Morgunblaðið - 26.06.2014, Page 6
Ráðherrafundi Atlants-
hafsbandalagsins lokið
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tveggja daga fundi utanríkisráð-
herra Atlantshafsbandalagsins lauk
í gær, en þar var rætt um þau mál
sem verða í fyrirrúmi á leiðtoga-
fundi bandalagsins sem haldinn
verður í Wales í septemberbyrjun.
Málefni Úkraínu og breyttar ör-
yggishorfur í Evrópu voru í fyr-
irrúmi á fundinum. Ráðherrarnir
ræddu um styrkingu sameiginlegr-
ar varnargetu bandalagsins, og
samþykktu að áfram yrði gert hlé á
öllu samstarfi við Rússa vegna að-
gerða þeirra í Úkraínu. Þá yrði far-
ið í aðgerðir til þess að styrkja
getu Úkraínumanna til þess að
verja sig fyrir ágangi annarra
ríkja. Pavlo Klimkin, nýr utanrík-
isráðherra Úkraínu, tók þátt í
fundinum og kom fram sterkur
stuðningur bandalagsríkjanna við
friðaráætlun úkraínskra stjórn-
valda.
Gunnar Bragi Sveinsson, utan-
ríkisráðherra segir í tilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu að á fund-
inum hafi ríki Atlantshafsbanda-
lagsins staðið þétt saman og þann-
ig veitt gott veganesti fyrir
leiðtogafundinn í haust. Þá sagði
Gunnar Bragi að stækkunarstefna
bandalagsins, og mikilvægi hennar
fyrir öryggis- og lýðræðisþróun í
Evrópu hefði verið rædd. Ráðherr-
arnir voru sammála um að efna til
viðræðna við Svartfjallaland og
meta í framhaldinu hvort bjóða eigi
landinu aðild. Þá er vilji til að auka
enn á samvinnu bandalagsins við
Georgíu. Anders Fogh Rasmussen,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, lagði á það áherslu í
samtölum við fjölmiðla að dyr
bandalagsins stæðu enn opnar, og
að ekkert þriðja ríki hefði neit-
unarvald yfir frekari stækkun þess.
Málefni Afganistans voru einnig
rædd á fundinum, en þar var eink-
um fjallað um áframhaldandi
stuðning bandalagsins við stjórn-
völd þar og aðra samstarfsaðila eft-
ir að hlutverki ISAF lýkur í árslok.
Ljósmynd/Atlantshafsbandalagið
Ráðherrafundur Linas Linkevicius, utanríkisráðherra Litháens, ræðir hér
við þá Gunnar Braga Sveinsson og Anders Fogh Rasmussen.
Málefni Úkra-
ínu og stækkun
bandalagsins rædd
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
VITA er lífið
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
Skráðu þig
í netklúbbinn -VITA.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
69
70
3
6/
20
14
Síðustu klefarnir
Skemmtisiglingar
Láttu drauminn
rætast í haust
Miðjarðarhafið frá Feneyjum
5.–15. sept. / 4 klefar
Svartahaf frá Istanbúl
18. sept. til 2. okt. / 1 klefi
Tókýó – Shanghai
26. sept. til 15. okt. / uppselt!
Róm–Miami
17. okt. til 1. nóv. / 3 klefar
Japan –HongKong
24. okt. til 12. nóv. / 5 klefar
Karíbahafið
14.–26. nóv. / 3 klefar
Suður-Kínahaf
23. jan. til 10. feb. / laust!
Þegar öllum fyrirvörum í sam-
komulagi milli aðila hafði verið full-
nægt og samkomulag náðst um
frekari útfærslu viðskiptanna í lok
september 2010 sammæltust ESÍ og
SÍ um að standa ekki við sam-
komulagið, eins og rakið er í fylgi-
grein.
Telur viðskiptaslitin saknæm
Ursus telur að ESÍ hefði verið
skylt að efna kaupsamninginn en
ESÍ og SÍ hafi sammælst með sak-
næmum hætti um það að ljúka ekki
viðskiptunum eins og samið var um.
Sú ákvörðun hafi þess utan verið
ómálefnaleg og ólögmæt, eins og
viðræður aðila þróuðust, óháð tilvist
bindandi samnings. Auk þess að
baka sér bótaskyldu innan og utan
samninga hafi ESÍ og SÍ brotið
gegn reglum stjórnsýsluréttar.
Ursus telur að með þeirri ákvörð-
un ESÍ að hætta við söluna á Sjóvá
til fjárfestahópsins hafi ESÍ brotið
gegn samningnum og verði að
greiða Ursusi efndabætur. Ursus
krefst þess að vera gerður jafn-
settur og ef samningar við hann
hefðu verið efndir og viðskiptin farið
fram. Virði hluta Sjóvár hafi aukist
verulega og hann því farið á mis við
verulegan hagnað sem hann krefst
bóta fyrir.
Hefði hagnast um 2,2 milljarða
Hefðu kaupin gengið eftir hefði
Ursus greitt rúmlega 2,5 milljarða
fyrir rúmlega 367 milljón hluti í
Sjóvá. Hver hlutur hefði verið að
meðaltali á 6,86 kr.
Miðað við meðalútboðsgengi þeg-
ar félagið var skráð á markað hefði
verðmæti hlutarins verið rúmlega
4,7 milljarðar. Hagnaður sá sem
Ursus fór á mis við vegna vanefnd-
anna, auk meintra saknæmra og
ólögmætra athafna SÍ og ESÍ, er
því tæplega 2,2 milljarðar króna.
