Morgunblaðið - 26.06.2014, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Eyjafjörður
Fyrir þá sem vilja – Please, take a
book if you like, stóð á miða fyrir utan
hús við Aðalstræti í Innbænum í gær.
Á tveimur stólum var hrúga af bókum
og margir höfðu gripið með sér les-
efni síðdegis. Kristín Aðalsteins-
dóttir, prófessor við Háskólann á Ak-
ureyri, hefur tvívegis áður brugðið á
þennan leik við miklar vinsældir.
Kristín segir það part af flóa-
markaðshugsuninni „og því að geyma
ekki dót sem ég ekki nota“. Hún setti
ýmis eldhúsáhöld út á stétt um síð-
ustu helgi og það fór allt!
Margra grasa kennir í bókastafla
Kristínar. „Þarna eru bækur sem ég
eignaðist sem barn og síðan náms-
bækur sem eru orðnar 50 ára, en líka
splunkunýjar bækur.“ Hún setti út
um 100 bækur í fyrra „og það voru
bæði Íslendingar og túristar sem
tóku bækur því þær eru á íslensku,
norsku og ensku,“ sagði Kristín í
gær. Óneitanlega frábær hugmynd!
Menningin blómstrar í Fjalla-
byggð þessa dagana. Í dag hefst
blúshátíð í Ólafsfirði, haldin 15. árið í
röð, og um miðja næstu viku hefst ár-
leg Þjóðlagahátíð á Siglufirði og
stendur til sunnudags.
Tónleikar á blúshátíðinni verða í
kvöld, föstudag og laugardag í Tjarn-
arborg og einnig í Ólafsfjarðarkirkju
á laugardaginn.
Ný verslun fyrirtækisins Icewear
verður í dag opnuð í göngugötunni á
Akureyri. Icewear var stofnað 1972
og sérhæfði sig í upphafi í að fram-
leiða jakka og peysur úr íslenskri ull
en framleiðir nú fjölbreytta útivist-
arfatalínu – allt frá ullarpeysum til
hátæknilegra dúnúlpa.
Síðan Icewear keypti Víkurprjón
vorið 2012 hefur verið lögð mikil
áhersla á uppbyggingu fyrirtækisins
og aukin áhersla lögð á íslenska fram-
leiðslu frá Vík.
Nú stendur yfir í menningarhús-
inu Bergi á Dalvíkurbyggð mynd-
listasýning í tilefni þess að 80 ár eru
liðin frá mjög öflugum jarðskjálfta
sem varð rétt utan Dalvíkur laug-
ardaginn 2. júní 1934. Skjálftinn olli
umtalsverðum skemmdum á svæðinu
en þennan sama daga, fyrir 80 árum,
fæddist stúlka rétt við upphaf skjálft-
ans og fékk hún nafnið Sigurveig.
Sigurveig, eða Veiga eins og hún
er kölluð, hefur blótað listguðinn ár-
um saman og heldur umrædda sýn-
ingu á verkum sínum í tilefni 80 ára
afmælis síns og minnist skjálftans í
leiðinni.
Varla hefur komið dropi úr lofti á
Akureyri í marga daga, en þó helli-
rigndi í Listagilinu í gær. Þar var
reyndar um listgjörning að ræða og
frumskógarhljóð og viðeigandi tónlist
áttu sér sömu skýringar.
Regnið og skógarstemningin er
hluti af viðburðinum RÓT2014 sem
hófst á mánudag og stendur til
sunnudags. Hópur listamanna vinur
að sameiginlegum verkum og aldrei
að vita upp á hverju hann tekur.
Skyldi hann rigna í dag?
Hætt var við fyrirhugað flug
Greenland Express frá Akureyri til
Danmerkur í gærmorgun vegna þess
hve fáir farþegar höfðu pantað far.
Fyrirtækið hugðist hefja beint
flug 17. júní en fyrstu ferð var aflýst
þar sem ekki hafði verið gefið út flug-
hæfniskírteini fyrir vélina sem nota
átti. Þrátt fyrir allt stefnir Greenland
Express áfram að beinu flugi frá Ak-
ureyri til Kaupmannahafnar og það-
an til Álaborg tvisvar í viku í sumar.
Upp úr tjörninni við Minjasafnið á
Akureyri og garði þess spretta nú
skrímsli sem eiga fætur sína og hala
að rekja til landakorta sem eru á sýn-
ingunni Land fyrir stafni – Íslands-
kort 1547-1808. Skrímslin eru sögð
ætla að ganga á land í kvöld kl. 20 við
Minjasafnstjörnina. „Þar sem sæ-
skrímsli eiga erfitt með að hreyfa sig
á landi verður þeim hjálpað síðasta
spölinn á Minjasafnið þar sem þau
taka sér nú bólfestu á sýningunni,“
segir í tilkynningu frá safninu.
„Gengið verður í hersingu við hljóm-
fagra tónlist með dansandi hreyfi-
listafólki, blásurum, trumbuleikurum
og ýmsum smáskrímslum.“
Þessi skrímslalæti eru unnin í
samstarfi við Skapandi sumarstörf
Akureyrarbæjar, tónlistarfólk og
aðra listamenn.
Dúettinn skemmtilegi, Hundur í
óskilum, fagnar 20 ára afmæli sínu á
þessu ári með tveggja tónleika röð á
Rósenberg og Græna hattinum. Þeir
seinna verða á Hattinum annað
kvöld.
Ásgeir Trausti hefur verið á tón-
leikaferðalagi um Evrópu og Am-
eríku undanfarna mánuði og heldur
aðeins tvenna tónleika á Íslandi milli
tónleikaferða; hvora tveggja á Græna
hattinum á Akureyri á laugardags-
kvöldið.
Skipulagsnefnd Akureyrar hef-
ur samþykkt breytingu á deiliskipu-
lagi vegna Akstursíþrótta- og skot-
svæðis á Glerárdal. Er það gert í
framhaldi viðauka við fyrri hljóð-
skýrslu.
„Í ljósi niðurstöðu hljóðskýrsl-
unnar er varðar deiliskipulagsbreyt-
ingu á akstursíþrótta- og skotsvæði á
Glerárdal vegna viðbótarsvæðis
KKA, er gerð sú breyting að Enduro-
braut vestan nýs aðkomuvegar að
svæðum Skotfélags og KKA er felld
út, þar sem hún uppfyllir ekki kröfur
um hljóðvist vegna frístundabyggðar
í 2. áfanga Hálanda,“ segir í fund-
argerð skipulagsnefndar. Hálönd eru
nýleg frístundabyggð. Lagðar eru til
hljóðmanir ofan viðbótarsvæðis KKA
á móts við 1. áfanga Hálanda til þess
að uppfylla kröfur um hljóðstig.
Hljómsveitin Klassart heldur
tónleika á Græna hattinum í kvöld
ásamt hljómsveitinni Soffía Björg
Band.
Tvíeykið GÓMS opnar sýningu í
Deiglunni á Akureyri á laugardaginn.
Það skipa Georg Óskar og Margeir
Dire „sem hafa bundist sjónrænum
böndum í einlægu bræðralagi og
birta dreggjar karlmennskunnar á
sinn fegursta hátt,“ segir í tilkynn-
ingu.
Bókagjafir, síla-
veiðar og list-
ræn hellidemba
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vaskir veiðimenn Krakkar á íþróttanámskeiði KF veiddu síli á tjörninni í Ólafsfirði í fyrradag. Frá vinstri: Viktor
Smári Gíslason, Karen Helga Rúnarsdóttir, Víkingur Ólfjörð Daníelsson og Jóhann Gauti Guðmundsson.
Lesefni Stóllinn góði og bækurnar við heimili Kristínar Aðalsteinsdóttur.
Skapti Hallgrímsson
Góður Ásgeir Trausti á Græna hatt-
inum í hittifyrra. Hann kemur fram
þar í tvígang á laugardagskvöldið.
Jónsmessuhappdrætti
Sjálfsbjargar
1. Ford Fiesta Trend, 5 dyra, sjálfskiptur, bensín
frá bílaumboðinu Brimborg að verðmæti kr. 2.790.000
23454
2.-21. iPad Air spjaldtölvur, Wi-Fi+4G, 64GB frá Epli.is,
hver að verðmæti kr. 154.990
968 2852 4748 5113 7677 9897
10528 11833 12620 15249 16733 16963
17334 19551 21977 23367 24243 25368
28536 29149
22.-64. Gjafakort, hvert að verðmæti kr. 150.000
212 897 1876 1950 2488 2683
3196 4337 5435 5467 5730 6935
8094 8351 8564 9230 10332 12018
12709 12878 14940 16151 16447 17313
17574 17725 18269 19126 19857 19940
20178 20722 21251 21729 22429 22436
22833 24091 25019 26250 26532 26909
28551
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á
skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra að Hátúni 12, Reykjavík,
sími 550 0360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 11. júlí 2014.
Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu samtakanna, sjalfsbjorg.is og
textavarpi RÚV.
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra
þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Vinningar og vinningsnúmer
Dregið var 24. júní 2014
(B
irt
án
áb
yr
gð
ar
)
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Njáluarmbandið Afmælistilboð112.000 kr.
Hannað af Ríkarði Jónssyni
og Karli Guðmundssyni
myndskera frá
Þinganesi. Silfurmunir og skartgripir í 90 ár 1924-2014