjum, á eftir Reykjavík og Akureyri. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir það ánægjulegt. „Þetta ætti þó ekki að koma neinum á óvart. Það gengur vel í Eyjum og íbúum fjölgar ár eftir ár. Ferðaþjónustunni hef- ur mjög vaxið fiskur um hrygg eftir tilkomu Landeyjahafnar. Bætt ástand hefur verið til sjávar, veiðar og vinnsla geng- ið vel auk þess sem gott verð hefur fengist fyrir afla síðustu ár. Á lands- vísu finnum við fyrir aukinni trú á Vest- mannaeyjum. Sjáv- arútvegur er loks- ins að hefja sig til virðingar á ný eftir ákveðna út- úrdúra á árunum fyrir hrun.“ Ætti ekki að koma á óvart STERKUR SJÁVARÚTVEGUR Elliði Vignisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.