Morgunblaðið - 26.06.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Æðsti embættismaður kínverskra
stjórnvalda í málefnum sem snúa að
nágrannaríkinu Taívan er nú í opin-
berri heimsókn í landinu. För emb-
ættismannsins, Zhangs Zhijuns,
þykir bera vitni um ört batnandi
samskipti á milli ríkjanna beggja
vegna Taívansunds.
Heimsóknin er talin vera í tilefni
væntanlegs viðskiptasamnings á
milli landanna, en þær áætlanir hafa
sætt miklum mótmælum íbúa Taív-
ans. Í mars og apríl söfnuðust þús-
undir manna á götum úti til að mót-
mæla samningnum og voru mót-
mælin þau stærstu í sögu landsins.
Hertóku mótmælendur taívanska
þingið og héldu því í þrjár vikur. Þeir
hafa fullyrt að samningurinn muni
gera landið háðara Kína og þannig
auka kínversk áhrif í landinu. Taív-
önsk stjórnvöld segja þó að samning-
urinn sé aðeins til þess fallinn að
bæta efnahag landsins.
Ár er liðið síðan stjórnvöld beggja
landanna skrifuðu undir samninginn,
en hann situr fastur í taívanska
þinginu. Samningurinn þykir vera
dæmi um breyttar áherslur kín-
verskra stjórnvalda þegar kemur að
því að byggja upp tengsl við Taívan.
Nánari viðskiptatengsl opni nýjar
leiðir fyrir Kína til að ræða aukið
stjórnmálasamband við eyríkið.
Gera enn tilkall til Taívans
Andað hefur köldu á milli stjórn-
valda landanna frá því þau skiptust í
tvö ríki í kjölfar borgarastyrjaldar
árið 1949. Æ síðan hafa taívönsk
stjórnvöld varist öllum kínverskum
áhrifum á eyjunni. Síðustu misseri
hafa samskipti þeirra þó virst fara
hlýnandi. Til marks um það fóru
fram, fyrr á þessu ári, fyrstu beinu
viðræður á milli ríkisstjórna land-
anna. Var þetta einsdæmi í sögu
landanna þar sem samskipti þeirra í
millum hafa hingað til farið fram með
óopinberum boðleiðum. Kína gerir
þó enn tilkall til Taívans sem hluta af
sínu landsvæði, þrátt fyrir að eyríkið
hafi nú verið sjálfstætt í sex áratugi.
Áhugi kínverskra fjölmiðla
Í Kína hafa fjölmiðlar farið mikinn
við að greina frá heimsókn Zhangs
Zhijuns. Hefur för hans meðal ann-
ars verið lýst sem einu litlu skrefi
fyrir Zhang, en risastökki fyrir sam-
skipti ríkjanna. Eru fjölmiðlar von-
góðir um að þetta marki kaflaskil í
samskiptum yfir Taívansundið.
Þíða í samskiptum yfir Taívansund
Stjórnvöld í Kína og Taívan hyggja á stóran viðskiptasamning Háttsettur kínverskur embættis-
maður í opinberri heimsókn til Taívans Gríðarleg mótmæli í Taívan gegn áformum stjórnvalda
AFP
Rauða spjaldið Mótmælendur í Taívan halda rauðum spjöldum á lofti til
tákns um að erindreki kínverskra stjórnvalda eigi að fara úr landinu.
Ársskýrsla UNICEF fyrir árið 2013
er nú komin út. Í skýrslunni er lögð
áhersla á að meta stöðu þeirra sem
eru undir 18 ára aldri, en það eru
rúmlega tveir milljarðar manna.
Niðurstöðurnar sem birtar hafa ver-
ið þykja um margt sláandi. Til dæm-
is er nefnt að á degi hverjum deyja í
kringum 18 þúsund börn yngri en
fimm ára. Þá eru 170 milljónir barna
í heiminum misnotuð sem vinnuafl,
og í mörgum tilfellum eru börnin
meðhöndluð sem þrælar. Í skýrsl-
unni segir einnig að aðeins fimm
prósent allra barna heimsins búi í
ríkjum sem bannað hafa hvers konar
ofbeldi gegn börnum.
Ljós í myrkrinu
Þá vísar skýrslan til rannsóknar
sem gerð var á vegum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, þar sem
fram kemur að árlega eru átján
milljónir barna misnotaðar kynferð-
islega í Evrópu og 44 milljónir beitt-
ar líkamlegu ofbeldi.