Við útreikning kröfuupphæðar eru
dregnir frá vextir sem stefnandi
hefði ella unnið sér inn af kaupverð-
inu. Fjárfestahópurinn allur varð
þannig af hátt í tíu milljörðum.
Krafist bóta af Seðlabanka
Seðlabankanum stefnt fyrir að standa ekki við samning um sölu á Sjóvá til hóps fjárfesta árið 2010
Ursus, sem fór fyrir fjárfestunum, missti af 2,2 milljörðum og hópurinn í heild af nær 10 milljörðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seðlabankinn Ursus ehf. krefst bóta því bankinn hætti við að efna samkomulag um sölu á Sjóvá árið 2010. Bankinn
hafði þá hafið rannsókn á Ursusi, vegna meintra brota á reglum um gjaldeyrismál, sem reyndist vera tilefnislaus.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ursus ehf, félag Heiðars Guðjóns-
sonar fjárfestis, hefur stefnt Seðla-
banka Íslands (SÍ) og Eignasafni
Seðlabanka Íslands (ESÍ) fyrir að
hafa ekki staðið við samning um
sölu á Sjóvá Almennum (Sjóvá) árið
2010. Ursus telur að SÍ og ESÍ hafi
bakað sér bótaskyldu og krefst þess
að fá greiddar bætur upp á rúmlega
1,4 milljarða kr. ásamt vöxtum en til
vara rúmlega 1,26 milljarða ásamt
vöxtum. Þá gerir Ursus kröfu um að
fá allan málskostnað greiddan.
Ursus byggir mál sitt á því að
bindandi samkomulag hafi náðst við
ESÍ þann 10. júlí 2010 um að hópur
fjárfesta, sem Ursus fór fyrir,
keypti tiltekinn fjölda hluta í Sjóvá á
fyrirfram ákveðnu gengi. Auk þess
fylgdi réttur til að kaupa fleiri hluti í
Sjóvá á fyrirfram ákveðnu gengi.
Ekki hafi verið staðið við þetta sam-
komulag. Málið verður þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Áttu hæsta tilboð í Sjóvá
Fjárfestahópurinn sem Ursus
leiddi átti hæsta boð í Sjóvá þegar
félagið var sett í söluferli snemma
árs 2010. Viðræður fjárfestahópsins
og eigenda Sjóvár, SAT eign-
arhaldsfélags ehf. og Íslandsbanka
hf., hófust í mars 2010. Í miðjum
viðræðunum tók ESÍ yfir 73,3%
hlutafjár í Sjóvá af SAT á grundvelli
veðheimilda og gerðist aðili að sölu-
ferlinu. Eftir eigendaskiptin áttu
SAT 17,67% hlutafjár í Sjóvá og Ís-
landsbanki 9,3%.
Fjárfestahópurinn undirritaði
samkomulag við ESÍ og Íslands-
banka 10. júlí 2010 um kaup og sölu
á hlutum í Sjóvá og auk þess kaup-
rétt á hlutum í félaginu. SAT ákvað
að eiga ekki aðild að viðskiptunum.
Að undangenginni áreiðanleika-
könnun fjárfestahópsins náðist end-
anlegt samkomulag um kaupin.
Undirrituð var bindandi yfirlýsing
um kaupin, en SAT ákvað að lokum
að eiga ekki aðild að viðskiptunum.
Stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ)
og bankastjóri Seðlabanka Íslands (SÍ) upplýstu um
það í október 2010 að ESÍ gæti ekki staðfest viðskiptin
varðandi söluna á Sjóvá til fjárfestanna sem Ursus ehf.
fór fyrir. Ástæðan var sögð vera rannsókn bankans á
meintum brotum Ursusar á lögum og reglum um gjald-
eyrismál.
Ursus taldi enga ástæðu vera fyrir slíkri rannsókn.
Auk þess hefði enginn fyrirvari verið gerður um stöðu
eftirlitsmála Ursusar hjá SÍ í samkomulagi aðila. Ursus
mótmælti því afstöðu stjórnar ESÍ og SÍ og krafðist
þess að gengið yrði frá samningnum.
ESÍ og SÍ höfðu ekki hvikað frá afstöðu sinni hinn 21.
nóvember 2010. Fjárfestahópurinn sá sig því knúinn til
að tilkynna umsjónaraðila viðskiptanna að hann hefði
endanlega sagt sig frá viðskiptunum um Sjóvá. Daginn
eftir kvartaði Ursus til umboðsmanns Alþingis vegna
málsmeðferðar ESÍ og SÍ. Enn er beðið álits umboðs-
manns.
SÍ kærði Ursus 26. nóvember 2010 til efnahagsbrota-
deildar Ríkislögreglustjóra vegna meintra brota hans á
lögum og reglum um gjaldeyrismál. Seðlabankinn lét
þó Ursus ekki vita af því fyrr en með bréfi 4. maí 2011.
Sérstakur saksóknari, sem tók við meðferð málsins,
ákvað 27. febrúar 2012 að hætta rannsókn þess. SÍ
kærði þá ákvörðun til ríkissaksóknara sem staðfesti
ákvörðunina 23. apríl 2012. Ákvörðun ríkissaksóknara
var endanleg og má ráða af henni að rannsóknin hafi
verið tilefnislaus, að því er segir í stefnu Ursusar gegn
ESÍ og SÍ.
Rannsóknin reyndist tilefnislaus
SALAN Á SJÓVÁ VAR EKKI STAÐFEST VEGNA RANNSÓKNAR SEÐLABANKANS