Morgunblaðið - 26.06.2014, Síða 11
Í túninu heima Myrkholt stendur milli Gullfoss og
Geysis og er því vel í sveit sett til að þjónusta ferðafólk.
kaffihús sem heitir Hrefnubúðar-
kaffi. Þar er hægt að fá heita súpu
og nýbakað brauð, kleinur, ástar-
punga og gulrótarköku, alla daga frá
morgni og fram á kvöld. „Auk þess
erum við með léttvínsleyfi sem hefur
orðið til þess að fleiri gista þar en áð-
ur, enda er notalegt að leggja bíln-
um, staldra við yfir nótt og njóta
þess að sitja inni á kvöldin og dreypa
á bjór eða léttvíni,“ segir Vilborg
sem opnaði Prjónasetur í fyrra í Ár-
búðum þar sem hún selur lopavörur
sem hún prjónar sjálf en hún nær
ekki að anna eftirspurn og kaupir
líka af prjónakonum sem hún kann-
ast við, bæði að sunnan og norðan.
„Ég er líka með handverk, til dæmis
málaða steina frá Ingu á Gýgjarhóli,
nágrannakonu minni, myndir eftir
Torfa Harðarson listmálara, tréút-
skurð og fleira sjaldséð.“
Tímafrekt að keyra heyið
Við alla skálana eru tjaldstæði
og er góð nýting á þeim, enda getur
tjaldfólk notað eldunaraðstöðuna
inni í skálunum. Þó svo að skálaverð-
ir séu bæði í Gíslaskála og í Árbúð-
um, þá segir Vilborg að það sé gríð-
arleg vinna að þjónusta alla þessa
staði. Við alla skálana eru hesthús
og hestagerði, en bannað er að beita
hrossum á þessum svæðum. Vilborg
og Loftur sjá því um heysölu til
hestafólks sem staldrar þar við.
„Það fer mikill tími í að keyra hey
fyrir hestamenn að skálunum, veg-
urinn er víða seinfarinn. Kjalvegur
er ekki alltaf í góðu standi.“
Vilborg og Loftur opnuðu gisti-
heimilið á hlaðinu heima hjá sér í
Myrkholti fyrir fimm árum, en þar
geta þrjátíu og tveir gist. „Hér er vel
bókað yfir sumartímann en á vetrum
koma kórar í æfingabúðir og taka
húsið á leigu í nokkra daga, sama er
að segja um vinahópa og við erum
komin með fastagesti í þessum hóp-
um, sem koma á hverju ári. Einnig
er mjög vinsælt að leigja skálann
undir veislur, enda er stórt eldhús
með góðri aðstöðu og stórt alrými
með borðum og stólum.“
Ég vil hafa mitt fé mislitt
Í hesthúsinu heima í Myrkholti
útbjuggu Vilborg og Loftur nýlega
prjónasel. „Þetta er ullarmarkaður
og hefur verið mikið að gera, enda er
fólk sólgið í prjónavörur og annað
sem er heimagert. Hálfþæfðir ullar-
vettlingar hafa verið mjög vinsælir
og sama er að segja um háa ullar-
sokka, þeir renna út. Allar stóru
lopapeysurnar eru uppseldar hjá
mér núna, mig bráðvantar konur til
að prjóna slíkar peysur fyrir mig,“
segir Vilborg sem situr við prjónana
á vetrum til að fylla á lagerinn, hún
prjónaði 28 peysur frá síðustu ára-
mótum og fram á vor, en þá hætti
hún, enda nóg að gera þegar skál-
arnir eru opnaðir. Skepnuhald er þó
nokkuð hjá Vilborgu og Lofti, þau
eiga ágætan hrossahóp enda nauð-
synlegt að fjallkóngur sé vel ríðandi,
en Loftur hefur gegnt starfi fjall-
kóngs Tungnamanna undanfarin ár.
Þau eru líka með 50 kindur sem
veita þeim mikla ánægju. „Ég er að
rækta mórautt og við förum annað
hvert ár í Öræfin til Gunnars á Litla-
Hofi til að kaupa mórauðan lamb-
hrút til undaneldis. Við erum líka
með svolítið af botnóttu, bæði svart-
og móbotnótt. Þetta er skemmtilegt
og gaman að geta boðið barnabörn-
unum út í fjárhús þegar þau koma í
heimsókn. Svo er alltaf mikil stemn-
ing í réttunum að hausti, þegar við
heimtum féð af fjalli og sjáum
hvernig það kemur undan sumrinu.“
Sveitalíf Barnabörnin reka fallega tvílembu um bæjar-
hlaðið, en Vilborg vill hafa mislitt fé í sínum stofni.
