Morgunblaðið - 12.08.2014, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að undirbúa þig vandlega
fyrir afdrifaríka ákvörðun. Næsta mánuðinn
munu samstarfsfélagarnir sýna þér venju
fremur mikinn stuðning.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekkert verða til þess að þú stand-
ir ekki við áætlun þína varðandi fjárhaginn.
Gættu þess að færast ekki of mikið í fang
samt sem áður og lofa ekki upp í ermina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt auðvelt með að sleppa
skemmtunum og einbeita þér að verkefnum
sem skipta meira máli. Kannski kemstu á
snoðir um eitthvað sem þú vissir ekki.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu óhræddur við að blanda þér í
umræður annarra um þau mál sem þér eru
hjartfólgin. Fjárhagsvit þitt er ekki uppp á sitt
besta og þú gætir því séð eftir eyðslunni á
morgun.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Beindu kröftum þínum þangað sem þeir
skipta máli. Gefðu þér tíma til þess að njóta
slíkra stunda, þótt þér finnist annað liggja
við.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er hætt við að þú lendir í árekstr-
um í dag. Vendu þig á að taka strax á málum
og leysa þau. Farðu því að segja nei.
23. sept. - 22. okt.
Vog Léttar samræður virðast búa yfir meiri
tilfinningadýpt en endranær. En það að vilja
er ekki sama og að framkvæma. Gott ráð er
að leita skjóls hjá trúnaðarvini sem þarf eng-
in látalæti.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Segðu já ef einhver vill gefa þér
eitthvað í dag sem bætir heimilið. Ekki forð-
ast umræður um þessi mál. Fjármálin eru til
vitnis um hvernig maður hugsar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það kostar ekkert að vera örlátur
á annarra fé. Fólk og tækifæri laðast hrein-
lega að þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur áhyggjur af fjárhagslegri
framtíð þinni. Líttu svo á að allir séu að reyna
að gera sitt besta með þeim verkfærum sem
þeir hafa yfir að ráða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú er tilvalið að bæta sam-
skiptafærni sína. Vertu því reiðubúinn til að
hefjast handa. Gættu þess bara að ofmetn-
ast ekki þegar vel gengur því dramb er falli
næst.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gerðu ráð fyrir því að kynnast nýrri
manneskju í dag. Treystu á innsæi þitt og
láttu ekki efasemdir annarra draga úr þér
kjark.
Honum var augljóslega órótt. Áelleftu stundu gerði hann til-
raun til að henda sér niður. Það var
um seinan – andartaki síðar hékk
hann í gálganum. Lokaorðin voru
vandlega valin, eða ekki: „Jesús“.
Aðeins liðu átján vikur frá því
Peter Allen og félagi hans, Gwynne
Evans, myrtu kunningja sinn, John
West, á heimili hans í Seaton, Eng-
landi, þangað til þeir voru teknir af
lífi. Annar í Liverpool, hinn í Man-
chester. Málið vakti litla athygli á
sínum tíma og dagblöð sögðu aðeins
í fáum orðum frá aftökunum. Þær
urðu þó sögulegar. Evans og Allen
eru síðustu mennirnir sem teknir
voru af lífi í Bretlandi. Á morgun
verða fimmtíu ár síðan.
x x x
Dauðarefsingin var numin tíma-bundið úr gildi árið 1965 og
lögð af fjórum árum síðar. Mikill
meirihluti var fyrir málinu í breska
þinginu og ákvörðuninni almennt
fagnað úti í þjóðfélaginu. Dauða-
refsingin hafði lengi verið umdeild í
Bretlandi, ekki síst eftir að í ljós
kom að Timothy nokkur Evans
hafði verið ranglega dæmdur og
tekinn af lífi árið 1950 fyrir morð á
eiginkonu sinni og kornungri dótt-
ur. Þremur árum síðar leiddi rann-
sókn í ljós að fjöldamorðinginn John
Christie var í reynd ábyrgur. Þá fór
aftaka nítján ára greindarskerts
drengs, Dereks Bentleys, fyrir
brjóstið á mörgum árið 1953 en
hann var dæmdur til dauða fyrir að
hafa hvatt til morðs.
x x x
Peter Allen, 21 árs, og GwynneEvans, 24 ára, voru smákrimm-
ar sem ætluðu að slá gamlan vinnu-
félaga sinn, John West, 53 ára, um
lán. Þegar hann neitaði fauk í þá fé-
laga og lauk viðskiptum þremenn-
ingana með því að West var stung-
inn til bana. Rannsókn málsins gekk
greiðlega enda hafði Evans gleymt
regnkápunni sinni á staðnum. Hún
var merkt. Fyrir dómi vísaði hvor á
annan en dómarinn komst að þeirri
niðurstöðu að þeir væri samsekir.