Þó kemur fram í skýrslunni að
mikill árangur hefur náðst frá því
lokið var við gerð Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna árið 1989. Til
marks um það er tekið dæmi um
fjölda dauðsfalla barna sem hægt
hefði verið að koma í veg fyrir með
bólusetningum, lyfjum eða fræðslu-
efni. Dauðsföllum af þessu tagi á ári
hverju hefur fækkað um sex millj-
ónir á þessu tímabili, sem þykir mik-
ið fagnaðarefni. Ljóst er þó að enn
er langt í land, því enn deyja 6,6
milljónir barna árlega af þessum or-
sökum, sem hægt væri að koma í veg
fyrir. Á síðustu mánuðum hafa sjón-
ir UNICEF einkum beinst að
Suður-Súdan, en landið er mjög
stríðshrjáð og hætta á mikilli hung-
ursneyð yfirvofandi.
Barnasáttmálinn
skiptir sköpum
AFP
Vatnshreinsun Sérfræðingar á vegum UNICEF sækja vatn í ána Níl fyrir íbúa Suður-Súdan. Þeir skoða vatnið til
að athuga hvort það geti orðið drykkjarhæft ef klór verði bætt í það. Tugþúsundir barna í landinu eru í lífshættu.
Hneyksli skekur nú æðstu ráðamenn
í Póllandi eftir að upp komst að sam-
ræður þeirra á milli höfðu verið hler-
aðar af þriðja aðila. Deilur um málið
áttu sér stað í þinginu í gær og þurfti
forsætisráðherra landsins, Donald
Tusk, að koma ráðherrum sínum til
varnar.
Spjótunum er einna helst beint að
utanríkisráðherra Póllands, Radek
Sikorski. Ummæli hans um helstu
bandamenn landsins, Bandaríkin og
Bretland, þykja einkar vandræðaleg
fyrir stjórnvöld í landinu. Á Sikorski
meðal annars að hafa sagt að tengsl
landsins við Bandaríkin væru einskis
virði og að David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, væri vanhæfur.
Seðlabankastjóri brýtur lög
Sikorski hefur enn ekki neitað því
að hafa látið þessi orð falla, sem vega
ekki síst þungt í ljósi þess að Pólland
er stærsta fyrrverandi austantjalds-
ríkið sem gengið hefur í Evrópusam-
bandið, og fagnar í ár aldarfjórðungs-
afmæli ríkisstjórnar án
kommúnisma.
Tímaritið Wprost var fyrst til að
birta þessar upptökur en í síðustu
viku ruddist ríkissaksóknari, ásamt
fjölmennu liði, inn í höfuðstöðvar
tímaritsins í rannsóknarskyni.
Þá munu einnig vera til upptökur
af samræðum innanríkisráðherrans,
Bartlomiej Sienkiewicz, við seðla-
bankastjóra landsins, Marek Belka,
um komandi kosningar. Þykir þetta
einkum bagalegt því að lögum sam-
kvæmt á seðlabanki landsins að
standa utan við svið stjórnmálanna.
Kenningar eru uppi um að samtöl-
in hafi verið hleruð í því skyni að fjár-
kúga leiðtoga landsins. „Pólska rík-
isstjórnin mun ekki láta stjórnast af
fólki sem leggur stund á ólöglegar
hleranir. Hvort sem það er vegna
stjórnmálahagsmuna, illvilja eða
græðgi,“ sagði Tusk forsætisráð-
herrann á blaðamannafundi í vikunni.
Hlerunarhneyksli
skekur Pólland
Ráðherra harð-
orður í garð
Bandaríkjanna
AFP
Orrahríð Donald Tusk kemur ráð-
herrum sínum til varnar í gær.
Ecco Jogga
Verð áður: 14.995
Verð nú: 11.246
Verð áður: 19.995
Verð nú: 13.995
Verð áður: 14.995
Verð nú: 11.246
Ecco Chander
Ecco Biom Ultra
Útsalan hefst í dag hjá
Steinari Waage og Ecco búðinni
30% afsláttur af
völdum vörum
STEINAR WAAGE KRINGLAN - SÍMI: 5689212
STEINAR WAAGE SMÁRALIND - SÍMI: 5518519
WWW.SKOR.IS