Morgunblaðið - 26.06.2014, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Farðu fram úr fyrr á morgnana og
þú munt slá í gegn. Talaðu varlega og
búðu þig undir að breyta stefnu fyr-
irvaralaust.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú nýtur hins ljúfa lífs, góðs matar,
víns og fallegs umhverfis. Ekki eru allir við-
hlæjendur vinir. Þú færð skemmtilegt sím-
tal fljótlega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er hætt við að samskipti þín
við aðra gangi eitthvað stirðlega í dag.
Láttu þig fljóta með straumnum. Klappaðu
þér á bakið fyrir nýlega gjörð sem krafðist
hugrekkis og dirfsku.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hlustaðu á líkama þinn og leitaðu
lausna á þeim vandamálum, sem hrjá
hann. Frumleiki þinn laðar að einstaklinga
sem þú getur verið stoltur af að kalla vini.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Óklárað verkefni tekur ósjálfrátt frá
þér kraft. Þú skilur að á hverju augnabliki
geturðu látið ljós þitt skína. Forðastu
margmenni ef þú er ekki heil/l heilsu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að gefa þér tíma til að
skemmta þér með vinum eða vandamönn-
um í dag. Hnýttu lausa enda og fáðu yf-
irsýn yfir málin. Einhver leggst á sveif með
þér í erfiðu máli.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þegar þú ert örugg/ur einblínir þú á
minnstu agnarögn af gagnrýni. Ekki er allt
gull sem glóir og þú græðir á því að skoða
hlutina. Veldu þér viðhlæjendur og vand-
aðu valið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Veltu því fyrir þér sem mælir
með einhverju og hinu sem talar gegn því.
Sestu niður og farðu gaumgæfilega í gegn-
um málin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Áhugi þinn beinist nú einkum
að fjármálunum. Léttu á huga þínum og þá
öðlastu þá ró sem þú þarfnast svo mjög.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ævintýragirni þín kemur berlega
í ljós. Lífið verður svo litlaust ef ekki má
aðeins bregða út af vananum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Augu þín opnast fyrir öllu því
óáþreifanlega sem gerir lífið svo frábært.
Gefðu þér tíma til að hlusta á vin í vanda.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ágreiningur við vin um fjármál pirr-
ar þig. Hikaðu ekki við að taka á þig aukna
ábyrgð því þú munt standa undir henni án
þess að þurfa að leika ofurmenni. Fall er
fararheill.
Víkverji hefur verið alveg bit yfirþví að Luis Suarez, sókn-
armaður Úrúgvæ, skyldi ákveða að
bíta varnarmann Ítala í öxlina í loka-
leik liðanna í riðlinum, án þess að fá
rauða spjaldið að launum. Dómari
leiksins hlýtur að hafa nagað sig í
handarbökin þegar hann horfði á
leikinn í sjónvarpinu. Suarez á svo
sannarlega eftir að bíta úr nálinni
hvað þetta mál varðar, en vonandi
skilur hann fyrr en skellur í tönnum
að hegðun á borð við þessa gengur
ekki upp á knattspyrnuvellinum.
Jæja, og þá er Víkverji búinn með
brandarana.
x x x
Þetta er einungis brotabrot af öll-um þeim bit-bröndurum sem
flogið hafa í kjölfar þessa atviks, sem
líklega munu verða á milli tannanna
á fólki (afsakið þennan) nokkuð eftir
að HM-keppninni lýkur. Fólk átti
hreinlega ekki von á því að Suarex
myndi bíta andstæðing í þriðja sinn
á ferlinum. Þá kom þetta á óvart eft-
ir að Suarez hefur átt frábært tíma-
bil með liðinu sínu í Englandi, og
vonuðust þá margir, bæði stuðnings-
menn og andstæðingar Liverpool, til
þess að Suarez hefði þar með þrosk-
ast. En þær vonir reyndust tálið eitt.
x x x
Stundum er sagt að hægt sé aðveðja á allt sem manni dettur í
hug hjá veðbönkum. Því miður var
Víkverji ekki einn af þeim 160 eða
svo, sem settu pening á það að eld-
ingu myndi ljósta niður þrisvar á
sama stað og að Suarez yrði gómað-
ur (afsakið þennan) í þriðja sinn fyr-
ir tannbrot. Eða kannski sem betur
fer. Einn af þeim sem unnu fúlgur
fjár á veðmálinu sagði að það hefði
verið galið af sér að leggja þetta
undir, en jafnframt að það væri galið
að hann hefði unnið veðmálið. Það er
hægt að taka undir það.
