Morgunblaðið - 13.08.2014, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Grínsnillingur með stórt hjarta
AFP
Óskar Williams hlaut Óskarsverðlaunin árið 1998 fyrir leik sinn í Good
Will Hunting. Hér sést hann bregða á leik með verðlaunagripinn.
viðtölum við hann þar sem spyrlar
horfðu agndofa á hann fara ham-
förum, vaða úr einni persónu í
aðra á miklum hraða og herma
listavel eftir þekktu fólki.
Ótalmargar kvikmyndir værihægt að nefna sem Williams
brilleraði í: Mrs. Doubtfire (1993)
þar sem hann lék fráskilinn mann
sem ákvað að dulbúast sem roskin
barnfóstra til að geta varið tíma
með börnunum sínum, Dead Poets
Society (1989), The Fisher King
(1991), Awakenings (1990),
Insomnia (2002) , The Birdcage
(1996) og þannig mætti áfram
telja. Þó að Williams hafi tekið að
sér mörg alvarleg hlutverk verður
hans þó fyrst og fremst minnst
sem gamanleikara og ákaflega
hæfileikaríks og bráðfyndins uppi-
standara, eins þess færasta sem
Bandaríkin hafa alið.
Samúðarkveðjur til fjölskylduWilliams og hlý minningarorð
hafa undanfarna tvo daga streymt
frá vinum hans, samstarfsmönnum
og öðrum sem til hans þekktu,
m.a. kvikmyndaleikstjóranum Ste-
ven Spielberg, sem segir Williams
hafa verið mikinn grínsnilling og
líkir snilligáfunni við þrumuveður,
svo mögnuð hafi hún verið. Þá
sendi Bandaríkjaforseti, Barack
Obama, frá sér yfirlýsingu þar
sem segir að Williams hafi verið
útvarpsmaður, læknir, andi, barn-
fóstra, forseti, prófessor, Pétur
Pan og allt þar á milli og er þar
vísað í þau fjölmörgu og ólíku
hlutverk sem Williams tók að sér á
hvíta tjaldinu. „Hann kom inn í líf
okkar sem geimvera en undir lok-
in hafði hann snert á öllum flötum
mannsandans,“ segir í yfirlýsingu
forsetans sem minntist Williams
einnig á samskiptavefnum Twit-
ter.
Öllum þeim sem minnst hafaWilliams ber saman um að
hann hafi ekki aðeins verið mikill
hæfileikamaður og grínsnillingur
heldur einnig hjartahlýr og mikill
mannvinur. Dapur trúður sem
glímdi við erfið veikindi sem báru
hann ofurliði á endanum. Trúður
sem átti erfitt með að fella grím-
una, ef marka má orð vinkonu
Williams, Jamie Masada, stofnanda
og framkvæmdastjóra uppistands-
klúbbakeðjunnar Laugh Factory.
Dagblaðið LA Times hefur eftir
henni að hún hafi þekkt hann í 35
ár en þó aldrei þekkt hann í raun.
„Hann var alltaf í hlutverki - mað-
ur sá aldrei hinn raunverulega
Robin,“ segir Masada.
» „Hann kom inn í lífokkar sem geimvera
en undir lokin hafði
hann snert á öllum flöt-
um mannsandans,“
segir í yfirlýsingu for-
setans, sem minntist
Williams einnig á
samskiptavefnum
Twitter.
Grín Williams í gervi Mrs. Doubt-
fire í samnefndri kvikmynd.
Drama Williams lék Eisenhower
Bandaríkjaforseta í The Butler.
AF STJÖRNU
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Bandaríski leikarinn og grín-istinn Robin Williamsfannst látinn á heimili sínu
í Tiburon í Kaliforníu í fyrradag,
63 ára að aldri. Hann svipti sig lífi.
Williams glímdi við þunglyndi og
geðhvarfasýki og mun hafa verið
mjög veikur síðustu dagana fyrir
andlátið. Hann glímdi einnig við
áfengis- og kókaínfíkn og fór oftar
en einu sinni í meðferð við henni,
nú síðast í júlí.
Williams var einn hæfileika-ríkasti gamanleikari og
uppistandari Bandaríkjanna og
reyndi auk þess fyrir sér í alvar-
legum kvikmyndahlutverkum með
góðum árangri, m.a. í kvikmynd-
inni Good Will Hunting (1997) þar
sem hann lék sálfræðing og hlaut
Óskarsverðlaun fyrir árið 1998
sem besti leikari í aukahlutverki.
Hann lék í yfir 100 kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum á ferli sínum,
auk þess að talsetja teiknimyndir
með eftirminnilegum hætti, m.a.
Aladdin (1992) þar sem hann fór á
kostum í hlutverki andans í lamp-
anum.
Williams vakti fyrst athygli íheimalandi sínu fyrir leik
sinn í sjónvarpsþáttunum Mork
and Mindy sem sýndir voru á ár-
unum 1978–82. Í þeim fór hann
mikinn í hlutverki geimveru frá
plánetunni Ork sem send var til
jarðar að kynna sér mannfólkið.
Hann sló í gegn á hvíta tjaldinu í
hlutverki afar fjörugs og
uppreisnargjarns plötusnúðar í Ví-
etnamstríðinu í kvikmyndinni Go-
od Morning, Vietnam (1987) og
var þá flestum ljóst að stjarna
væri fædd. Leitun var að öðrum
eins orkubolta og Williams og
hann var mikill grínspunameistari,
eins og sást hvað best á sjónvarps-
Grænn markaður ehf. | Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.flora.is | Sími 535 8500 | info@flora.is
Verslunareigendur!
Ítalskir pappírspokar í úrvali
Eingöngu
sala til fyrirtækja
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta