Morgunblaðið - 13.08.2014, Side 12
SVIÐSLJÓS
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Norræn djáknaráðstefna verður
haldin í Keflavíkurkirkju í Keflavík
dagana 13.-15. ágúst. 70 djáknar frá
öllum löndum á
Norðurlöndunum
munu sækja ráð-
stefnuna sem er
haldin af Djákna-
félagi Íslands.
Ragnhildur Ás-
geirsdóttir, for-
maður undirbún-
ingsnefndar
Djáknaráðstefn-
unnar og fram-
kvæmdastjóri
Hins íslenska biblíufélags, segir ráð-
stefnuna gera mikið fyrir íslenskt
djáknasamfélag. „Þingið styrkir
tengsl okkar við djákna frá öðrum
Norðurlandaþjóðum mjög mikið, þá
t.d. hvað varðar ráðstefnur og
fræðslu, en einnig gerir þetta okkur
auðveldara að sækja mót og þing
hverjir hjá öðrum. Með slíkri sam-
vinnu er hægt að öðlast meiri víðsýni
á möguleika starfsins með því að fá
nýjar hugmyndir, þekkingu og
reynslu. Það gefur ótrúlega mikið í
okkar litla djáknasamfélag á Íslandi
að fá svona gesti frá öðrum löndum á
Norðurlöndunum til að taka þátt í
þessu með okkur.“
Þetta er í annað sinn sem þingið er
haldið á Íslandi. „Tíu ár eru liðin síð-
an Ísland hélt síðast Norræna djákn-
aráðstefnu í Skálholti, einum helg-
asta stað Íslendinga sem geymir
mikilvæga sögu kristni á Íslandi.
Þingið er haldið árlega í einhverju
landanna á Norðurlöndum og núna
er kominn tími á að við tökum aftur
við keflinu,“ segir Ragnhildur.
Tré plantað sem tákni um vöxt
Á opnun ráðstefnunnar mun bisk-
up Íslands, sr. Agnes M. Sigurðar-
dóttir, planta tré í garð Keflavíkur-
kirkju sem tákni um vöxt kær-
leiksþjónustunnar, mikilvægi þess
að hafa rætur í kirkjunni og aðhlynn-
ingu alls lífs. Þá mun sr. Erla Guð-
mundsdóttir kynna starf Keflavíkur-
kirkju í kjölfar hrunsins, þar sem
hún fjallar um kreppuna, atvinnu-
leysi og viðbrögð safnaðarins við því
ástandi sem skapaðist haustið 2008.
Elísabet Berta Bjarnadóttir flytur
fyrirlestur um handleiðslu sem mik-
ilvægt tæki til að eflast og þroskast í
starfi. Þá mun framkvæmdastjóri
Eurodiaconia segja frá því hvernig
samtökin geta stutt kærleiksþjón-
ustu norrænna kirkna. Fjórar mál-
stofur verða á þinginu: Vilborg
Oddsdóttir mun fjalla um hjálpar-
starf og baráttu gegn fátækt; Guðjón
Ingi Guðjónsson um þjónandi for-
ystu; sr. Ragnheiður Jónsdóttur um
kyrrðarbænina; Ásdís P. Blöndal um
notkun netsins í starfi meðal aldr-
aðra og sr. Vigfús Bjarni Albertsson
fjallar um yfirskrift ráðstefnunnar,
sem er „Vatn og jörð, ís og eldur.
Varðveitum tengslin – styrkjum
þau.“
Hvað er djákni?
Djáknar eru fulltrúar kærleiks-
þjónustu kirkjunnar og eru sam-
starfsmenn presta og gegna
ákveðnum og afmörkuðum skyldum
sem varða t.d. umönnun, líknarmál
og fræðslu. Það getur falið í sér að
fara í húsvitjanir á heimili, æskulýðs-
eða öldunarstarf. Eitt stærsta hlut-
verk djákna er sálgæslan, en hún fel-
ur í sér að hugga, styrkja, leiðbeina
og sætta fólk. Að vissu leyti brúa
djáknar bilið milli prests og sóknar.
Djáknanám er þriggja ára nám og
felur í sér BA-gráðu í guðfræði. Jafn-
framt er hægt að taka námið sem
viðbót við annað framhaldsnám, þá
einkum á sviði félagsráðgafar, upp-
eldis- og hjúkrunarfræði.
Keflavíkurkirkja Ráðstefnan á að styrkja tengsl djákna á Norðurlöndunum.
70 djáknar þinga
Norræn djáknaráðstefna haldin í Keflavík 13.-15. ágúst
Tíu ár eru síðan Ísland hélt slíka ráðstefnu í Skálholti
Ragnhildur
Ásgeirsdóttir
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
„Það er mín skoðun að það sé allt í
lagi að eiga næg hey. Gömlu
bændurnir sögðu að betra væri að
eiga nóg af heyi en mikið af pen-
ingum,“ segir Vilhjálmur Þór-
arinsson, bóndi í Litlu-Tungu í
Holta- og Landsveit. Hann telur
óþarfa að blása það út þótt nú
komi eitt ár þar sem hey séu vel
yfir þörfum, eftir tvö til þrjú ár
þar sem það hafi verið á mörk-
unum að hey væru næg.
Fram hefur komið að einhverjir
bændur hafa ekki keypt plast fyrir
lokahnykk heyskaparins því þeir
eru komnir með allt of mikil hey.
Nota þeir þá rúllurnar í land-
græðslu eða annað.
Vilhjálmur hefur verið stærsti
útflytjandi á heyi til Færeyja und-
anfarin ár. Útflutningurinn minnk-
aði heldur á síðasta ári, miðað við
árið á undan. Vilhjálmur reiknar
ekki með að Færeyingar auki hey-
kaup sín því sumarið hafi verið,
eins og síðasta sumar, eitthvert
það besta og þurrasta sem þar
hafi lengi komið. Færeyskir bænd-
ur hafa því væntanlega getað nýtt
vel sín takmörkuðu ræktunarlönd.
Vilhjálmur ræktar gras fyrir út-
flutninginn í Gunnarsholti og flyt-
ur út hey í svokölluðum stór-
böggum sem eru þægilegir í
flutningi. helgi@mbl.is
Betra að eiga
næg hey en
mikla peninga
Ekki útlit fyrir aukinn útflutning
Morgunblaðið/Hjálmar
Sláttur Bændur verða að slá áfram
til að losna við sinu.
„Það verður sjálfsagt meira framboð en ég reikna ekki með að verðið breyt-
ist mikið, bændur vilja ekki selja undir framleiðslukostnaðarverði,“ segir
Jón Finnur Hansson, framkvæmdastjóri hestamannafélagsins Fáks í
Reykjavík.
Hestamenn eru stórir heykaupendur. Nokkrir stórir framleiðendur sinna
markaðnum með því að flytja heyrúllurnar í hesthúsahverfin. Þar taka
gjarnan smásalar við og þjóna ein-
stökum hesthúsaeigendum. Gjarnan
eru gerðir fastir samningar. Jón
Finnur á ekki von á að þetta breytist
þótt vel geti verið að fleiri bjóði hey
og eflaust séu einhverjir að gera góð
kaup um þessar mundir. Hann telur
þó að málin skýrist ekki almennilega
fyrr en líður fram á haust.
Selja ekki undir kostnaðarverði
STÓRIR FRAMLEIÐENDUR ÞJÓNA HESTAMÖNNUM
Hey Hestaheyið þarf að vera vel þurrkað.
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Sirkus Íslands hefur verið á
faraldsfæti um landið í sumar, en
að sögn Margrétar Erlu Maack
sirkusdrottningar hafa sýning-
arnar gengið mjög vel. „Við vitum
að við eigum okkar aðdáendur í
Reykjavík, enda höfum við sýnt
mikið í borginni undanfarin sjö ár.
Það var því spennandi verkefni að
fara með sýningarnar út á land,“
segir Margrét.
Farandsýningarnar hófust á Ísa-
firði með látum en eftir viku stopp
þar færði hópurinn sig til Akureyr-
ar. Eftir tveggja vikna stopp á
Akureyri fór hópurinn suður til Sel-
foss en í gær hófust tjalduppsetn-
ingar í Reykjanesbæ, þar sem sýn-
ingar hefjast á morgun. „Við
ákváðum að byrja á Ísafirði, þar
sem nokkrir úr hópnum eru þaðan.
Á Akureyri gekk brjálæðislega vel
og var til að mynda uppselt á allar
fjölskyldusýningar okkar seinni
vikuna. Ástandið var svipað á Sel-
fossi, en þar stóð fólk í biðröðum
eftir ósóttum miðum um helgina og
ef séns væri að koma fleiri áhorf-
endum fyrir. Við erum því mjög
spennt fyrir því að sýna í Reykja-
nesbæ,“ segir Margrét.
Sýningum lýkur á sama stað og
þær hófust, í Reykjavík, dagana
20.–24. ágúst næstkomandi, en um
12.000 manns hafa séð sýningarnar
í sumar. „Þegar maður talar við er-
lenda vini sína og segir þeim frá því
hversu margir hafa séð sýning-
arnar miðað við fjölda íbúa verða
þeir alveg steinhissa. Það er því
voða gaman að upplifa þetta allt
saman,“ segir Margrét.
Ljósmynd/Jeaneen Lund
Sumar Sirkus Íslands á sýningu.
Um 12.000 manns
séð sýningarnar
Fóru með sýningarnar út á land
Umboðsmenn um land allt. Kaupfélag Borgfirðinga, Veiðiflugan á Reyðarfirði, SR Byggingavörur á Siglufirði.
15-20% AFSLÁTT
AF VEIÐISTÖNGUM OG VEIÐIHJÓLUM