Ef marka má könnun, sem gerð
var fyrr á þessu ári, vilja 54% Breta
að dauðarefsingin verði tekin upp
aftur. víkverji@mbl.is
Víkverji
Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég
gangi í sannleika þínum, gef mér heilt
hjarta, að ég tigni nafn þitt. (Sálmarnir
86:11)
Fiskidagurinn mikli á Dalvík ernokkurra daga hátíð eins og Ís-
lendingar þekkja mæta vel. Þangað
koma tugþúsundir til að fá ókeypis
fiskmáltíð enda fiskmetið með af-
brigðum hollt. Þetta árið virðast
djúpsteiktar rækjur hafa haft veru-
legan lækningamátt.
Í langri röð við læstar dyr má lýðurinn stikla,
á Djúpsteiktrarækjudaginn mikla.
Á hátíðinni gengur allt alla jafna
vel fyrir sig en í ár kom upp mat-
areitrun tengd eldhúsi í bænum sem
síðan var lokað. Hjálmar Frey-
steinsson las fréttir af tjaldsvæðinu á
Dalvík:
Gestafjöld að Dalvík drífur,
dásemd er þar jarðlífið.
Fjöldinn í sig fiskinn rífur.
Flestum batnar harðlífið.
Þar sem Pétur Stefánsson er einn í
koti lætur hann sína „villtustu mat-
ardrauma“ rætast:
Að borða finnst mér algjört æði,
einatt það ég geri fús.
Svangur brátt ég sest og snæði
saltað hross með góðri mús.
Friðrik Steingrímsson er einnig
ánægður með það sem hann lætur
upp í sig:
Bráðum sest ég borðið við
býðst þá matar næði,
frúin er að sjóða svið
sem að mér finnst æði.
Skúli Pálsson kastar fram vísum
um bjór sem hann átti í fórum sín-
um:
Margoft þegar mæran lög
mér af vörum sleikti
hann í sinni mínu mjög
margar vísur kveikti.
Glösin eru aftur full
eftir viku tafir,
ágætt þá að Egils Gull
yfrið nóg þú hafir.
Eyjafjarðar mætan mjöð
mér í glasið valdi,
alltaf gerir okkur glöð
unaðsbjórinn Kaldi.
Fyrir mesta freðhaus mun
fylgja nokkur mýking,
sálarinnar seiðmögnun,
súpi hann á Víking.
Ásmundur K. Örnólfsson svaraði
að bragði á Boðnarmiði:
Þegar maður fer í frí
fátt mun betur gleðja,
en sumarbústað sitja í
og sötra bjór frá Steðja.
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Vísnahorn
Af fiskidegi, sælkeramat
og sumaröli
Í klípu
„ENGAR ÁHYGGJUR, SONUR SÆLL.
ÞÚ ERT EKKI MÍN TÝPA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÞÚ HEFÐIR EKKI VERIÐ Í FELUM
HEFÐI ÉG AUÐVITAÐ EKIÐ HÆGAR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera þakklát fyrir
svo margt.
VIÐ ERUM
ALVEG HÆTT AÐ
TALA SAMAN!
ERUM VIÐ EKKI BARA
UPPISKROPPA MEÐ
UMRÆÐUEFNI?
MAÐUR ÞARF EKKERT
UMRÆÐUEFNI BARA
TIL AÐ TALA SAMAN!
GRETTIR, ÉG
ER LATUR.
JÁ,
VELKOMINN
Í LIÐIÐ!
NEI! NEI!
KOMDU
AFTUR!
EÐA BORÐA KÖKU
OG HORFA Á
SJÓNVARP?
JÁ! ÞÚ
MÁTT VERA
FYRIRLÐI!
ÆTTI ÉG AÐ
FARA Í RÆKTINA?
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | act@actehf.is
RakvélRakvél
Lithium
rafhlaða
Skeggsnyrtir
Lithium rafhlaða
Alhliða
snyrtitæki
Lithium rafhlaða
Fæst í öllum helstu raftækjaverslunum á Íslandi
Ci96S1 – Silk alhliða hár-mótunartæki
25mm klofin töng sem býr til margar tegundir af hárgreiðsl-
um, meðalstórar krullur, lausar krullur, bylgjur, mjúka liði.
Digital skjár 120-230˚C, hitnar upp á 30 sek., læsing á
hitastillir, slekkur sjálfkrafa á sér
eftir 60 mín., alþjóðlegur s
traumur 120-240V
Hárklippa
S9600-Remington SILK sléttujárn
Digital LCD skjár sem sýnir hitan 150-240˚C
Hitnar á 10 sek. Hægt að læsa hitastilli, digital
skjár sem sýnir hitastig, alþjóðlegur
straumur 120-240V AC 9096 – Remington Silk
hárblásari
Kraftmikill 2400W hárblásari, AC mo-
tor, blæs 140 km/h, kaldur blástur