Morgunblaðið - 13.08.2014, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Björk var yndis-
leg og hlý mann-
eskja sem ég var
svo heppin að
kynnast í kærleikanum árið
2007. Með tímanum tókst með
okkur mikill systrakærleikur
og trúnaðarvinskapur. Við töl-
uðum saman í símann á hverj-
um einasta degi og hittumst
tvisvar til þrisvar í viku og þess
vegna finn ég fyrir miklu tóm-
læti við andlát hennar og sakna
hennar alveg rosalega mikið.
Vegna þess að hún gaf mér
skilyrðislausan kærleika og
mikla vinsemd og var alltaf til
staðar þegar ég þarfnaðist
hennar.
Hvað á ég að gera án henn-
ar? spyr ég bara. Að missa
hana er eins og að missa lík-
amspart sem kemur ekki aftur.
Ég hef sjálf verið í baráttu við
geðsjúkdóm sem ég greindist
með og Björk var mér ómæld
hjálp í baráttunni við hann.
Alltaf kom hún að heimsækja
mig á geðdeildina, alveg sama
hvernig henni leið sjálfri. Und-
antekningarlaust hughreysti
hún mann með orðum sínum,
nærveru og yndisleik. Ég dáð-
ist að henni Björk fyrir svo
marga eiginleika sem hún
hafði, eins og til dæmis hóg-
værðina og lítillætið sem ein-
kenndi hana í sinni baráttu við
sinn sjúkdóm. Og dugnaðurinn
í henni var rosalegur, alltaf fór
hún í göngutúrana og alltaf
mætti hún í Geysi og þjónaði í
kirkjunni.
Einnig starfaði hún ötullega
fyrir Geðhjálp til margra ára
og geri aðrir betur miðað við
veikindin sem hún var að glíma
Björk Agnarsdóttir
✝ Björk Agnars-dóttir fæddist
16. október 1968.
Hún lést á heimili
sínu 29. júlí 2014.
Útför hennar var
gerð 11. ágúst
2014.
við sjálf. Ég reyndi
eins og ég gat að
hughreysta hana í
sínum veikindum
en oft var ég of
veik sjálf til þess
að það væri nokkur
hjálp í mér. Eins
og síðustu dagana
hennar Bjarkar, þá
var ég ekki fær um
að vera henni stoð
og stytta vegna
minna eigin veikinda, en ég
vildi óska þess að ég gæti farið
til baka og sagt henni að það
sem ég gerði væri ekki rétt. Ég
nefnilega sprakk á limminu al-
veg eins og hún og reyndi að
taka mitt eigið líf, en það tókst
ekki og ég ásaka sjálfa mig fyr-
ir að hafa ekki verið betri fyr-
irmynd.
Án Bjarkar er lífið miklu fá-
tækara og gleðisnauðara, ég
sakna svo stundanna sem við
áttum saman.
En ég veit fyrir víst að hún
er komin heim til Guðs eins og
ég veit að hún þráði svo mikið.
Ég trúi því statt og stöðugt að
Jesú hafi leitt hana til Föðurins
og þar er hún núna án kvalar
og án þjáningar; og sé búin að
finna þann frið sem hún þráði
svo mikið en fann ekki hér á
jörðinni.
Björk var ekki af þessum
heimi, hún var af hinum kom-
andi heimi og meiri engil en
hana er erfitt að finna og þess
vegna skil ég Guð að hafa tekið
hana heim til sín þar sem hún á
heima og ég hlakka til að hitta
hana þar þegar mínu lífi lýkur
hér á jörðinni. En nú varir trú,
von og kærleikur, en þeirra er
kærleikurinn mestur og ég hef
sjaldan upplifað eins mikinn
kærleika um ævina og frá
henni systur minni í Kristi og
minni bestu vinkonu, henni
Björk Agnarsdóttur. Blessuð sé
minning þín, elskan mín. Ég
hlakka til að hitta þig aftur í
ríki Guðs.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum)
Kær kveðja,
Svandís Ásta Jónsdóttir.
Elsku Björkin mín, sterkust
allra. Ég hef ekkert vit á trjá-
plöntum en svo mikið er víst að
þú varst sterkust þinnar teg-
undar.
