Morgunblaðið - 26.06.2014, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2014
Movie Star hvíldarstóll
Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Okkur er mjög annt um formið,
því okkur finnst mikilvægt að bjóða
ekki aðeins upp á tónleika heldur
líka vinnusmiðjur,“ segir Eyþór
Ingi Jónsson, organisti og listrænn
stjórnandi
Barokk-
hátíðarinnar á
Hólum í Hjalta-
dal sem hefst í
dag og stendur
til sunnudags.
Þetta er í 6. sinn
sem hátíðin er
haldin.
Að þessu sinni
er aðalgestur há-
tíðarinnar breski fiðluleikarinn og
prófessorinn Peter Hanson sem
heldur strengjanámskeið og stýrir
Barokksveit Hólastiftis á loka-
tónleikum hátíðarinnar sunnudag-
inn 29. júní kl. 14. Að sögn Eyþórs
Inga er mikill fengur að því að fá
Hanson á hátíðina. „Nokkur okkar
sem skipuleggjum hátíðina höfum
unnið með honum og þekkjum hann
aðeins að mjög góðu, enda er hann
frábær tónlistarmaður og kennari.“
Jón Þorsteinsson stýrir söng-
námskeiði fyrir opnum dyrum, en
nemendur koma einnig fram á tón-
leikum í Hóladómkirkju annað
kvöld kl. 20. Að vanda kennir Ingi-
björg Björnsdóttir barokkdans, en
hún hefur kennt á öllum hátíðum
frá upphafi, og er námskeiðið öllum
opið.
Samkvæmt upplýsingum frá Ey-
þóri Inga er dagskrá hátíðarinnar
fjölbreytt. „Boðið verður upp á þrjá
fyrirlestra í Auðunarstofu sem eru í
umsjón Ingimars Ólafssonar Waage
listmálara, Jóhönnu Halldórsdóttur
altsöngkonu og Ragnheiðar
Traustadóttur fornleifafræðings.
Þrennir hádegistónleikar fara fram
dagana 26.-28. júní í Hóladóm-
kirkju kl. 12.30,“ segir Eyþór Ingi,
en þess má geta að á hádegistón-
leikum laugardagsins koma fram
þrír ungir söngvarar frá Hollandi,
þeir Christof Laceulle bassi, Nat-
han Tax bassi og kontratenór og
Tobias Segura Peralta kontra-
tenór.
„Kammerhópurinn Reykjavík
barokk heldur tónleika ásamt Jó-
hönnu Halldórsdóttur í Hóladóm-
kirkju í kvöld kl. 20, þar sem fluttar
verða perlur frá barokktímanum,“
segir Eyþór Ingi og tekur fram að
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi á hátíðinni. „Við erum
ekki að flytja mesta torf barokktím-
ans, heldur einbeitum okkur að að-
gengilegum og fallegum verkum,“
segir Eyþór Ingi sem sjálfur kemur
fram á hádegistónleikum á morgun
með Þóri Jóhannssyni bassaleikara,
en á efnisskránni eru verk eftir
Bach og Händel.
Af öðrum viðburðum á hátíðinni
má nefna barokk-quiz sem haldið
verður í Auðunarstofu annað kvöld
kl. 21.30, en þar geta þátttakendur
keppt um hver viti mest um bar-
okkið. Barokkkvöldverður verður
haldinn í sal Hólaskóla laugardag-
inn 28. júní kl. 19, þar sem dans-
aður verður barokkdans við undir-
leik lítillar danshljómsveitar.
Sunnudaginn 29. júní kl. 11 verður
síðan barokkmessa í Hóladóm-
kirkju með miklum tónlistarflutn-
ingi. Allar nánari upplýsingar og
skráning er á barokksmidjan.com.
Perlur Kammerhópurinn Reykjavík barokk flytur ásamt Jóhönnu Halldórs-
dóttur alt perlur frá barokktímanum á tónleikum í Hóladómkirkju í kvöld.
„Annt um formið“
Barokkhátíðin á Hólum í 6. sinn
Danskennsla fyrir alla áhugasama
Eyþór Ingi
Jónsson
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Í ár verður boðið upp á söngtónlist
á öllum þrennum tónleikum hátíð-
arinnar,“ segir Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir mezzósópran og listrænn
stjórnandi Kammertónleika á
Kirkjubæjarklaustri sem hefjast á
morgun og
standa til sunnu-
dags, en allir tón-
leikarnir verða í
Kirkjuhvoli. „Frá
því ég tók við sem
listrænn stjórn-
andi hefur áhersl-
an í auknum mæli
verið á söng-
tónlist, enda fleiri
hátíðir á landinu
sem bjóða upp á kammertónlist, en
þetta er eina hátíðin þar sem söngur
er í forgrunni,“ segir Guðrún Jó-
hanna sem haldið hefur um stjórn-
artaumana frá árinu 2006, en hátíðin
er nú haldin í 24. sinn.
Á upphafstónleikum hátíðarinnar,
annað kvöld kl. 21, flytja Spilmenn
Ríkínís íslenska þjóðlagatónlist úr
safni Bjarna Þorsteinssonar, útsetta
af hópnum, og tónlist úr íslenskum
handritum frá 11. öld. „Allir með-
limir hljómsveitarinnar syngja og
leika jafnframt á sjaldséð hljóðfæri,
sem heimildir eru um að hafi verið til
hér á landi á þessum tíma, s.s. gígju,
symfón, langspil, hörpu og gems-
horn,“ segir Guðrún Jóhanna.
