Morgunblaðið - 13.08.2014, Síða 11
Ljósmynd/Hrólfur Árnason
Keppnisfjör! Kassabílarall er þekkt erlendis, t.d. í Bretlandi, en þar er oftar en ekki keppt í brekkum og geta bíl-
arnir náð gríðarlegum hraða að sögn Guðmundar. Hér heima fer kassabílarallið fram á jafnsléttu.
all. Hann hefur m.a. það hlutverk að
reikna út tíma, en liðin þurfa að
passa að vera á réttum tíma og fá
mínusstig fyrir að vera of fljót eða
of sein inn á brautirnar, alveg eins
og í hefðbundnu ralli.
Rallið krefst nokkurrar hæfni,
að sögn Guðmundar. „Brautin er
þröng og ef þú ætlar að ná að keyra
á sem mestum hraða í gegnum hana
þá verður þú að taka beygjurnar
rétt. Og þú þarft að pæla dálítið í
því hvernig þú gerir þetta ef þú ætl-
ar að ná sem bestum tíma,“ segir
hann. Af þessum sökum, og vegna
þess að yngstu keppendurnir eiga
e.t.v. erfitt með að ráða fullkomlega
við stýrið, fara þeir jafnan hægar
yfir.
Langstærsti hluti þátttakenda
ekur á heimasmíðuðum bílum og
segir Guðmundur rallið oft á tíðum
samstarfsverkefni fjölskyldunnar,
þar sem systkini og/eða frænd-
systkini smíða bílinn og keppa sam-
an. Flestar reglurnar sem gilda um
bílana fjalla um öryggi.
„Það þarf t.d. að hafa bremsu
og það þurfa að vera hlífar yfir
dekkjunum þannig að hár og treflar
flækist ekki í,“ segir Guðmundur, en
reglurnar miða allar að því að koma
í veg fyrir að fólk meiðist í keppn-
inni.
Hugmyndina að kassabílarall-
inu átti Guðmundur, sem er á þeirri
skoðun að hefja eigi ökukennslu í
grunnskóla, jafnvel á 4–6 ára aldri.
„Það er hægt að byrja í kassabíln-
um og aðeins seinna er kannski
hægt að fara í rafmagnsbíla eða eitt-
hvað aðeins öflugra. Að þetta sé
bara eins og sund; eitthvað sem þú
ert alltaf í á hverju ári,“ segir hann
og bendir á að þeir sem komist
lengst í rallinu erlendis séu þeir sem
byrja ungir að árum.
Skráning í rallkeppnina á
sunnudag stendur yfir á kassabila-
rally.is og lýkur kl. 22 á fimmtu-
dagskvöld.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Af hverju geispum við? Í fjölda ára
hafa vísindamenn leitast við að svara
þeirri spurningu en nú hefur banda-
ríski sálfræðiprófessorinn Andrew
Gallup sett fram nýja kenningu, sem
leysir ekki bara ráðgátuna, heldur
sameinar fyrri kenningar undir einum
hatti.
Gallup var enn við nám þegar
honum datt í hug að e.t.v. þjónaði
geispinn því hlutverki að kæla heil-
ann, en tilgáta hans er sú að kjálka-
hreyfingin auki blóðflæði umhverfis
höfuðkúpuna og hjálpi þannig til við
að flytja burt umframhita og að djúp
innöndunin leiði kalt loft upp nef-
holið, umhverfis hálsslagæðina og
aftur í heila. Þá telur hann að andlits-
hreyfingarnar lofti um ganga og
holur í andlitsbeinunum og þurrki
þannig upp slím, sem ætti að kæla
höfuðið líkt og loftræsting.
Í grein sem birtist á vef BBC segir
frá rannsóknum Gallups, sem leiddu í
ljós að 48% fólks fundu til geispi-
þarfar við venjulegar kringumstæður
en þegar það var beðið um að halda
köldum bakstri að enninu létu aðeins
9% verða af geispanum. Þá reyndist
afar áhrifaríkt að biðja fólk um að
anda í gegnum nefið, sem mögulega
kælir heilann, en það slökkti al-
gjörlega geispiþörf tilraunadýranna.
Gallup bað einnig tvær konur sem
þjáðust af krónískum geispa að mæla
líkamshita sinn fyrir og eftir köstin
og komst að því að hann jókst lítil-
lega fyrir en var orðinn lægri þegar
köstin voru yfirstaðin.
Kenningin kann að útskýra af
hverju við geispum á morgnana og
kvöldin, þar sem líkamshitinn eykst
fyrir og eftir svefn. Þá kann örlítil
kæling að hjálpa okkur til að halda
athygli, sem gæti útskýrt af hverju
við geispum þegar okkur leiðist. Þess
ber að geta að kenning Gallups er
umdeild meðal vísindamanna, sem
segja m.a. að hann þurfi að styðja
mál sitt með frekari rannsóknum.
Bandarískur prófessor setur fram kenningu um geispann
AFP
Þreyta? Vísindamenn hafa sett fram fjölmargar tilgátur um geispann.
Geispum við til að kæla heilann?
www.kia.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-1
8
3
4
Nú er Kia Sportage kominn í nýrri útfærslu með breyttu útliti, enn betri
hljóðeinangrun og skemmtilegum nýjungum. Nýr Kia Sportage er öflugur
og sparneytinn sportjeppi sem eyðir frá 6,0 l/100 km í blönduðum akstri.
Fáanlegur beinskiptur og sjálfskiptur.
*Kia Sportage hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga og reyndist
m.a. besti sportjeppinn að mati þýskra bíleigenda 2014 í könnun markaðs-
rannsóknarfyrirtækisins J.D. Power. Þá hefur bíllinn hlotið hin virtu
Red Dot hönnunarverðlaun.
Sparneytinn og kraftmikill dísilbíll
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Verð frá 5.990.777 kr.
2,0 dísil, beinskiptur 6 gíra, 4wd
Kia Sportage – besti sportjeppinn*
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum