Morgunblaðið - 13.08.2014, Side 15
Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) valdi ŠKODA Octavia bíl ársins á
Íslandi 2014. Auk þess að vera sigurvegari í flokki stærri fólksbíla fékk ŠKODA
Octavia hæstu einkunn af þeim níu bílum sem öttu kappi í lokaúrslitunum.
Það hefur sýnt sig að ŠKODA Octavia er með allra hagkvæmustu, öruggustu,
þægilegustu og sparneytnustu bílunum í sínum flokki. Það kemur því ekki á
óvart að ŠKODA Octavia var mest seldi bíll á Íslandi árið 2013.
SIMPLY CLEVER
ŠKODA Octavia Combi kostar
frá kr. 3.970.000,-
5 stjörnur í árekstrar-
prófunum EuroNcap
Eyðsla frá 3,8 l/100 km CO2 frá 99g/km
Nýr ŠKODA Octavia Combi
BÍLL ÁRSINS
Á ÍSLANDI 2014
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Útvarpsútsendingar á BBC World
Service, alþjóðaútvarpsstöð breska
ríkisútvarpsins BBC, hófust í dag á
ný á tíðninni 103,5. Á stöðinni eru
sagðar fréttir frá heimsbyggðinni
allan sólarhringinn. Vodafone á Ís-
landi hefur gert samning við breska
ríkisútvarpið um umsjón með dreif-
ingu BBC World Service á höf-
uðborgarsvæðinu og IPTV-
sjónvarpsdreifikerfi félagsins um
land allt.
„Það er ánægjulegt að geta hafið
útsendingar BBC World Service að
nýju hér á Íslandi. Fréttastöðin á sér
marga fasta hlustendur meðal Ís-
lendinga, ekki síst í ljósi vandaðrar
þáttagerðar og fréttaskýringa frá
öllum heimshornum, sem skýrir
mikil viðbrögð þegar útsendingum
var hætt fyrr í sumar,“ segir Stefán
Sigurðsson, forstjóri Vodafone, í
fréttatilkynningu.
Að sögn Þorleifs Jónassonar, for-
stöðumanns Póst- og fjarskipta-
stofnunar, barst fjöldi fyrirspurna
frá hlustendum til fyrirtækisins þeg-
ar útsendingum var hætt í vor.
365 hættu útsendingunni í vor en
fjölmiðlafyrirtækið hafði útvarpað
stöðinni frá árinu 2005 á tíðninni
94,3. Á sama tíma sögðu 365 miðlar
einnig upp útvarpsleyfi og tíðni á
Útvarpi Latabæ í vor. Að sögn
Ágústs Héðinssonar, forstöðumanns
útvarpssviðs 365 miðla, hefur ekki
verið tekin ákvörðun um að hefja út-
sendingar á annarri sambærilegri
barnastöð.
„Allt kostar þetta peninga og við
lifum á auglýsingatekjum. Ekki er
leyfilegt að beina auglýsingum að
börnum. Sama var með BBC, við
fengum engar tekjur og því voru
leyfi ekki endurnýjuð,“ sagði Ágúst.
Útvarp Fréttastöðin BBC World Service á sér marga hlustendur hérlendis.
BBC World Ser-
vice á loftið á ný
Vodafone sendir út á tíðninni 103,5
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, segir að lundaveiði-
menn í Vestmannaeyjum hafi þá
fimm daga sem
lundaveiði var
heimiluðhaldið að
sér höndum og
leyft lundanum
að njóta vafans.
Aðeins börn og
unglingar hafi
fengið að slá fyrir
nokkra lunda.
„Það fóru
nokkuð margir
lundaveiðimenn
saman út í Elliðaey nú um helgina,
en þeir fóru bara til þess að sinna
viðhaldi á húsinu, leiðunum upp í
eyjuna, bólinu og þess háttar. Þeir
leyfðu börnunum og unglingunum
að slá fyrir fugl, og það veiddust
sextán lundar í Elliðaey þessa
daga,“ sagði Elliði í samtali við
Morgunblaðið í gær, á síðasta veiði-
deginum.
Elliði sagði að Elliðaey væri ein af
veiðihærri eyjunum og að hann hefði
heyrt svipaðar frásagnir annarra
lundaveiðimanna sem farið hefðu út
í aðrar eyjar um helgina.
„Það var mjög svipaður háttur hjá
öðrum lundaveiðimönnum. Þeir voru
sjálfir að sinna viðhaldi en börn og
unglingar fengu að slá fyrir fugla.
Menn láta lundann algjörlega njóta
vafans,“ sagði Elliði.
Elliði segir að það hafi verið mat
bæjarstjórnarinnar í Vestmannaeyj-
um, þegar heimiluð var lundaveiði í
fimm daga af þrjátíu daga tímabili
„að höfða frekar til ábyrgðar-
tilfinningar lundaveiðimannanna,
sem hafa gríðarlega þekkingu og
reynslu, en að vera að stjórna veið-
inni eingöngu með boðum og bönn-
um.
Við vitum sem er að lundaveiði-
menn eru ekkert að veiða lunda í
þessu árferði. Þetta leyfi í þessa
fimm daga er meira til þess að við-
halda menningunni og hefðunum og
kenna vinnubrögðin,“ sagði Elliði
Vignisson jafnframt.
Lundaveiðimennirnir
sinntu bara viðhaldi
Ábyrgð, frekar en boð og bönn, segir Elliði Vignisson
Morgunblaðið/Eggert
Ábyrgð Lundaveiðimenn í Vestmannaeyjum sýna ábyrgð og hreyfa ekki við
lundaveiðinni. Börn og unglingar veiddu 16 lunda í Elliðaey um helgina.
Hrun lundans
» Í fyrra veiddust um 300 lund-
ar í Vestmannaeyjum en í eðli-
legu árferði veiðast um 120
þúsund fuglar.
» Ungfygli lundans hafa ekki
komist á legg í 12 ár, samkvæmt
Erpi Snæ Hansen, líffræðingi
hjá Náttúrustofu Suðurlands.
» Í eðlilegu árferði eru 70% af
lundastofninum ungfygli.
Elliði
Vignisson