Sjálf kemur hún fram á tónleikum
laugardaginn 28. júní kl. 17 ásamt
Dúo Roncesvalles. „Við munum
flytja spænsk lög fyrir rödd, fiðlu og
gítar af nýútkomnum geisladiski
okkar sem nefnist Secretos quiero
descuvrir eða Leyndarmál sem ég
vil afhjúpa,“ segir Guðrún Jóhanna
og tekur fram að efnisskrá tón-
leikanna sé sérstaklega persónuleg.
Stuðlað að nýsköpun í tónlist
„Öll lögin voru samin eða útsett
með okkur í huga,“ segir Guðrún Jó-
hanna og bendir á að Dúo Ronces-
valles sé skipað gítarleikaranum
Francisco Javier Jáuregui, sem sé
eiginmaður hennar, og fiðluleik-
aranum Elenu Jáuregui, sem sé
mágkona hennar. „Elena kynnti
okkur Javier árið 2000 og höfum við
unnið saman frá árinu 2002, en þau
systkinin hafa unnið saman frá ung-
lingsaldri.“ Tríóið mun auk verka
eftir Francisco Javier Jáuregui
flytja verk eftir David del Puerto og
Agustín Castilla-Ávila. „Jafnframt
munum við frumflytja lag eftir Þóru
Marteinsdóttur staðartónskáld há-
tíðarinnar í ár sem hún samdi við
ljóðið „Ég er brott frá þér bernska“
eftir Halldór Laxness,“ segir Guð-
rún Jóhanna og tekur fram að sér
þyki mikilvægt að stuðla að nýsköp-
un í tónlist með því að fá íslenskt
tónskáld til að semja nýtt verk til
frumflutnings á hátíðinni ár hvert.
„Lokatónleikarnir verða sunnu-
daginn 29. júní kl. 15, en þar stígur
kórinn Hljómeyki á svið, undir
stjórn Mörtu Guðrúnar Halldórs-
dóttur, og syngur tónlist frá 16. öld
til 21. aldarinnar,“ segir Guðrún Jó-
hanna og tekur fram að kórinn haldi
upp á 40 ára starfsafmæli sitt í ár.
„Sum laganna sem flutt verða á tón-
leikunum voru líka flutt á fyrstu tón-
leikum kórsins,“ segir Guðrún Jó-
hanna og bendir á að þá hafi
stjórnandinn verið Rut L. Magn-
ússon, sem Guðrún Jóhanna nam
síðar söng hjá.
„Líkt og í fyrra bjóðum við um
helgina upp á tónlistarsmiðju í
Íþróttamiðstöðinni fyrir börn á aldr-
inum 5-12 ára. Leiðbeinandi í ár er
Gunnar Ben úr Skálmöld. Börnin
munu fara í tónlistarleiki, spinna og
taka svo þátt í lokatónleikunum,“
segir Guðrún Jóhanna og tekur fram
að þátttaka sé ókeypis og ekki sé
krafist neinnar tónlistarþekkingar
fyrirfram. Skráning fer fram á net-
fanginu kammertonleikar@gmail-
.com. Allar nánari upplýsingar eru á
kammertonleikar.is.
„Söngur í forgrunni“
Kammertón-
leikar á Kirkjubæj-
arklaustri í 24. sinn
Morgunblaðið/Eggert
Sjaldséð hljóðfæri Hljómsveitin Spilmenn Ríkínís og kórinn Hljómeyki á æfingu í Tónskóla Sigursveins.
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
Sönghópurinn Olga hefur tónleika-
ferð sína um landið með tónleikum í
Tjarnarborg á Ólafsfirði í kvöld.
Olga var stofnuð árið 2012 og eru
liðsmenn hennar Bjarni Guðmunds-
son fyrsti tenór, Jonathan Ploeg
annar tenór, Gulian van Nierop
barítón, Pétur Oddbergur Heim-
isson bass-barítón og Philip Bark-
hudarov bassi. Allir eiga þeir það
sameiginlegt að njóta leiðsagnar
Jóns Þorsteinssonar í klassísku
söngnámi sínu við Tónlistarháskól-
ann í Utrecht í Hollandi.
„Við syngjum allt án undirleiks
og efnisskrá okkar spannar fimm
aldir, allt frá endurreisninni til rak-
arakvartetta og frá þjóðlögum til
sönglaga. Við leggjum upp með að
færa tónlistina nær áheyrendum í
leikrænni tjáningu og einlægum
söng með vandaðri og metn-
aðarfullri tónlistarlegri túlkun,“
segir m.a. í tilkynningu.
Næstu tónleikar hópsins verða í
Hvolnum á Hvolsvelli 29. júní, í
Langholtskirkju 1. júlí, í Bláu kirkj-
unni á Seyðisfirði 2. júlí og í Hafn-
arkirkju á Höfn 4. júlí. Allir tónleik-
arnir hefjast kl. 20 nema í Bláu
kirkjunni, þeir hefjast kl. 20.30. All-
ar nánari upplýsingar og miðapant-
anir eru á olgavocalensemble.com.
Líkt og í fyrra er frítt fyrir allar
konur sem heita Olga sem og fyrir
börn á grunnskólaaldri.
Olga hefur tónleikaferðalag sitt í kvöld