Eins þreyttur og maður gat
orðið á þrjóskunni í þér á með-
an við vorum að alast upp, eins
þakklátur var maður fyrir hana
þegar þú þurftir að takast á við
þær byrðar sem á þig voru
lagðar.
Ég hugsa oft um myndina úr
fornsögunum okkar af köppun-
um Óðni og Þór að glíma við
Elli kerlingu, engin leið var að
ráða niðurlögum hennar, þann-
ig var þín daglega barátta. Ég
hef verið svo stolt af þér, en
gerði mér grein fyrir í sam-
tölum við foreldra þína á und-
anförnum misserum að þú
varst orðin langþreytt á eilífri
baráttu. En við vissum að ekk-
ert annað var í boði.
Á þessu augnabliki er ég
þakklát fyrir gullnar stundir
með þér, eins og þegar þú varst
hjá okkur á meðan Rakel Rósa
var með kórnum sínum í Berl-
ín.
Eða þegar þú sýndir mér fal-
legu íbúðina þína og við sátum
úti í garði í sólinni með veit-
ingar sem þú hafðir útbúið. Nú
er stríðinu þínu lokið og þú hef-
ur fengið frið, eins sárt eins og
það er fyrir okkur sem horfum
á bak þér.
Elsku Agga, Aggi og Rakel
Rósa, ég óska þess að sorgin
bugi ykkur ekki, það hefði hún
Björk okkar ekki viljað. Megið
þið öðlast styrk til að horfa í
þakklæti framávið.
Ykkar
Soffía og fjölskylda
í Berlín.
Kveðja frá Klúbbnum
Geysi
Með sorg í hjarta kveðjum
við hana Björk okkar. Björk
gerðist félagi í Klúbbnum Geysi
í ársbyrjun 2002. Hún tók virk-
an þátt í að halda uppi heiðri
Geysis og var virk í öllu sem
tengdist starfi hans. Hún var
vinur vina sinna og hún gaf sér
alltaf tíma til að spjalla og
spyrja hvernig gengi og hvað
við værum að gera.
Það er mikill missir að sjá
hana ekki lengur koma í klúbb-
inn með alla sína góðu nærveru
og hlýju sem hún gaf okkur öll-
um. Hún átti sína góðu og
slæmu daga eins og við öll, en
þrátt fyrir allt brosti hún alltaf
og gerði sem best úr hlutunum.
Í svefnrofunum
ég man
eitt gamalt
morgunsár
ég vaknaði
eftir vondan draum
í draumi þeim þurfti ég
að byggja brýr
án þekkingar
mér var falið að búa til veggi
án múrsteina
ég þurfti að klífa fjöll
án fylgdar
ég horfði til himins
á fjalli einu
þar bað ég Drottin
að breyta mér
því þá gæti ég
byggt brýr
búið til veggi
og klifið fjöll
(Halla Snorradóttir félagi
í Klúbbnum Geysi.)
Hennar verður fyrst og
fremst minnst sem góðs vinar
sem gaf óendanlega frá sér
vilja og trú um að lífið gæti
alltaf verið betra þrátt fyrir
skúrir. Bjarkar verður sárt
saknað í Geysi og sendum við
fjölskyldu hennar okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
F.h. félaga og starfsfólks
Klúbbsins Geysis,
Þórunn Helga
Garðarsdóttir og Helgi
Halldórsson.
Kær bróðir minn
er fallinn frá eftir
stutt og erfið veik-
indi. Við ólumst
upp ásamt systkin-
um í Borgarnesi. Áttum við
góða æsku ásamt yndislegum
foreldrum. Ég fór að heiman
sextán ára til sjós. Þar af leiðir
að samskipti urðu minni. Þó
hittumst við oft ef mér varð það
á að vera heima. Við höfðum þó
ólíkar skoðanir á ýmsum mál-
um. Virtum við þó skoðanir
hvor annars oftast. Þú hugsaðir
vel um þína nánustu sem var
aðdáunarvert. Kæri bróðir, nú
hefur þú hitt mömmu og pabba
ásamt öðrum ástvinum. Kæri
bróðir, farðu í friði.
Kæra Berglind, Gunnar,
Birna, Björn og Brynja og aðrir
ástvinir, megi almættið halda
verndarhendi yfir ykkur.
