Morgunblaðið - 26.06.2014, Síða 12
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kópavogsbær er nú að ganga frá
deiliskipulagi eða hefja undirbúning
að deiliskipulagi nokkurra nýrra
byggingarreita og eru áform um að
reisa árlega um 300 nýjar íbúðir í
bænum á næstu árum, samkvæmt
nýsamþykktu aðalskipulagi bæjarins
sem gildir til ársins 2024.
Birgir Hlynur Sigurðsson, skipu-
lagsstjóri Kópavogsbæjar, kynnti
nýtt aðalskipulag bæjarins fyrir
blaðamanni á skrifstofu sinni í gær.
Verður hér fjallað um nýja bygg-
ingarreiti en tekið skal fram að jafn-
framt verður meira byggt í nýrri
hverfum, á borð við Hvörfin, Þingin
og Kórana í austurhluta Kópavogs.
Birgir Hlynur segir mikið lagt upp
úr góðri hönnun á hinum nýju reitum
og að þjónusta fylgi með. Áhersla
verði lögð á að vinna hönnunina í
samstarfi við þá sem munu byggja
húsin. „Frumdrög að hönnun
húsanna verða m.a. lögð fyrir skipu-
lagsnefnd til að leggja grunninn að
útfærslu og útliti einstakra húsa. Góð
hönnun þarf ekki að kosta meira.
Íbúðirnar verða í öllum verð-
flokkum,“ segir Birgir Hlynur.
Byrja á 300 íbúðum
Veruleg uppbygging er fyrirhuguð
á Smárasvæðinu á miðju höfuð-
borgarsvæðinu. Fyrst verður byrjað
á um 300 íbúðum á svonefndum reit 2
á Glaðheimasvæðinu í Kópavogi,
austan Smáralindar. Framkvæmdir
þar gætu hafist innan 9-12 mánaða,
þ.e. eftir að gatnagerð lýkur. Fram-
kvæmdatími er áætlaður 2-4 ár. Á
reitnum verða 4-10 hæða fjölbýlishús.
Birgir Hlynur segir að á þessum
reit verði 50 fleiri íbúðir en áður var
gert ráð fyrir og er það á kostnað
verslunar- og atvinnuhúsnæðis sem
átti að vera á jarðhæð. Á næsta ára-
tug er gert ráð fyrir frekari uppbygg-
ingu í kringum þennan reit og að
göngubrú rísi yfir Reykjanesbrautina
til að tengja svæðið betur saman.
Ekki er útilokað að síðar verði byggt
yfir Reykjanesbrautina.
Jafnframt er í undirbúningi bygg-
ing 500 íbúða sunnan Smáralindar og
áætlar Birgir Hlynur að fram-
kvæmdir þar geti hafist 2015 eða
2016. Framkvæmdatími er áætlaður
5-10 ár. Byggð verða fjölbýlishús á
svæðinu. Þar er jafnframt áformuð
samgöngumiðstöð og opið rými í
miðjunni, eins og sýnt er á teikningu
hér fyrir ofan. Á jarðhæð verður
verslun og þjónusta á hluta svæð-
isins. Bílastæði verða neðanjarðar og
er það hluti af þeirri stefnumótun að
taka mið af evrópsku borgarskipu-
lagi. Horfið verður frá þeirri hönnun
að hafa stór bílastæði ofanjarðar. Það
sé „amerísk hönnun á miðbæ“.
Birgir Hlynur segir hugmyndir um
að tengja mögulega samgöngu-
miðstöð sunnan Smáralindar við hug-
myndir um leiðakerfi háhraðalestar
frá Reykjavík til Keflavíkur. Sam-
göngumiðstöðin er sýnd í miðju
svarthvítu myndarinnar hér fyrir of-
an. Að hans sögn gætu þau áform
tengst uppbyggingu hótela á svæðinu
og verið hluti af þeirri stefnumótun
að efla ferðaþjónustu í Kópavogi.
Horfir hann þar einkum til háhýsis
sem samkvæmt gildandi deiliskipu-
lagi er fyrirhugað austan Reykjanes-
brautar á reit 1 á Glaðheimasvæðinu,
næst brautinni. Yrði það hæsta hús
landsins. Við turninn er gert ráð fyrir
grænu svæði á stærð við Austurvöll.
Hönnun á reit 1 er ekki lokið.
„Í gildandi deiliskipulagi er gert
ráð fyrir að turninn verði 32 hæðir.