200o
300o
400o
1000 m
500 m
2000 m
1500 m
500o
Heitasti staðurinn
í sumar!
Kvika
Verið velkomin í heimsókn í sumar!
Krafla: Jarðvarmasýning er opin 10-17 alla daga.
Búrfell: Gagnvirk orkusýning er opin 10-17 alla daga.
Vindmyllur á Hafinu: Starfsfólk tekur á móti gestum alla
laugardaga í júlí, frá 13 til 17.
Kárahnjúkastífla: Leiðsögn um svæðið miðvikudaga
og laugardaga, frá 14 til 17.
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Á ferð um Norðurland er upplagt að heimsækja
háhitasvæðið við Kröflu og kynnast brautryðjenda–
verkefni í vinnslu jarðvarma. Gestastofan er opin
alla daga og það er alltaf heitt á könnunni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
Krónan
Gildir 26. júní - 29. júní verð nú verð áður mælie. verð
Grísalundir erlendar......................................... 1.498 2.197 1.498 kr. kg
Grísahnakki úrb. kryddaður .............................. 1.358 1.698 1.358 kr. kg
Grísahnakki á spjóti New York........................... 1.398 1.698 1.398 kr. kg
Grísahnakki á spjóti Hvítl&Rós ......................... 1.398 1.698 1.398 kr. kg
Lambafile m/fiturönd ...................................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg
Lambafile hvítlauk & rósmarín.......................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg
Lambafile New York marinerað ......................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg
Lambafile kolagrillmarinerað ............................ 3.998 4.498 3.998 kr. kg
Kjúklingur með lime & rósmaríni ....................... 998 1.349 998 kr. kg
Ísl M kjúklingabringur ...................................... 1.989 2.298 1.989 kr. kg
Kjarval
Gildir 26.- 29. jún verð nú áður mælie. verð
Holta kjúklingabringur 100%............................ 2.698 2.998 2.698 kr. kg
BBQ Spare Ribs 500 g..................................... 1.198 1.298 1.198 kr. pk.
SS Mexico grísakótelettur................................. 2.147 2.385 2.147 kr. kg
SS Ítalskar lambalærissneiðar .......................... 3.328 3.698 3.328 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 26.- 28. jún verð nú áður mælie. verð
Svínakótelettur úr kjötborði .............................. 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Lambaprime úr kjötborði.................................. 2.998 3.398 2.998 kr. kg
Hamborgarar 2x115g m/brauði ....................... 490 540 490 kr. pk.
SS kryddlegnar lærisneiðar .............................. 3.128 3.680 3.128 kr. kg
SS kryddlegnar lambatvírifjur ........................... 2.756 3.243 2.756 kr. kg
Dr.Oetker tradizionale pitsa .............................. 589 698 589 kr. stk.
FK ís vanillu/súkkulaði 2 l ................................ 548 0 548 kr. stk.
Homeblest 200 g ............................................ 198 229 198 kr. stk.
Pepsi/appelsín/kristall/mix 33cl dós................ 79 129 79 kr. stk.
KF grísafille kryddað ........................................ 1.398 1.55 1.398 kr. kg
Hagkaup
Gildir 26.- 29. jún verð nú áður mælie. verð
Holta kjúklingabringur 100%............................ 2.174 2.899 2.174 kr. kg
Kalkúnalundir ................................................. 2.474 3.299 2.474 kr. kg
Ísl. lamb grillsneiðar ........................................ 1.234 1.898 1.234 kr. kg
Ísl. lamb file.................................................... 3.749 4.999 3.749 kr. kg
Nautaat Ribeye ............................................... 3.374 4.499 3.374 kr. kg
Baguette ........................................................ 159 199 159 kr. stk.
Hagkaups Hvítlauks Osta Grillbrauð .................. 299 449 299 kr. stk.
Hnetuvínarbrauð ............................................. 149 269 149 kr. stk.
Nóatún
Gildir 27.- 29. jún verð nú áður mælie. verð
Lambalæri úr kjötborði..................................... 1498 1698 1498 kr. kg
Lambalæri kryddað úr kjötborði ........................ 1498 1698 1498 kr. kg
Lambalærissneiðar úr kjötborði ........................ 2098 2398 2098 kr. kg
Lambalærissneiðar kryddaðar .......................... 2098 2398 2098 kr. kg
Ungnautalund frosin erlend.............................. 3998 4998 3998 kr. kg
Keiluflök roð- og beinlaus ................................ 1298 1698 1298 kr. kg
Nektarínur 1 kg ............................................... 449 598 449 kr. kg
Helgartilboðin