Sigurður Sveinsson.
Mér varð verulega mikið
brugðið er ég fregnaði það að
hjartkær jafnaldri minn og
skólabróðir, Jón Valgeir Gísla-
son, væri látinn aðeins 55 ára
að aldri eftir stutt en alvarleg
veikindi.
Jónki, eins og hann var jafn-
Jón Valgeir
Gíslason
✝ Jón ValgeirGíslason fædd-
ist 27. janúar 1959.
Hann lést 25. júlí
2014. Útför Jóns
Valgeirs var gerð
12. ágúst 2014.
an kallaður af okk-
ur skólasystkinum
hans, var einhver
fágaðist og besti
drengur sem hægt
var að hugsa sér
jafnt til orðs og
æðis. Eins og ger-
ist fara hugsanir
um löngu liðna
daga í gegnum
huga manns og upp
í hugann kemur
okkar fyrsti skóladagur í
Grunnskóla Borgarness. Á móti
okkur tók Hildur Þorsteinsdótt-
ir kennari og bauð okkur vel-
komin í skólann, ég held að eins
hafi verið með öll önnur skóla-
systkin okkar, mikil eftirvænt-
ing og spenna lá í loftinu.
Ég man vel eftir því að við
vorum þarna saman komin með
mæðrum okkar því það tíðk-
aðist ekki í þá daga að feður
væru að ómaka sig við slíka
hluti eins og að fylgja börnum
sínum til skóla í fyrsta sinn eins
og þykir sjálfsagður hlutur í
dag
Þarna sá ég í fyrsta sinni að
ég held Jón Valgeir með móður
sinni þessi strákur var grannur
örlítið feiminn, fámáll og hlé-
drægur og var ekkert að trana
sér fram en þegar frá leið var
þarna kominn einhver yndisleg-
asti og besti félagi sem hægt
var að hugsa sér.
Þó að bærinn okkar Borg-
arnes væri ekki stór í þá daga
var ekki svo mikill samgangur
milli hverfa og þennan fyrsta
skóladag sá ég fyrst og kynntist
mörgum af þeim einstaklingum
sem mér þykir hvað vænst um í
lífinu og í þeim góða hópi ert þú
Jónki inn.
Barna- og unglingsárin liðu
hratt og við fórum hvert í sína
áttina til frekari náms og
starfa, fjölskyldur eru stofnaðar
og allt í einu erum við orðin for-
eldrar og farin til þess að fylgja
okkar afkvæmum til síns fyrsta
skóladags líkt og var með okk-
ur.
Árgangur 1959 í Borgarnesi
er sérstakur af því leyti að ást-
úð og umhyggja okkar gagnvart
hvort öðru er einstök sem sést
best á því að við höfum alltaf
hist á fimm ára fresti frá því við
vorum fermd 1973 og alltaf er
spurt frétta af öðrum. Áttum
við síðast saman samverustund
fyrir ári síðan í Ensku-húsunum
við Langá á Mýrum og alltaf er
jafn gaman að hittast og gleðj-
ast saman við minningar okkar
frá liðnum árum, en nú er skarð
fyrir skyldi þig vantar í hópinn
kæri vinur, ekki hvarflaði það
að nokkrum manni þá að þú
sem varst alltaf svo hress og og
kátur og hugsaðir um heilsuna
skyldir verða sá fyrsti af okkar
árgangi til þess að kveðja þetta
jarðlíf.
Jónki var frá okkar fyrstu
kynnum með alla hluti í röð og
reglu einstakt snyrtimenni og
stundaði nám sitt af festu og
ábyrgð, „betra að eins hefði
verið svo komið með aðra“. Því
kom það mér ekki á óvart að
hann skildi leggja fyrir sig sem
lífsstarf endurskoðun og skylda
hluti þar var hann svo sann-
arlega réttur maður á réttum
stað.
Ef maður á að trúa því sem
boðað er að allir eigi sinn stað
hjá guði þá er ekki til einskis
lifað og mikil er og verður eft-
irvæntingin að hitta þar fyrir
alla þá sem manni voru hvað
kærastir í jarðlífinu og þú verð-
ur þar í hópnum minn kæri vin-
ur.