Ég veit ekki hvort hann verður svo
hár þegar við erum búnir að yfirfara
deiliskipulagið. Við höfum kynnt
þessar hugmyndir og líst mönnum
nokkuð vel á þær. Verið er að skoða
þennan möguleika af alvöru. Þetta
yrði stórt verkefni og yrði endur-
skoðun deiliskipulagsins, útfærsla
þess og hönnun öll unnin í samráði við
þá aðila sem kæmu að verkefninu. Ég
tel að Smárasvæðið henti einkar vel
fyrir slíka starfsemi. Fjárfestar eru
að átta sig á þeim tækifærum sem
þarna eru og eru byrjaðir að spyrjast
fyrir um möguleikana.“
550 íbúðir á Kársnesi
Þriðji reiturinn er hafnarsvæðið á
Kársnesi og telur Birgir að fram-
kvæmdir þar geti jafnvel hafist á
svipuðum tíma og bygging hverfisins
sunnan Smáralindar. Þar er gert ráð
fyrir 550 íbúðum. „Þetta eru frum-
drög sem Björn Skaptason arkitekt
hefur unnið. Ég hef sagt að ég vilji
öðruvísi byggð með öðru útliti en það
sem byggt hefur verið á síðustu 10 til
15 árum, fá „nýtt yfirbragð“.
Stórar vöruskemmur á nyrðri
hluta hafnarsvæðisins munu standa
áfram en önnur mannvirki verða rifin
og fjölbýlishús reist í stað þeirra.
Hugmynd um útlit húsanna er sýnd
hér fyrir ofan. Við hönnunina er þess
gætt að ný byggð skyggi ekki á
sjávarsýn íbúa á Kársnesinu.
„Rætt hefur verið um að byggja
brú yfir Skerjafjörðinn fyrir vistvæn-
ar samgöngur, frá Kársnesi að flug-
vallarsvæðinu. Bæði Reykjavík og
Kópavogur gera ráð fyrir brúnni í
sínu nýja aðalskipulagi. Nú þarf að
koma þessari hugmynd í fram-
kvæmd,“ segir Birgir Hlynur.
Til lengri tíma litið hafi jafnframt
verið settar fram hugmyndir um að
reisa sambærilegar brýr alla leið suð-
ur á Álftanesið, þannig að ferðatími
fyrir gangandi og hjólandi umferð til
miðborgar Reykjavíkur styttist mik-
ið. „Brú yfir í Kársnesið setur byggð-
ina þar í nýtt samhengi.“
Fjórði reiturinn er Auðbrekka, í
hlíðinni norður af Hamraborg. Þar er
nú ýmis þjónusta eins og veitinga-
staðir, verslanir svo og verkstæði af
ýmsum toga, og segir Birgir Hlynur
að ætlunin sé að breyta hverfinu
hægt og rólega þannig að þar komi
nýjar íbúðir í blandaðri byggð á
næstu 5-10 árum. Áhersla verður á að
bjóða smærri íbúðir og íbúðir með
mikilli lofthæð sem henta sem vinnu-
stofur. Bílastæði verða færri en í út-
hverfum Kópavogs og bendir Birgir í
því efni á að Auðbrekkan liggi mjög
vel við almenningssamgöngum. Til
stendur að breyta atvinnuhúsnæði í
íbúðir. Íbúum Kópavogs hefur fjölgað
hratt á síðasta aldarfjórðungi. Árið
1988 bjó 15.581 í bænum, 23.583 árið
2000, 31.726 árið 2013 og árið 2024 er
áætlað að íbúafjöldinn fari yfir 40.000.
Kársnesið fær nýtt yfirbragð
Kópavogsbær er að ljúka deiliskipulagi á nýjum byggingarreitum Áformað að á annað þúsund
íbúðir rísi á fjórum reitum Nýtt hafnarhverfi rís á Kársnesi og mikil uppbygging í Smáranum
Tölvumynd/Björn Skaptason arkitekt/Atelier Arkitektar
Drög Hér má sjá hugmynd að því hvernig nýtt hafnarhverfi á Kársnesi gæti litið út undir lok þessa áratugar. Mikil áhersla er lögð á góða hönnun.
Tölvumynd/Skipulags- og byggingardeild Kópavogs
Reitir Appelsínuguli liturinn táknar íbúðir, guli liturinn verslun og þjón-
ustu. Glaðheimasvæðið, reitur 2, er lengst til vinstri. Turninn er í reit 1.
Tölvumynd/Arkitektúr.is
Göngugata Hugmynd að miðbæ í
nýju hverfi sunnan Smáralindar.
Tölvumynd/Arkitektúr.is/Skipulags og byggingardeild Kópavogs
Nýtt Smárahverfi Næst á myndinni, sunnan Smáralindar, rísa 500 íbúðir.
Hinum megin við Reykjanesbraut eru Glaðheimareitir 1, 2 og 3.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Frábær eldunartæki frá Siemens á tilboðsverði.
Athugið! Takmarkað
magn í boði.
Gildir aðeins í þrjá daga,
25., 26. og 27. júní,
eða meðan birgðir endast.
Bakstursofn Bakstursofn
KeramíkhelluborðSpanhelluborð
HB 33G1240S (hvítur)
HB 33G1540S (stál)
HB 36G1260S (hvítur)
ET 645EN11EH 675TE11E
Tilboðsverð:
Tilboðsverð:
Tilboðsverð:Tilboðsverð:
Fullt verð: 189.900 kr.
Fullt verð: 209.900 kr.
Fullt verð: 119.900 kr.Fullt verð: 199.900 kr.
129.900
149.900
69.900129.900
kr. stgr.
kr. stgr.
kr. stgr.
kr. stgr.