Morgunblaðið - 26.06.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
Sumarið 2014 er Ísland enn þáumsóknarríki um aðild að Evr-
ópusambandinu.
Þetta samasumar er
tilkynnt að
ákveðið hafi ver-
ið að halda áróð-
ursmyllunni
Evrópustofu
gangandi áfram, a.m.k. til sumars-
ins 2015!
Og á þessum sælu sumardögumvar haldinn sérstakur blaða-
mannafundur.
Það gerði nefnd sem ríkisstjórninsetti niður, af óútskýrðum
ástæðum, til þess að halda áfram
endurskoðun á stjórnarskránni.
Það var eitt af mörgum óskiljan-legum brallmálum Jóhönnu-
stjórnarinnar sem rann út í sand-
inni.
Þetta sérstaka sandrennsli ástjórnarskrárfiktinu fór raun-
ar fram í mörgum atrennum og
sjálfur Hæstiréttur Íslands reyndi
meira að segja að sussa á vitleysuna
en samt var haldið áfram.
En sem sagt, nú þótti rétt aðhalda sumarblaðamannafund.
Þar kom fram að annað aðalverk-
efni þessarar nefndar væri að koma
ákvæði inn í stjórnarskrá til að auð-
velda mönnum að skerða fullveldi
íslensku þjóðarinnar. Ekki var tek-
ið fram hvort þessir ógæfulegu til-
burðir tengdust 70 ára sjálfstæði Ís-
lands sérstaklega.
Það var von að kerlingin spyrði,að þessu gefna tilefni, hvort
ekki hefði verið æskilegt að kjósa
til Alþingis vorið 2013 og sjá hvern-
ig slíkar kosningar færu.
Von að hún spyrði
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.6., kl. 18.00
Reykjavík 14 alskýjað
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 17 skýjað
Nuuk 5 skúrir
Þórshöfn 11 alskýjað
Ósló 18 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 13 skýjað
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 16 skúrir
Glasgow 15 skúrir
London 21 heiðskírt
París 21 heiðskírt
Amsterdam 18 heiðskírt
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 13 skúrir
Vín 15 skúrir
Moskva 15 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 27 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 21 alskýjað
New York 26 skýjað
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:59 24:04
ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:14 23:47
Viðskiptatækifæri
sæstrengs
ÞJÓÐMÁL
BJÖRN BJARNASON
Uppnám í ESB-ríkjum
— viðvörun í Reykjavík
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Riddari Jón Sigurðsson
EVA HAUKSDÓTTIR
Ætti að kenna kynjafræði
í grunnskólum landsins?
ÞORSTEINN ANTONSSON
Dapurleg heimkoma
Kristmanns Guðmundssonar
MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR
Að tjaldabaki þjóðfundarins 1851
GEIR ÁGÚSTSSON
Í átt að smærri stjórnunareiningum
JÓN MAGNÚSSON
Hinir umburðarlyndu
JAKOB F. ÁSGEIRSSON
Leikskáldið Arthur Miller
GÍSLI HAUKSSON
OG GALLERY GAMMA
SAGA EIMSKIPAFÉLAGS
ÍSLANDS Í 100 ÁR
Pólitísk rétthugsun setur mark sitt á samtíðina
jafnt á Íslandi sem annars staðar í hinum vestræna heimi.
Ragnhildur Kolka flettir ofan af hræsni og undanbragðahefð
sjálfskipaðra riddara réttlætisins á vinstri vængnum.
2. hefti, 10. árg. SUMAR 2014 Verð: 1.500 kr.
Tvískinnungur
riddara réttlætisins
Í snjallri ritgerð fjallar enski blaðamaðurinn og álitsgjafinn
John O’Sullivan um Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands,
— persónuna, stjórnmálahugmyndir hennar, árangur og áhrif.
Hugmyndir um tengingu Íslands við raforkukerfi Evrópu
eru ekki nýjar af nálinni. Björgvin Skúli Sigurðsson fjallar um
þau viðskiptatækifæri sem felast í lagningu raforkusæstrengs
í ljósi breyttra aðstæðna í orkumálum Evrópu.
Stjórnmálaforinginn
Margaret Thatcher
Sumarheftið
komið út
Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og
menningu — hefur nú komið út í tíu ár
í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári
— vetur, sumar, vor og haust.
Tímaritið fæst í lausasölu í helstu
bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum,
en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr.
Áskriftarsími: 698-9140.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alls bárust 24 umsóknir um starf for-
stjóra Samgöngustofu, sem auglýst
var 6. júní síðastliðinn, en umsókn-
arfrestur rann út á sunnudaginn. Inn-
anríkisráðherra mun skipa þriggja
manna nefnd, sem metur hæfi um-
sækjenda, en þeir eru: Agnar Kofo-
ed-Hansen stjórnunarráðgjafi; Birgir
Elíasson hagverkfræðingur; Dagný
Jónsdóttir framkvæmdastjóri; Egg-
ert Norðdahl, teiknari, rithöfundur
og flugmaður; Elín Björg Ragn-
arsdóttir lögfræðingur; Eva Magn-
úsdóttir, ráðgjafi MBA; Eyþór
Björnsson fiskistofustjóri; Gerður
Pálmarsdóttir gæða- og mannauðs-
stjóri; Guðmundur Guðmundsson
gæðastjóri; Halla Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri; Halldór Zoëga,
rekstrarverkfræðingur og stjórn-
sýslufræðingur; Haraldur Sigþórsson
dr. ing.; Helga Þórisdóttir lögfræð-
ingur; Karl Alvarsson lögfræðingur;
Katla Þorgeirsdóttir lögfræðingur;
Lilja G. Karlsdóttir samgöngu-
verkfræðingur; Lúðvík Þorgeirsson
framkvæmdastjóri; Ólafur Stein-
arsson, fráfarandi sveitarstjóri;
Reynir Sigurðsson framkvæmda-
stjóri; Sigurbergur Björnsson skrif-
stofustjóri; Sigurður Ingi Jónsson
framkvæmdastjóri; Stefán Eiríksson
lögreglustjóri; Svana Margrét
Davíðsdóttir lögfræðingur; Þórólfur
Árnason iðnaðar- og rekstrarverk-
fræðingur.
Staða forstjóra eftirsótt
Morgunblaðið/Golli
Umsækjandi Stefán Eiríksson er
einn af þeim sem sækir um.
24 sækjast eftir að veita Samgöngustofu forstöðu