x x x
Eftir atvikið hefur verið lífleg um-ræða um það hvernig tekið verði
á þessu. Víkverji telur líklegt að allir
muni verða ósáttir við niðurstöðu
FIFA, sama hver hún verður. Þeir
sem verja Suarez muni segja refs-
inguna allt of þunga, og hinir telja
hana allt of væga. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Látið Krist ríkja í hjört-
um yðar, því að til friðar voruð þér
kallaðir sem limir í einum líkama.
Verið þakklátir. (Kól. 3, 15.)
Hjálmar Jónsson kenndi mér vísueftir afa sinn, Kristin Bjarna-
son frá Ási í Vatnsdal, en langafi
hans var Bólu-Hjálmar. Vísuna orti
Kristnn á efri árum:
Við Bakkus hvor öðrum þá sanngirni sýnum
að sættast á málin hvern einasta dag.
Ég geld honum tíund af tekjunum mínum
og tel þessi viðskipti báðum í hag.
Enn er Landsmót hagyrðinga til
umræðu. Guðmundur Stefánsson
orti á Leirnum, en lét þess jafnframt
getið að hann stæði í undirbúningi
ættarmóts um helgina. „Þar á eftir
verður farið að huga að frekari und-
irbúningi hagyrðingamóts,“ segir
hann. „Það verður þriðja manna-
mótið sem ég stend að á tæpu ári og
verður þá kvóti minn væntanlega
fullnýttur.“
Berst hún snjöll um víðan völl
vísan okkar slynga
og hlátrasköll um Skeiðin öll
á skemmtun hagyrðinga.
Ármann Þorgrímsson spyr hvað
sé framundan:
Einföld staðreynd að mér snýr
ekki minnkar þjóðar vandi
íhaldsflokkar orðnir þrír
í okkar kæra Putalandi.
Heiðrekur Guðmundsson átti ým-
islegt til og hafði sterkar pólitískar
skoðanir:
Við hljóðnemann sat ég en hver var nú sá
sem hóf þetta eindæma blaður?
Hann boðaði kreppu, ég þekkti það þá
að þetta var Framsóknarmaður.
Og við andlát Stalíns orti hann:
Hve þungur harmur Sovét-sálir nísti
er sótti dauðinn þeirra höfuðprest,
en neðra þar sem fjandinn Hitler hýsti
var hópast kringum nýjan tignargest.
Heiðrekur orti, en vel hefði þetta
getað verið ort um aðalpersónurnar
í Hrunadansi hinum nýja:
Inni legið auðvaldsþý
aðra flegið hefur
svikatreyju sýslar í
sápuþveginn refur.
Ég hef alltaf gaman af hús-
göngum:
Krummi snjóinn kafaði
kátur hló og sagði
að hún tófa ætlaði
einum að lóga gemlingi.
Krummi situr á kvíavegg
kroppar hann á sér tærnar
engan skal hann matinn fá
fyrr en hann finnur ærnar,
– og svo fann hann ærnar.
Seinni vísan er til í mörgum af-
brigðum, en svona lærði ég hana.
Halldór Blöndal
(halldorblondal@simnet.is)
Vísnahorn
Af Bakkusi, misjöfnu fólki
og krumma
Í klípu
GARÐAR HATAÐI KORT. HONUM FANNST
ÞAU VEITA MISVÍSANDI UPPLÝSINGAR.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ SKULUM BYRJA Á
SMÁ SKORDÝRAEITRI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eyða öllum
deginum í að hugsa
til þín.
STANS!
HVER FER
ÞAR?
VINUR
EÐA VÁ?
ÉG ER
VÁ!
FREKAR STÓR VÁ,
EINS OG ÞÚ KANNSKI
SÉRÐ!
SVONA, HÆTTIÐ
GLÍMUBRÖGÐUNUM!
Ó, ERT ÞETTA
BARA ÞÚ,
GRETTIR?
ÉG ER EKKI
FEITUR!