Ég vil að endingu votta fjöl-
skyldu Jóns Valgeirs mína
dýpstu samúð og megi minning
um einstakan og góðan dreng
lifa í hjörtum okkar hinna sem
eftir lifum.
Bjarni Kristinn
Þorsteinsson
Borgarnesi.
Elsku vinur, Jón Valgeir.
Hrifinn á brott í einu vet-
fangi alltof snemma. Enn á ný
eru vegir almættisins óskiljan-
legir.
Hvílík gæfa það var fyrir mig
er við kynntumst fyrir rúmum
29 árum þegar við fórum að
vinna á sömu hæð, þó ekki hjá
sama vinnuveitanda. Strax þá
urðum við miklir vinir og áttum
mörg góð samtöl er ég bý að
enn í dag. Síðustu sjö árin hafa
vinaböndin styrkst enn frekar
og samtölin orðin enn fleiri og
enn betri.
Takk fyrir alla kaffisopana
og rabbið sem við höfum átt
saman. Takk fyrir að hafa alltaf
tíma þegar droppað var inn í
kaffi. Takk fyrir allan þann
góða mat sem þú eldaðir og
bauðst upp á. Takk fyrir allar
þær góðu kveðjur sem ég hef
fengið frá þér síðustu 29 ár.
Takk fyrir að vera vinur minn.
Takk fyrir að vera þú.
Fjölskyldu þinni sendi ég
mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Þar til við hittumst á ný.
Þín vinkona að eilífu.
Magnea.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SVEINN JÓN VALDIMARSSON,
(Nonni),
Klukkuholti 1,
Álftanesi,
lést fimmtudaginn 31. júlí.
Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju,
Garðabæ, föstudaginn 15. ágúst kl. 13.00.
Guðrún Hafberg,
Bryndís Hrönn Sveinsdóttir, Albert Hilmarsson,
Guðmunda G. Sveinsdóttir, Einar Árni Jóhannsson,
Valdimar Jón Sveinsson, Alexandra Hauksdóttir,
Þröstur Jarl Sveinsson, Anný Dögg Helgadóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN MAGNÚSSON,
lést á líknardeild Landspítalans miðvikudag-
inn 6. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju föstudaginn 15. ágúst kl. 13.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynn-
ingar, deildar 11E og líknardeildar
Landspítalans.
Jens Þorsteinsson, Kristrún Sigurðardóttir,
Magnús Þorsteinsson, Anna Eyjólfsdóttir,
Kristín Jóna Þorsteinsdóttir, Hanna Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SKÚLI MAGNÚSSON
garðyrkjubóndi,
Hveratúni,
sem lést þriðjudaginn 5. ágúst, verður
jarðsunginn frá Skálholtskirkju föstudaginn
15. ágúst klukkan 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á gjafasjóð hjúkrunar- og
dvalarheimilisins Lundar á Hellu.
Ásta Skúladóttir, Gústaf Sæland,
Sigrún I. Skúladóttir, Ari Bergsteinsson,
Páll M. Skúlason, Dröfn Þorvaldsdóttir,
Benedikt Skúlason, Kristín Sigurðardóttir,
Magnús Skúlason, Sigurlaug Sigurmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
MARÍA GÍSLADÓTTIR,
lést föstudaginn 29. júlí.
Hún verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju
föstudaginn 15. ágúst kl. 13.00.
Ægir Gísli Gunnarsson,
Aníta Heba og
Hafsteinn Flóki.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
UNNUR ARNGRÍMSDÓTTIR,
framkvæmdastjóri og danskennari,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
föstudaginn 15. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Henný Hermannsdóttir, Baldvin Berndsen,
Arngrímur Hermannsson, Anna Hallgrímsdóttir,
Björn Hermannsson, Bestla Njálsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, sonur og bróðir,
GUNNAR FRIÐRIK ÓLAFSSON,
Álfkonuhvarfi 3,
Kópavogi,
verður jarðsunginn fimmtudaginn 14. ágúst
kl. 13.00 í Vídalínskirkju í Garðabæ.
Guðrún Helga Skúladóttir,
Skúli Kristinn,
Helga E. Gunnarsdóttir, Ólafur Friðriksson,
Guðrún Ólafsdóttir.